Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju

Vörusýning í Smáralind

Tvö fyrirtæki frá Vestmannaeyjum hafa náð frábærum árangri og tryggt sér sæti í úrslitum fyrirtækjasmiðju ungra frumkvöðla, JA Iceland 2026. En fyritækin kynntu vörur sínar á svokallaðri vörumessu í Smáralind fyrr í mánuðinum. Alls tóku 620 nemendur frá 18 framhaldsskólum þátt. Markmið fyrirtækjasmiðjunnar er að efla frumkvöðlahugsun meðal ungs fólks, auka skilning á rekstri og […]

Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum

Nýlega birtist veiðiráðgjöf Hafró á hrefnu og langreyð en það var búið að dragast að gefa hana út sem er illskiljanlegt þar sem hún byggir á gögnum frá árinu 2024. Í stuttu máli þá felur veiðiráðgjöfin fyrir árið 2026 það í sér að ráðlegt er að draga verulega úr veiðum á bæði hrefnu og langreyð. […]

Við þurfum að hætta þessum bútasaumi

Miðflokkurinn býður fram í fyrsta sinn í bæjarstjórnarkosningum í Vestmannaeyjum og Jón Þór Guðjónsson leiðir listann. Við tókum hús á oddvitanum og spurðum út í framboðið og bæjarmálin.  Hvað varð til þess að þú ákvaðst að taka að þér þetta hlutverk?  „Ákvörðunin um að leiða lista Miðflokksins kemur fyrst og fremst af því að mér […]

Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins

Aníta Sif Vignisdóttir er mörgu Eyjafólki kunn, enda hefur hún í áratugi starfað sem snyrti- og fótaaðgerðafræðingur og sinnt fólki á öllum aldri af alúð og fagmennsku. Aníta lauk stöfum nú á dögunum eftir 40 ár í starfi sem snyrti- og fótaaðgerðafræðingur. Vestmannaeyjabær heiðraði Anítu og þakkaði í leiðinni fyrir hennar mikilvæga framlag til þjónustu […]

Samfélag fyrir fjölskyldur

Ég þekki það af eigin raun, eins og svo margir, hvað það er oft mikið púsluspil að láta daginn ganga upp. Hvaða dagur er í dag, er leikfimi, er æfing hjá þessum, já ok er hann að fara á báðar æfingar í dag og leikfimi. Svo fundurinn í kvöld hjá þessum flokki. Varstu búin að […]

Spurt og svarað: Guðbjörg Sól frá Sjálfstæðisflokknum

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins. Nafn: Guðbjörg Sól Sindradóttir. Aldur: 21 árs. Fjölskylda: Móðir mín er Fríða Hrönn Halldórsdóttir, gift Ágústi Sævari Einarssyni og systur mínar eru þær Thelma Lind, Andrea, […]

Líf og fjör á barnamenningarháíð

  Það var sannkallað líf og fjör á Stakkó í morgun þegar leik- og grunnskólar sameinuðust í tilefni Barnamenningarhátíðar. Barnamenningarhátíð er árleg hátíð sem haldin er víða um land með það að markmiði að efla menningarþátttöku barna og gefa þeim tækifæri til að njóta og skapa listir. Á hátíðinni fá börn að kynnast fjölbreyttum menningarformum, […]

Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma

Laugardaginn 25. apríl nk. kl. 11.00-12.00 verður sýndur áttundi þáttur af Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma í Sagnheimum.   Í þættinum koma vð sögu Eyjabændur við heyskap austur á Kirkjubæjum og Gerðistúnum, veiðimenn í úteyjum og réttardagur í Elliðaey. Einnig Þjóðhátíðarmyndir frá 1953 og um 1970. Fjölbreyttar lifandi myndir frá fjölmennu 40 ára afmæli Íþrótttafélagsins […]

Halla Hrund óskar eftir opnum fundi um stöðu samgangna til Vestmannaeyja

Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, óskaði á fundi umhverfis- og samgöngunefndar í morgun eftir opnum fundi nefndarinnar með Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra um stöðu samgangna til Vestmannaeyja sem og nauðsyn heildstæðrar ferjuáætlunar fyrir landið allt. Tillagan þingmannsins var samþykkt einróma. Tilefni fundarbeiðninnar er að samgöngur til og frá Vestmannaeyjum hafa raskast verulega vegna bilunar í Herjólfi […]

15 ára stelpa úr Eyjum misst 12 daga úr skóla

Samgöngur: Ráðherra verður að grípa til aðgerða Sönn saga: 15 ára íþróttastelpa úr Eyjum hefur misst úr 12 skóladaga á skólaárinu vegna samgönguvanda. Hún hefur verið í ferðalagi í 128 tíma frá áramótum. Hefðu samgöngur verið í lagi hefði hún ekki misst út einn dag í skólanum og verið í 80 tíma á ferðalagi. Staðan […]

Innviðaráðherra svarar bæjarráði

Þann 15. apríl sendi bæjarráð svofellt erindi til innviðaráðherra Svar innviðaráðherra: “Ég tek undir með þér að ástand í samgöngumálum Vestmannaeyja hefur verið afar erfitt undanfarið og full ástæða er til að rýna í stöðuna og leita leiða til eflingar. Varðandi þær óskir sem þú settir fram í tölvupóstinum hér að neðan Dýpkun hafnarinnar. Samkvæmt […]

Spurt og svarað: Jón Þór frá Miðflokknum

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins. Nafn: Jón Þór Guðjónsson Aldur: 32 ára Fjölskylda: Ég á þrjú börn, Tinnu Mjöll 5 ára, Andreu Dögg 2 ára og einn lítinn peyja sem er […]

Spurt og svarað: Anton Örn frá Eyjalistanum

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins. Nafn: Anton Örn Björnsson Aldur: 34 ára Fjölskylda: Ég er giftur Ástu Lilju Gunnarsdóttur, þroskaþjálfa og saman eigum við tvo stráka Emil Mána 7 ára og […]

Dagskráin á sumardaginn fyrsta

Sumardagurinn er á morgun og markar dagurinn upphaf sumars samkvæmt gamla norræna tímatalinu. Hefð er fyrir því að fagna deginum um land allt og er dagurinn lögbundinn frídagur. Hér má sjá dagskránna fyrir daginn hér í Eyjum. 10:30 – 11:15 Barnabíó í sundlauginni (Ávaxtakarfan) 11:00 – 15:00 Opið í SEA LIFE þar sem börn 12 […]

Vatnslögnin er stærsta hagsmunamál íbúa í Eyjum 

Baráttan um atkvæði Eyjamanna er komin á fulla ferð eftir að þrír stjórnmálaflokkar  tilkynntu framboð til kjörstjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn er þar á meðal og markmiðið okkar sjálfstæðismanna er bara eitt:  Að vinna meirihluta í kosningunum 16.maí. Ný vatnslögn Ég hef starfað í bæjarstjórn sl. 4 ár, sem oddviti Sjálfstæðismanna , og hef setið í Bæjarráði, þar […]

Rúmlega hundrað konur á Mey kvennaráðstefnu

Mey kvennaráðstefnan fór fram í Sagnheimum síðastliðinn laugardag við góðar undirtektir. En rúmlega hundrað konur komu saman og nutu dagsins í góðum félagsskap. Markmið Mey er að sameina konur, styrkja, gleðja og valdefla og er þetta í þriðja sinn sem ráðstefnan er haldin. Dagskráin var að vanda fjölbreytt og skemmtileg, en þrír fyrirlesarar stigu á […]

Spurt og svarað: Kjartan Vídó frá Sjálfstæðisflokknum.

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins. Nafn: Kjartan Vídó Ólafsson Aldur: 47 ára Fjölskylda: Flutti aftur til Eyja fyrir rúmu ári og er í sambúð með Guðrúnu Lilju Friðgeirsdóttur, leikskólakennara á Sóla. […]

Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins. Nafn: Sæunn Magnúsdóttir Aldur: 38 ára Fjölskylda: Ég er dóttir Magga Þorsteins og Kristínar Sigurðar. Eiginmaður minn er Sveinn Hjalti Guðmundsson. Menntun og störf: Ég er […]

Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins Nafn: Arndís María Kjartansdóttir Aldur: 54 ára Fjölskylda: Ég er gift Ómari Steinssyni, við eigum þrjú börn, Breka, 28 ára, Bríeti 24 ára og Bertu 20 […]

Sex hópar frá FÍV tóku þátt í vörumessu í Smáralind

Á föstudag og laugardag fór fram svokölluð vörumessa ungra frumkvöðla í Smáralind. Þar kynntu og seldu nemendur úr framhaldsskólum víðs vegar af landinu hugmyndir sínar og verkefni. En alls tóku um 620 nemendur frá 18 framhaldsskólum þátt í messunni.  Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum átti þar sex hópa sem kynntu sína nýsköpun. Nemendur lögðu mikla vinnu í […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.