Sólarbekkurinn á Kletti vinsæll áfangastaður

Sólin hefur leikið við Eyjafólk síðustu daga og enn skín hún, þótt vindurinn láti aðeins á sér kræla. Þegar vel viðrar í Eyjum er fátt notalegra en að líta við á Kletti, fá sér ís eða eitthvað annað gott og setjast á bekkinn fyrir framan í léttu spjalli. Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta, rakst á þessa […]
Tímamót í iðn- og starfsnámi í Vestmannaeyjum

Í fyrsta sinn var sveinspróf í húsasmíði haldið í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum um sjómannadagshelgina. Alls þreyttu tíu nemendur prófið og stóðust það allir. Segir Helga Kristín Kolbeins, skólameistari FÍV, að um mikilvægan áfanga fyrir iðn- og starfsnám í Eyjum sé að ræða. „Þetta eru mjög ánægjuleg tímamót fyrir skólann og samfélagið allt. Það hefur lengi […]
Jóhannes Grettisson rifjar upp árin á Ísleifi VE

„Vinnslustöðin átti að kaupa Ísleif. Leifur var harður á því og vildi að hvorki bátur né kvóti færu úr bænum. Það var hans mottó; að halda þessu í Eyjum. Vinnslustöðin gaf það loforð og stóð við það að Ísleifur yrði áfram grænn með gulu röndinni og fjögurra blaða smáranum,“ segir Jóhannes Grettisson, tengdasonur Leifs. Jóhannes […]
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“

Ásdís Steinunn Tómasdóttir, deildarstjóri á unglingastigi Grunnskóla Vestmannaeyja flutti ávarp við útskrift 10. bekkjar í Eldheimum fyrir hönd Einars Gunnarssonar í Eldheimum í síðustu viku. Í ræðu sinni lagði hún áherslu á að útskriftin markaði mikilvæg tímamót í lífi nemenda, foreldra og starfsfólks skólans. „Við fögnum saman lokum tíu ára skólagöngu þessa glæsilega hóps ungs […]
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði

Eftirtektarverðasta framkoman: Aron Hugi Hjartarson, Ágúst Breki Sigurjónsson, Birgir Nielsen Birgisson, Guðjón Týr Sverrisson og Jakob Hallgrímur Laxdal Einarsson. Lokaverkefni tíundu bekkingja voru nú eins og undanfarin ár ótrúlega fjölbreytt og áhugaverð. Tónlist, bílar, starfsemi likamans og tilfinningar eru meðal þess sem nemendur taka fyrir og leggja mikla vinnu í eins og sjá mátti á […]
Leiðin liggur á Eyjuna fögru

Ég hef ekki töluna á þeim sumar, kvöld, helgar, frídaga og afleysingastörfum sem maður tók þátt í á mínum dásamlegu æskuárum í Eyjum. Sum af þeim áttu eftir að móta mann meira en önnur eins og lögreglan en svo vöru önnur eftirminnileg á annan hátt eins og þegar verkstjóri úr Vinnsló kom inn í dönskutíma […]
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu

Í áratugi hafa konurnar í Slysavarnadeildinni Eykyndli boðið upp á kaffi og kökur á sjómannadaginn. Kaffið hefur notið mikilla vinsælda. Var lengst af í Alþýðuhúsinu en var síðar flutt í Akóges. Í ár ákváðu Eykyndilskonur að nú væri komið gott og tóku ÍBV-stelpurnar í fótboltanum við keflinu. Að vanda var vel mætt í kaffið og […]
Veisla hjá Bjössa í 20 ár

Það er 20 ára hefð fyrir því að kíkja við hjá Birni Jóhanni Guðjohnsen vélfræðingi að Skólavegi 47 að lokinni sjómannamessu. Bjössi er höfðingi heim að sækja og tekur vel á móti sjómannadagsráði og gestum í garði sínum. Hér birtum við nokkrar myndir sem Óskar Pétur tók í veislunni á sunnudaginn. (meira…)
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar

Hefðbundin dagskrá Sjómannadagsins á Stakkó fór fram í blíðskaparveðri. Hátíðin hófst með leik Lúðrasveitar Vestmannaeyja undir stjórn Jarls Sigurgeirssonar og í kjölfarið steig Karlakór Vestmannaeyja á svið og flutti nokkur hressileg lög sem hæfðu vel tilefni dagsins. Ræðumaður dagsins var Guðmundur Helgi Þórarinsson. Hann gegndi formennsku í Félagi vélstjóra og málmtæknimanna í átta ár og […]
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst

Í sjómannamessu Sjómannadagsins lagði séra Viðar Stefánsson út af sögunni um prest sem bað Guð að bjarga sér þegar flóð ógnaði bænum hans. Hjálpin barst í þrígang, en í hvert skipti afþakkaði presturinn aðstoðina og sagðist bíða eftir Guði. Að lokum fórst hann í flóðinu og stóð síðar nokkuð sár frammi fyrir Drottni allsherjar. Hann […]
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“

Fyrir réttum 40 árum útskrifuðust 12 nemendur sem nýstúdentar frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum við hátíðlega athöfn í bíósalnum við Heiðarveg. Jafnframt luku níu nemendur verslunarprófi, þrír iðnskólaprófi, tveir námi í grunndeild málmiðna, tveir vélstjóranámi 2. stigs, fimm vélavarðaprófi og fjórir undanþágunámskeiði fyrir vélstjóra. Þá var einnig starfrækt öldungadeild við skólann og stunduðu 30 nemendur nám […]
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn

Við hátíðlega athöfn á Sjómannadaginn voru þrír sjómenn heiðraðir fyrir áratugalangt starf og framlag sitt til sjávarútvegsins. Það voru þeir Óttar Gunnlaugsson, Guðmar Weihe Stefánsson og Ebenezer Guðmundsson sem tóku við viðurkenningum frá sínum félögum fyrir farsælan feril á sjó. Óttar Gunnlaugsson Sjómannafélagið Jötunn heiðraði Óttar Gunnlaugsson fyrir langan og farsælan sjómannsferil. Hann hóf sjómennsku árið 1982, […]
Hugrekki er oft bara að halda áfram

Helga Kristín Kolbeins, skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, lagði áherslu á þrautseigju, samkennd og mikilvægi gagnrýninnar hugsunar á tímum hraðra tæknibreytinga. Hvatti hún útskriftarnema til að treysta eigin dómgreind, sýna samkennd og hafa kjark til að halda áfram, jafnvel þótt framtíðin væri ekki fullmótuð. „Í dag er hátíðardagur. Við komum saman til að fagna 45 nemendum sem […]
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn

Skólaslit vorannar 2026 fóru fram í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum 29. maí. Við athöfnina voru 45 nemendur brautskráðir af sex mismunandi námsbrautum. Að lokinni brautskráningu fluttu fulltrúar ýmissa félaga og stofnana ávörp og afhentu viðurkenningar fyrir námsárangur, þátttöku í félagsstörfum og framlag til skólasamfélagsins. Fyrir hönd Íþróttaakademíu ÍBV og FÍV afhenti Sigríður Inga Kristmannsdóttir barmmerki ÍBV og viðurkenningar þeim […]
Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum

Alls útskrifuðust 45 nemendur frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum við skólaslit sem fram fóru í lok síðasta mánaðar. Nemendurnir voru af sex mismunandi brautum auk viðbótarnáms til stúdentsprófs og iðnmeistaranáms. Er þetta stærsti útskriftarhópur frá stofnun skólans. Flestir útskrifuðust af iðnmeistaranámi, alls 14 nemendur, og 12 luku námi af húsasmiðabraut. Af stúdentsbraut á náttúruvísindalínu útskrifuðust átta nemendur, […]
Kraftmikil önn og árangur nemenda í forgrunni

„Vorönnin var fjölbreytt, stundum krefjandi og á margan hátt lýsandi fyrir þann kraft sem býr í skólanum okkar,“ sagði Thelma Gísladóttir, aðstoðarskólameistari FÍV þegar hún ávarpaði útskriftarnema, aðstandendur og gesti. Hún rifjaði upp að önnin hófst með eftirminnilegri heimsókn forseta Íslands, Halla Tómasdóttir, sem kom í skólann í janúar ásamt eiginmanni sínum og fylgdarliði. Forsetinn […]
Skötuveisla sem stendur undir nafni

Skötuveisla Sjómannadagsráðs Vestmannaeyja var haldin kl. 11,00 í morgun á Sælandi hjá Hallgrími Rögnvaldssyni veitingamanni. Rikki kokkur og Óðinn sáu um matseldina sem náði nýjum hæðum þetta árið. Á boðstólum voru skata og saltfiskur, rófur og kartöflur, auk hamsa og smjörs eftir smekk hvers og eins. Þetta er rótgróin hefð sem rekja má til heiðurshjónanna […]
Stjána á Emmunni þakkað fyrir ómetanlegt starf

Í tilefni af 80 ára afmæli Kristjáns Óskarssonar, Stjána á Emmunni, stóðu Sagnheimar fyrir sýningu á völdum brotum úr viðtölum hans og myndefni í Safnahúsinu í dag. Sýndir voru stuttir kaflar úr 12 viðtölum sem tekin voru eftir 1990, auk eldri ljósmynda frá Vestmannaeyjum. Dagskráin var jafnframt lokaviðburður sýningarraðarinnar Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma. […]
Fækkun skemmtiferðaskipa fram undan

„Eftir heimsfaraldur COVID-19 hefur verið unnin mikil vinna hjá höfnum landsins og hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu til að bæta aðstöðu fyrir skemmtiferðaskip og kynna Ísland sem ákjósanlegan viðkomustað,“ segir Dóra Björk Gunnarsdóttir, hafnarstjóri í Vestmannaeyjum sem í vikunni tók á móti fulltrúum frá alþjóðlegum skipafélögum sem hafa ferðast um landið undanfarna daga. Hún segir að þessi […]
Brot af því besta úr viðtölum Stjána á Emmunni

„Í tilefni þess að Kristján Óskarsson, betur þekktur sem Stjáni á Emmunni varð áttræður 13. maí síðastliðinn verður sýnt brot af því besta úr hans einstaka safni viðtala og myndefnis. Þetta er kjörið tækifæri til að heiðra það mikla og óeigingjarna starf sem hann hefur unnið við að varðveita sögu og minningar Eyjafólks,“ segir í […]