Sóknarfærin liggja meðal annars í því að bæta og efla Rannsóknarsetrið í Vestmannaeyjum.

www.eyjar.net heldur áfram að heyra í brottfluttum eyjamönnum bæði innanlands sem og erlendis með þeim tilgangi að fá að vita hvar þau eru stödd í lífinu og hvaða viðhorft þau hafa til Vestmannaeyja. Að þessu sinni heyrðum við í Jóhanni Erni Friðsteinssyni en Jóhann Örn er búsettur í Þrándheimi í Noregi. Jóhann Örn stundar þar nám í jarðverkfræði […]

Landsmót Samfés haldið í eyjum

Landsmót Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi var haldið í Vestmannaeyjum um helgina. Tæplega 400 unglingar og starfsmenn félagsmiðstöðva tóku þátt í starfi helgarinnar og óhætt er að segja að unglingarnir hafi sett skemmtilegan svip á bæinn um helgina. Setning mótsins, sem upphaflega átti að vera á Stakkagerðistúni, var færð inn í Íþróttamiðstöð vegna veðurs. Flutti […]

Hermann skoraði í útisigri hjá Portsmouth

Hermann Hreiðarsson skoraði síðara mark Portsmouth sem vann góðan útisigur á Fulham, 2:0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Með sigrinum renndi Portsmouth sér uppí fimmta sæti deildarinnar og hefur nú skorað næstflest mörk allra liðanna. Benjani Mwaruwaru kom Portsmouth yfir á 50. mínútu og þremur mínútum síðar bætti Hermann Hreiðarsson við marki, 2:0, […]

Hermann skoraði aftur

Hermann Hreiðarsson skoraði í öðrum leik sínum í röð með liði sínu, Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni. Portsmout sótti Fulham heim og sigraði 0:2 en mörkin komu með aðeins tveggja mínútna millibili. Hermann skoraði síðara markið og átti mikinn þátt í undirbúningi marksins, vann boltann af leikmanni Fulham og batt svo endahnútinn á sóknina. (meira…)

Minkur um borð í skipi í Vestmannaeyjahöfn

Minkur fannst um borð í netabátnum Stíganda VE, sem liggur nú við landfestar í Vestmannaeyjahöfn. Minkur er ekki landlæg plága í Vestmannaeyjum og því er óvenjulegt að sjá slíkt kvikindi þar, hvað þá um borð í fiskibáti. Menn brugðust hins vegar skjótt við og líklega var ævintýraferð minksins til Vestmannaeyja sú síðasta sem dýrið fór. […]

Minkur um borð í Stíganda VE

Í dag gerðist eitthvað sem ekki gerist á degi hverjum en minkur fannst um borð í togbátnum Stíganda VE, sem liggur nú við landfestar í Vestmannaeyjahöfn. Minkur er ekki landlæg plága í Vestmannaeyjum eins og víða um landið og því bæði óvenjulegt að sjá slíkt kvikindi þar, hvað þá um borð í fiskibáti. Menn brugðust […]

Landsmót Samfés gengur vel þrátt fyrir slæmt veður

Tæplega fjögur hundruð unglingar eru nú við leik og störf í Vestmannaeyjum en um helgina fer fram Landsmót Samfés. Í dag unnu krakkarnir í smiðjum, þar sem þau unnu í hópum að ákveðnum verkefnum, s.s. ljósmyndasmiðju, hárgreiðslusmiðju, sig-, klif- og sprangsmiðju. Eftir því sem blaðamaður komst næst skemmtu krakkarnir sér vel og létu vel af […]

Bændur létu vindgustinn ekkert á sig fá

Í dag tókst að hefja síðasta formlega golfmót tímabilsins, Bændaglímuna sem markar enda vertíðarinnar í golfinu hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja. Mótið átti upphaflega að fara fram laugardaginn 22. september en var frestað þá vegna veðurs. Veðrið í dag var reyndar ekkert sérstaklega gott fyrir golfíþróttina, sterkur vindur og kalt en kyflingarnir létu það ekkert á sig […]

Landssöfnun Kiwanis stendur sem hæst

Landssöfnun Kiwanishreyfingarinnar til styrktar geðsjúkum og aðstandendum þeirra, Lykill að lífi, stendur nú sem hæst. Um þúsund fótgönguliðar úr Kiwanisklúbbum um land allt ganga í hús, ásamt fjölmörgum aðstoðarmönnum sem leggja þeim lið við sölu K-lykilsins. Auk þess er sölufólk í verslunarmiðstöðvum og á öðrum fjölförnum stöðum, að því er fram kemur í tilkynningu. Landssöfnun […]

Grunaður um ölvun við akstur eftir bílveltu

Undir kvöldmat í gærkvöldi var lögregla kölluð út vegna útafakstur á Hamarsvegi, skammt utan við bæinn. Þar hafði ökumaður misst stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að bíllin fór út af veginum og fór eina veltu. Tveir voru í bílnum en sluppu að mestu ómeiddir frá veltunni. Ökumaðurinn er hins vegar grunaður um ölvun […]

Sunnlenska bókakaffið er eins árs

Sunnlenska bókakaffið er eins árs í dag, laugardag og það verður haldið upp á það klukkan tvö. Skáldin Matthías Johannesen og Þórunn Valdimarsdóttir heiðra okkur með upplestri og söngkonur stíga á stokk. (meira…)

�?rettán marka tap í Mosfellsbæ

Afturelding vann stórsigur, 42:29, á ÍBV þegar nýliðar N1-deildar karla mættust að Varmá í Mosfellsbæ í kvöld. Mosfellingar voru með örugga forystu frá upphafi til enda og einungis spurning um hversu stór sigur þeirra yrði. Staðan í hálfleik var 19:11, Aftureldingu í vil. Þetta var annar sigur Aftureldingar í deildinni en ÍBV liðið situr sem […]

Stórsigur Aftureldingar á ÍBV

Afturelding vann stórsigur, 42:29, á ÍBV þegar nýliðar N1-deildar karla mættust að Varmá í Mosfellsbæ í kvöld. Mosfellingar voru með örugga forystu frá upphafi til enda og einungis spurning um hversu stór sigur þeirra yrði. Staðan í hálfleik var 19:11, Aftureldingu í vil. Þetta var annar sigur Aftureldingar í deildinni en ÍBV liðið situr sem […]

Olíukyndingin fyllti húsið af reyk

Allt tiltækt slökkvi- og sjúkralið, auk lögreglu á Selfossi var kallað að húsinu Búðarstíg á Eyrarbakka rétt fyrir kl. 16 í dag. Talið var að eldur hefði komið upp í kjallara hússins en síðar kom í ljós að kveikt hafði verið á gamalli olíukyndingu, sem ekki hafði verið notuð í mörg ár. (meira…)

Vilja að sveitarstjórn endurskoði gögn

Rúmlega 40 íbúar og landeigendur í Flóahreppi afhentu sveitarstjórninni áskorun í síðustu viku þess efnis að sveitarstjórn fari fram á endurskoðun matsskýrslu fyrir virkjanir í Þjórsá. Íbúarnir telja að ný gögn um jarðfræði svæðisins hafi breytt forsendum verulega frá því að úrskurðir Skipulagsstofnunar lágu fyrir í ágúst 2003 enda var jarðfræði svæðisins ekki nógu vel […]

Myndir frá Sumarlokahófi ÍBV komnar á netið

Sumarlokahóf ÍBV var haldið með pompi og prakt á dögunum í Höllinni en þar var leikmönnum, forráðamönnum og almennum félagsmönnum boðið í mat og skemmtun en um 300 manns nutu veisluhaldanna. Myndum frá hófinu hefur nú verið komið fyrir í myndasafni www.sudurland.is en myndum frá lokahófi yngri flokkanna verður bætt við myndasafnið síðar í dag. […]

Hermann og Gunnar Heiðar báðir í landsliðshópnum

Hermann Hreiðarsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson eru báðir í 22ja manna landsliðshópi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari tilkynnti fyrr í dag. Íslenska liðið á tvo leiki fyrir höndum í undankeppni Evrópumótsins, gegn Lettlandi 13. október og Liechtenstein 17. október. Fyrri leikurinn fer fram á Laugardalsvellinum en sá síðari ytra. Hermann tekur út […]

Annar flokkur Selfoss komst upp í B-riðil

Sameinað lið Selfoss/KFR/Hamars og Ægis undir vinnuheitinu Selfoss varð í öðru sæti í sínum riðli í Íslandsmótinu í sumar og léku því til úrslita gegn Völsungi frá Húsavík í keppni um sæti í B-deildinni. Fyrri leiknum lauk með 4:1 sigri Selfyssinga á heimavelli en síðari leikurinn var æsispennandi og alls voru skoruð sjö mörk í […]

Afmæli og stjórnarskipti í Helgafelli

Um næsu helgi eða laugardaginn 6 október fara fram stjórnarskipti í Helgafelli en klúbburinn er 40 ára um þessar mundir og verður haldið upp á afmælið með veglegri dagskrá. Stjórnarskiptin fara fram uppi á nýjahrauni við minnisvarðann að fyrsta Kiwanishúsinu okkar sem jafnframt var fyrsta Kiwanishús í Evrópu. www.kiwanis.is   (meira…)

Gjöf til leikskólans á Laugalandi

Kvenfélagið Eining í Holtum hélt sinn árlega aðalfund laugardaginn 6. september sl. í Heklusetrinu að Leirubakka á Landi. Á fundinum var ákveðið að gefa leikskólanum á Laugalandi 100 þúsund króna gjöf til leikfangakaupa eða hvers sem leikskólastjóri telur að vanti fyrir börnin. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.