Sjoppueigandi handtekinn

Lögreglumenn á Selfossi handtóku sjoppueiganda á Selfossi fyrir að selja svokallað snuff-neftóbak í síðustu viku en það er ólöglegt hér á landi. Rekstri söluturnsins hefur verið hætt í kjölfarið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. (meira…)

Fjölgað í stýrihópi vegna Bakkafjöruhafnar

Samgönguráðuneytið hefur ákveðið að bæta við tveimur aðilum í stýrihóp vegna undirbúnings hönnunar og framkvæmda við gerð Bakkafjöruhafnar. Bæjarráð tók í gær fyrir á fundi sínum bréf þess efnis undirritað af samgönguráðherra, Kristjáni Möller en þeir Elliði Vignisson, bæjarstjóri og Róbert Marshall, aðstoðarmaður ráðherra taka sæti í hópnum. (meira…)

Ekki leikur unglingstúlkna

Fyrr í dag var slökkvilið Vestmannaeyja kallað út vegna bruna í húsi en bruninn reyndist enginn og aðeins lítilsháttar reykur. Samkvæmt þeim upplýsingum sem vefurinn fékk var talið að unglingsstúlkur hafi gert sér það að leik að setja klakapoka í örbylgjuofn þannig að reykur myndaðist en hið rétta er að um algjört óhapp var að […]

Fjölgun í stýrihóp um Bakkafjöruhöfn

Ákveðið hefur verið að fjölga í stýrihóp vegna undirbúnings hönnunar og framkvæmda við gerð Bakkafjöruhafnar, en bréf þess eðlis var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í hádeginu í gær. Þeir aðilar sem um ræðir eru Elliði Vignisson bæjarstjóri og Róbert Marshall, aðstoðarmaður samgönguráðherra. Formaður stýrihópsins er Eiríkur Bjarnason verkfræðingur í samgönguráðuneytinu og fyrir í […]

Slökkvilið Vestmannaeyja kallað út en ekkert tjón

Nú síðdegis var Slökkvilið Vestmannaeyja kalla út að Smáragötu 13. Þegar á staðinn var komið kom í ljós að enginn var eldurinn og lítill reykur. Unglingsstúlkur höfðu hins vegar gert það sér að leik að setja plastpoka með klökum í örbylgjuofn þannig að smávægilegur reykur myndaðist í húsinu. Ragnar Baldvinsson, slökkvistjóri sagði að í raun […]

Brandarar færa fé á heimalandið

Síðastliðinn sunnudag fóru rollubændur þeirra Brandara út í eyju að ná í það fé er hefur verið á beit í eynni í sumar. Var það mál manna að féð hafi komið fallegt á heimalandið eftir úthald sumarsins í Brandinu.   Brandarar komu í land með 1 hrút og 6 rollur og vildu rollubændur þeirra Brandara […]

Jón �?lafur fékk viðurkenningu frá Knattspyrnuþjálfarafélagi Íslands

Á bikarráðstefnu knattspyrnuþjálfararfélags Íslands, sem haldin var síðastliðna helgi í samvinnu við KSÍ. Við það tækifæri voru útnefndir þjálfarar ársins í Landsbankadeildum karla og kvenna og auk þess fengu tveir þjálfarar yngri flokka sérstaka viðurkenningu fyrir vel unnin störf. Annar þeirra var Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari hjá ÍBV. (meira…)

Blikur á lofti

Um fátt hefur verið meira rætt um í þjófélaginu heldur en uppákomuna í orkumálum Reykjavíkurborgar og deilurnar innan meirihlutans. Auðvitað er tekist á um það hvort opinbert fyrirtæki í eigu sveitarfélags eigi að taka þátt í áhætturekstri á erlendri grundu eða eigi eingöngu að sinna hluverki gagnvart þjónustu við íbúa sína.Það kom greinilega fram hjá […]

Frábærar móttökur Selfossliðsins er heim kom

Á annað þúsund manns tók á móti Selfossliðinu er heim var komið að norðan eftir síðasta leik liðsins í 2. deild síðast liðið laugardagskvöld í miðbæ Selfoss. Langþráður draumur er orðinn að veruleika og sæti í 1. deild staðreynd eftir 13 ára bið. (meira…)

Bestu meðmæli sem við getum fengið

Á einum besta veitingastað landsins Vox á Hilton Hótel Reykjavík er nú boðið upp á reykta ýsu á matseðlinum þeirra og er reykta ýsan framleidd af Grími Kokk og hans starfsfólki í eyjum. Veitingastaðurinn Vox er einn af albestu veitingastöðum landsins og er þetta mikil viðurkenning fyrir vörur Gríms. “Við erum mjög stoltir að Vox […]

Verslunarmannafélag Vestmannaeyja sameinast VR

Á aðalfundi Verslunarmannafélags Vestmannaeyja, VFV í kvöld var samþykkt að félagið myndi sameinast Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, VR. Tillaga stjórnar og trúnaðarráðs VFV þess efnis var flutt á aðalfundinum og samþykkt einróma eða með öllum 38 atkvæðum atkvæðabærra fundarmanna sem sóttu fundinn. Alls eru félagsmenn í VFV um 230 talsins en í VR eru félagsmenn um 27 […]

Vaxandi áhyggjur af sjófuglastofnum í Norðurhöfum

Norrænir sérfræðingar segja, að víðtækar umhverfisbreytingar, sem rekja megi til breytinga á loftslagi, hafi raskað fæðuvef sjófugla í Norðurhöfum. Síðustu ár hafi fuglum í sjófuglabyggðum fækkað og margir stofnar eigi erfitt með að koma ungum á legg. (meira…)

Tvívegis stöðvaður réttindalaus á ótryggðu bifhjóli

Það var öllu rólegra hjá lögregla í vikunni sem leið en síðustu tvær þar á undan. Hins vegar hafði lögregla í nógu að snúast að vanda við að aðstoða borgarana og halda uppi lögum og reglum. Einn var stöðvaður í tvígang fyrir akstur án réttinda á bifhjóli auk þess sem hjólið var óskráð og ótryggt. […]

Tveir grunaðir um ölvun við akstur

Tveir ökumenn voru stöðvarðir í síðustu viku vegna gruns um ölvun við akstur og hafa þá fimm ökumenn verið staðnir að akstri undir áhrifum áfengis á undanförnum þremur vikum, sem verður að teljast mikið miðað við stað eins og Vestmannaeyjar. Annars vegar var ökumaður staðinn að verki við hraðakstur á Friðarhafnarbryggju en hinn hafði misst […]

Nýjasta tækni í fjarskiptum?

Síminn hefur nú kynnt þriðju kynslóð farsíma, sem þykja mikið undur. Þannig heldur tæknin áfram að þróast. Hvar eða hvort henni lýkur einhverntímann veit enginn. Myndabandið sem hér er, gæti verið samskiptamáti framtíðarinnar. Hver veit, en þó frekar ólíklegt, – og þó? (meira…)

Helstu verkefni lögreglu frá 1. til 8. október 2007.

Það var öllu rólegra hjá lögreglu í vikunni sem leið en síðust tvær vikur á undan. Hins vegar hafði lögreglan í ýmsu að snúast að vanda við að aðstoða borgarana og halda uppi lögum og reglu. Ein eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu um helgina en gestur veitingastaðarins Lundans varð eitthvað ósáttur við að vera vísað […]

Vaxandi áhyggjur af sjófuglastofnum í Norðurhöfum

Víðtækar umhverfisbreytingar sem rekja má til breytinga á loftslagi hafa raskaðfæðuvef sjófugla í Norðurhöfum. Síðustu ár hefur fuglum í sjófuglabyggðum fækkað og margir stofnar eiga erfitt með að koma ungum á legg. Ótvíræðar en flóknar breytingar eru að eiga sér stað á vistkerfi sjávar sem undirstrikar enn frekar en áður þörf fyrir að stjórna betur […]

ÍBV féll úr leik fyrir B-liði Aftureldingar

Óhætt er að segja að karlalið ÍBV hafi ekki riðið feitum hesti frá viðureignum sínum um helgina í Mosfellsbæ. Fyrst töpuðu strákarnir fyrir A-liði Aftureldingar í 1. deildinni með þrettán mörkum, 42:29. Niðurlægingin var svo algjör daginn eftir þegar ÍBV tapaði fyrir B-liði Aftureldingar í bikarkeppninni, lokatölur urðu 29:27 og er ÍBV því úr leik. […]

Viltu skrá þig í upplýsingarit Vestmannaeyja 2008?

Viltu skrá þig í upplýsingarit Vestmannaeyja 2008? Viltu breyta upplýsingum um þig/ þína fjölskyldu í ritinu? Viltu taka út gömul númer? Ef svo er, þá er tækifærið núna! Hafðu samband í síma 866-6333 eða á netfangið margretros@vestmannaeyjar.is eða eyverjar@simnet.is og því verður kippt í liðinn.  Stjórn Eyverja (meira…)

Útlönd

Áðan þegar ég fór útí búð þá varð mér hugsað til samtals sem átti sér stað milli nokkurra fjölskyldumeðlima minna útí Danmörku um daginn, umræðuefnið var “að búa í útlöndum”. Þetta byrjaði með því að fyrsta ræðukona sagðist ekki geta flutt til útlanda því að hún gæti ekki drukkið mjólkina þar og það vantaði alla […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.