Hola í höggi og Albatros hjá Þorvaldi í Vestmannaeyjum

Þorvaldur Ægir Þorvaldsson fór holu í höggi í dag á Vestmannaeyjarvelli en hann sló draumahöggið á 15. braut sem er par 4 hola og 264 metra að lengd. Þorvaldur er í GV, en er fæddur í Borgarnesi, og notaði hann Callaway Fusion FT-3 dræver þegar hann sló upphafshöggið og sagði hann í samtali við mbl.is […]

ÍBV Íslandsmeistari í 7 manna bolta

Stelpurnar í 3. flokki gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í 7 manna bolta í dag. Eins og glöggir lesendur síðunnar hafa tekið eftir, fór úrslitakeppnin fram í Vestmannaeyjum um helgina við allra bestu aðstæður. Nokkuð rok var þó í gær en liðin náðu þrátt fyrir það að sýna glæsilega spilamennsku. Í dag […]

3. flokkur Íslandsmeistari í 7 manna fótbolta

3. flokkur kvenna tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu í 7 manna bolta en úrslitakeppnin fór fram í Vestmannaeyjum. Liðin fimm léku öll í einum riðli og spiluðu allir við alla en það lið sem hlaut flest stig varð Íslandsmeistari. Stelpurnar misstu niður þriggja marka forystu í fyrsta leiknum og gerðu jafntefli gegn Sindra […]

Björgunargálgi Gæfunnar skaut út gúmmíbjörgunarbáti

Þar sem Gæfan VE 11 lá mannlaus við bryggju skaut björgunargálgi skipsins björgunarbátnum út og rak björgunarbátnum í burtu frá Gæfunni.Rakarinn og rafvirkinn þ.e. Viktor Ragnarsson og Þórarinn Ólason fóru að slöngubát sínum og drógu gúmmíbjörgunarbátinn að bryggju það sem hann var hífður á þurrt land.   (meira…)

hinsta tuðruferðin

við gunni minn eigum ekki tuðru lengur…(snökt) en það þarf ekki að skæla yfir því lengi af því að stefnt er að því að kaupa nýja, stærri og kraftmeiri fyrir næsta sumar. og þá verður sko gaman! síðasta tuðruferðin okkar, áður en kaupin gerðust á eyrinni, var til dyrhólaeyjar. glöggskyggnir vita að dyrhólaey er við […]

Hver tekur ákvörðun um samgöngur Vestmannaeyja?

Það er greinilegt að mál málanna í eyjum þessa dagana eru samgöngumál enda er staða þeirra í dag skelfileg og bitnar ástandið mikið á fyrirtækjum í eyjum og auðvitað því fólki sem ætlar sér að ferðast til og frá Vestmannaeyjum. Samgönguráðherra er búinn að taka strokleður og þurrka út frekari rannsóknir á jarðgöngum milli lands […]

Náungakærleikur í Eyjum

Góðir nágrannar geta komið sér vel, eins og Jóhanna María Finnbogadóttir sem býr á Vestmannabraut í Vestmannaeyjum komst að. Jóhanna, sem er komin af léttasta skeiði, byrjaði að mála húsið sitt í gærmorgun en það er þriggja hæða og verkið því ekki auðvelt. Nágrannar hennar, sem eru meðal annars lögfræðingur, lögreglumaður, fréttamaður, skipstjóri, lundakarl, starfsmaður […]

Flottar hugmyndir … en

Ég er ánægður með bæjarstjórn Vestmannaeyja núna. Sérstaklega að þau skuli koma saman sem eitt. Tveir stórir pólar í pólitíkinni halda saman fund og kynna ítarlegar, róttækar og vel unnar tillögur að bættum hag okkar Eyjamanna. Það þarf samt alltaf að vera eitthvað “en” Það er greinilegt að fókusinn hjá bæjarstjórn snýr að atvinnulífinu. Það […]

Tillaga Eyjamanna skoðuð

Samgönguráðherra segir tillögu bæjarráðs Vestmannaeyja um að flýta gerð Bakkafjöruhafnar góða en nú þurfi að skoða hvort hún sé framkvæmanleg. Eftir að búið sé að útiloka gerð jarðganga sé nú hægt að beina öllum kröftum að gerða Bakkafjöruhafnar. Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar lagði í gær fram hugmyndir að mótvægisaðgerðum vegna niðurskurðar þorskkvóta á komandi fiskveiðiári. Helsta tillaga […]

Sigurður Ari stendur sig vel með Elverum

Eyjapeyinn Sigurður Ari Friðriksson leikmaður Elverum í Noregi lék um helgina með liði sínu á æfingamóti í Álaborg.Sigurður Ari og félagar byrjuðu á því að sigra Stavenger 24-22 og skoraði Sigurður þar 12.mörk. Elverum spilaði í gær við Arendal og vann Elverum þann leik 29-18 og Sigurður skoraði þar 4 mörk. Á þessu æfingamóti er […]

Steindautt 0-0 jafntefli á Selfossi

Selfyssingar og KS/Leiftur mættust í dag í toppslag 2. deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn var tilþrifalítill og markalaus, en bæði lið misnotuðu upplögð dauðafæri. Sævar Þór Gíslason fékk besta færi Selfoss en markvörður gestanna varði frá honum vítaspyrnu. (meira…)

Hamar í ágætri stöðu

Hamar frá Hveragerði er í ágætri stöðu eftir 2-1 sigur á Leikni Fáskrúðsfirði í úrslitakeppni 3. deildar karla í knattspyrnu á Grýluvelli í dag. Sveinn Þór Steingrímsson og Vladan Kostadinovic skoruðu mörk Hamars í síðari hálfleik en gestirnir komust yfir í fyrri hálfleik. (meira…)

�?ruggur sigur á KA

ÍBV sýndi í gærkvöldi að það er á útivelli sem hlutirnir gerast því strákarnir unnu öruggan sigur á KA, 0:2 á Akureyri. Í leikjum gærkvöldsins náði þróttur tveggja stigs forystu með því að bera sigurorð af Njarðvík á útivelli 1-0.Þróttur hefur hlotið 40 stig, en Grindavík er í 2. sæti með 38 stig og leik […]

Mælist enn til þess að Árni Mathiesen boði þingmenn til fundar

„Ég styð tillögurnar heils hugar. Staða sveitarfélaga í kjördæminu var döpur fyrir og kvótaskerðingin er nánast eins og högg undir beltisstað fyrir útvegsstaði okkar,“ segir Atli Gíslason þingmaður Vinstri grænna í Suðurkjördæmi. Á hann við tillögur sem bæjarstjórn lagði fram í gær sem mótvægisaðgerðir vegna kvótaskerðingarinnar. (meira…)

Youtube hornið

Þessi útgáfa þeirra félaga í Útgerðarfélaginu í glasi sé nægileg til að senda þá út fyrir Íslands hönd í Eurovision. Hannes og Hafþór fara hér hreinlega á kostum og eiga þeir félagar greinilega bjarta framtíð í söngheiminum. (meira…)

Afhverju.. Afhverju..

Afhverju …..þegar maður er kominn útúrtaugaður lengst inní búð þurfa börn endilega að fara á klósett, er það eitthvað geðheilsu test ? Þá gengur mar búðina aftur til baka eins og útþanin blaðra, skilar því sem komið var í körfuna og treðst inná morkið salernið. Þar tek ég upp sýklahræddu poppstjörnuna á þetta og opna […]

Lög fulla fólksins

Gaman að vafra um eyjan.is þegar maður hefur ekkert of mikið að gera. Sérstaklega er þetta dæmi sem þeir kalla BloggGátt afar skemmtilegt fyrirbæri. Þar rambar maður oft inn á hin skemmtilegustu blogg hjá fólki sem maður kann engin deili á. Á einu slíku ráfi mínu rakst ég á svolítið sniðuga hugmynd sem ég er […]

Hermann spilar á móti Chelsea í dag

Created by PhotoWatermark Professional

Hermann Hreiðarsson og félagar í Portsmouth spila í dag á móti Chelsea í enska boltanum á heimavelli Chelsea. Hemmi og félagar hafa byrjað frábærlega og eru þeir ósigraðir það sem af er móti. Hermann hefur spilað vel með Portsmouth frá því að hann samdi við liðið eftir að Charlton féll um niður úr úrvaldsdeildinni. Hannover […]

Tillögur að mótvægisaðgerðum fyrir Vestmannaeyjar:

Rúmlega tuttugu tillögurBæjarráð Vestmannaeyja hefur unnið að því hörðum höndum síðustu vikur og mánuði ásamt Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands að finna leiðir til þess að bæta upp þetta mikla tap bæjarfélagsins sem mun hljótast af skerðingunni. Niðurstaða þeirrar vinnu eru tuttugu og ein tillaga sem bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar leggur á borð til ríkisstjórnar Íslands. Fjórtán af þessum tillögum […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.