Fjölmenni á flóamarkaði

Fjöldi fólks lagði leið sína á flóamarkað í Kríumýri í Flóahreppi á laugardag. Þar var að finna föt, gamlar bækur, handverksmuni og margt fleira en hver sem var gat sett upp sölubás þennan daginn. (meira…)

Hámarkshraðinn lækkaður

Sýslumaðurinn á Selfossi hefur lagt til við embætti vegamálastjóra að hámarkshraði á Biskupstungnabraut við Borg í Grímsnesi verði lækkaður úr 90 km hraða niður í 70 km hraða. Sveitarstjórn Grímsnes og Grafningshrepps leggur áherslu á að tryggja fjármagn frá samgönguyfirvöldum fyrir hringtorgi á gatnamótunum við Borg. Slík framkvæmd er ekki inn á núgildandi vegaáætlun. (meira…)

Hrina skemmdarverka hélt áfram og þrír þjófnaðir

Það er helst að frétta hjá lögreglu að hrina skemmdarverka sem fór af stað helgina 18 til 19. ágúst hélt áfram fram eftir viku því tvisvar var tilkynnt um skemmdir á eignum til lögreglu í byrjun síðustu viku. Rúða var brotin í bifreið sem stóð við verkstæði Bílverks v/Flatir og tilkynnt var um rúðubrot í […]

Söngtónleikar á laugardaginn kl 16:00 í Akóges.

Næstkomandi laugardag ætla systurnar Erla Björg og Rannveig Káradætur að halda söngtónleika í Akóges. Erla Björg hefur verið búsett undanfarin ár í Salzburg í Austurríki þar sem hún stundar söngnám hjá pr. Mörtu Sharp og Dario Vagliengo. Rannveig Káradóttir stundar söngnám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Alinu Dubik og lýkur burtfararprófi þaðan í vor. Systurnar […]

Skerðing á þorskkvóta um 3900 tonn milli ára

Þegar rýnt er í tölur yfir úthlutað aflamark eftir heimahöfnum má sjá að heildar samdráttur í Vestmannaeyjum er á milli ára er 1.28% af heildarafla og í þorskígíldistonnum er skerðingin um 3.582.473 tonn.   2007-2008   2006-2007   Þorskur 8.071.188   11.995.992   Ýsa 13.419.473   12.590.154   Ufsi 10.304.155   10.732.704   Karfi 7.301.908   6.782.434 […]

Kári frá í einn til tvo mánuði

Kári Kristjánsson línumaður Hauka, missir að líkindum af upphafi Íslandsmótsins í handknattleik. Kári meiddist í leik með Haukum á æfingamóti á Selfossi um liðna helgi. Kári brákaðist á fæti, nánar tiltekið á utanverðri ristinni. Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, tjáði Morgunblaðinu í gær að Kári yrði væntanlega frá æfingum í 1-2 mánuði. Á meðan munu Haukar […]

Vestmannaeyjar fá næst mest úthlutað af kvóta

Vestmannaeyjar er næst kvótahæsta heimahöfnin á landinu í þorskígildistonnum samkvæmt nýjustu úthlutun. Aðeins Reykjavík fær fleiri þorskígildistonn eða 15,2% af heildarúthlutun fiskveiðiársins sem hefst 1. september. Til Vestmannaeyja koma um 12% þorskígildistonn sem úthlutað er og í þriðja sæti er Grindavík með 10,82% en þessar þrjár heimahafnir skera sig nokkuð úr. (meira…)

Tvílembum nú með Huginn VE.

Jæja þá erum við byrjaðir að tvílemba með strákunum á Huginn VE. Við græjuðum okkur í nótt og köstuðum svo um sjö í morgun. Sverrir Rúnars fór yfir um borð í Huginn til að sýna strákunum handbrögðin enda hafa þeir aldrei partrollað áður. Allt þetta gekk fínt og erum við með trollið okkar úti núna […]

Vel til fundið að leggja áherslu á uppbyggingu rannsókna- og þróunarstarfs

eyjar.net sendi út spurningar á nokkra bæjar- og sveitastjóra sem stýra sveitafélögum sem verða fyrir barðinu á niðurskurði aflaheimilda á þorski. Hér fyrir neðan birtum við svör Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra á Höfn í Hornafirði. Hvernig líst þér á þær tillögur sem að bæjarráð Vestmannaeyja leggur fram sem mótvægisaðgerðir vegna niðurskurðar á veiðiheimildum á þorski?Mér […]

Úthlutað aflamark eftir fyrirtækjum í upphafi fiskveiðiársins 2007/2008

HB Grandi er kvótahæsta útgerð landsins samkvæmt úthlutun Fiskistofu um aflamark komandi fiskveiðiárs. HB Granda fékk 30.306 þorskígildistonn úthlutað eða 10,06% af heildar úthlutun. Samherji fær úthlutað 21.500 tonnum eða 7,14% af heild og Útgerðarfélagið Tjaldur ehf. fær til ráðstöfunar 21.079 tonn eða 7%. Útgerð:   úthlutuð þoskígildistonn % af heildarafla Vinnslustöðin 11.147   3.70% Ísfélagið   […]

�?k á brott eftir að hafa ekið á rútu í þjóðgarðinum

Lögreglan á Selfossi tók tvo ökumenn fyrir meintan ölvunarakstur í vikunni. Annar þeirra var á ferð í þjóðgarðinum á Þingvöllum skömmu eftir hádegi á laugardag. Maðurinn hafði ekki meiri stjórn á bifreiðinni en það að hann ók á rútu sem var kyrrstæða á bifreiðastæði við Flosagjá. (meira…)

Reykjanesbrautin…staður fyrir vinningshafa Happaþrennunar !

Það er verið að vinna við það að tvöfalda hana alla leið eins og flest fólk veit sem fylgist með fréttum, það klárast 1.júlí 2008 vona ég. Sá kafli sem er tvöfaldaður er virkilega þægilegur og þar eru nánast enginn vandræði þegar kemur að því að víkja og halda sig hægra megin svo framarlega sem […]

Neitaði að hafa kastað nokkru frá sér við yfirheyrslu

Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af manni þar sem hann var á gangi á bílastæði við hótel Örk snemma á sunnudagsmorgun. Maðurinn reyndist nokkuð ölvaður. Þegar lögreglumenn höfðu tal af honum læddi hann hendi í vasa og þegar hann tók hana upp aftur sáu lögreglumenn að hann kastaði einhverju frá sér. (meira…)

Ekki öll nótt úti enn þrátt fyrir slæmt tap

Ísland tapaði á grátlegan máta fyrir Slóveníu í undankeppni EM í knattspyrnu í gær. Liðið fékk á sig sín fyrstu mörk í riðlinum og tapaði um leið sínum fyrstu stigum. „Við sóttum stanslaust allan leikinn en skoruðum ekki mörkin sem til þurfti. Við vorum líka óheppin að því leyti að við fáum á okkur tvö […]

Nýr ferða �?og menningarvefur um Vestmannaeyjar

Opnaður hefur verið glæsilegur ferða –og menningavefur um Vestmannaeyjar; www.VisitWestmanIslands.com , á þessu vefsvæði er hægt að finna allar þær nauðsynlegu upplýsingar um Vestmannaeyjar. (meira…)

Sektað fyrir 25 milljónir

Alls hafa 1100 ökumenn verið stöðvaðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli frá 1. júní til 26. ágúst á þessu ári. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu má áætla að hver sekt nemi um 22500 krónum sem gerir samtals tæplega 25 milljónir króna í ríkissjóð. (meira…)

Tillögurnar vel unnar hjá þeim og vel settar fram.

eyjar.net sendi út spurningar á nokkra bæjar- og sveitastjóra sem stýra sveitafélögum sem verða fyrir barðinu á niðurskurði aflaheimilda á þorski. Fyrstur til að svara var Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðar og birtum við svörin hans hér. Hvernig líst þér á þær tillögur sem að bæjarráð Vestmannaeyja leggur framsem mótvægisaðgerðir vegna niðurskurðar á veiðheimildum á þorski?Mér […]

Nýr ferða -og menningarvefur um Vestmannaeyjar

www.VisitWestmanIslands.com er ferða -og menningarvefur um Vestmannaeyjar þar sem ferðalangar ættu að geta fundið upplýsingar um allt það sem þurfa að vita, hvort sem það er gisting, flug, atburðir, saga, myndir og já allt milli himins og jarðar. www.VisitWestmanIslands.com er stílað inn á túristann þannig að lítið er um “óþarfa” upplýsingar á síðunni og upplýsingar […]

Nýr Gjábakkavegur gæti ógnað Surtsey

„Það er ekki mjög traustvekjandi ef á sama fundinum er eitt og sama landið með stað, sem er ekki nógu vel gætt, og um leið að tilnefna nýjan stað á skrána,” segir Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, starfsmaður heimsminjanefndar.„Það kæmi mér ekki á óvart ef fjallað yrði um þetta á sama fundinum. Það er þá sama nefndin […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.