Ærin Sóley ber lambi í sláturtíð

Þetta lamb fær alveg sérstakt atlæti,” segir Haukur Guðjónsson fjáreigandi á samyrkjubúinu Dallas í Vestmannaeyjum þar sem ærin Sóley bar óvænt hrútlambi í gær. Haukur segir Sóleyju bestu kindina sem hann hefur átt á aldarfjórðungsferli sem frístundabóndi. „Hún hefur fundið á sér að ef hún bæri í vor myndi lambið falla í haust. Nú fá […]
Miðaldra hjón misstu heimilið
Miðaldra hjón í Vestmannaeyjum fengu gistingu á vegum Rauða krossins í nótt eftir að miklar skemmdir urðu á húsi þeirra í bruna í gær. Að sögn Tryggva Ólafssonar lögreglufulltrúa var maðurinn uppi á lofti en konan ásamt gestkomandi konu inni í stofu þegar eldur gaus upp í steikarolíu í potti inni í eldhúsi á sjötta […]
Umbætur í miðbæ staðanna
Miklar umbætur verða gerðar í miðbæjum Eyrarbakka og Stokkseyrar gangi tillaga skipulags og byggingarnefndar Árborgar í gegn. Um er að ræða malbikun og endurbætur á umhverfi staðanna í samráði við íbúa bæjarins. (meira…)
Breytt í þágu þjóðgarðsins

Sveitarstjórn Skaftárhrepps hefur óskað eftir heimild frá Skipulagsstofnun til að endurskoða núgildandi aðalskipulag. Bjarni Daníelsson, sveitarstjóri, segir að verið sé að gera ráðstafanir til þess að taka við sívaxandi fjölda ferðamanna á svæðinu. (meira…)
Hvarvetna hlýja og gestrisni

Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, og eiginkona hans frú Kristín Guðjónsdóttir, vísiteruðu Skaftafellsprófastsdæmi dagana 18.-25. ágúst sl. Með þeim í för voru prófastshjónin í Vík, Haraldur M. Kristjánsson og Guðlaug Guðmundsdóttir. (meira…)
�?rennt slapp ómeitt út úr logandi húsinu

Núna síðdegis kom upp eldur í húsi númer 28 við Vesturveg í Vestmannaeyjum. Það kviknaði í út frá steikingarpotti. Þrennt var í húsinu þegar eldurinn kom upp og komust allir greiðlega út. (meira…)
Eldur í einbýlishúsi
Eldur kviknaði í einbýlishúsi í Vestmannaeyjum um kl 18 í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Eyjum voru 3 íbúar hússins heima þegar eldurinn kviknaði. Fólkið kom sér út og hringdi í neyðarlínu sem ræsti út slökkvilið. Vel gekk að slökkva eldinn og vinnur slökkvilið nú að því að reykræsta húsið. Lögreglan í Vestmannaeyjum segir […]
�?ungt haldinn eftir bílveltu
Tvítugur karlmaður liggur þungt haldinn á Landspítalanum í Fossvogi eftir að vörubíll valt við Hellisheiðarvirkjun á þriðjudag. Maðurinn, sem var einn á ferð, festist inn í vörubílnum þegar hann valt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir. (meira…)
Íkveikjualda á Selfossi

Slökkvilið var kallað út um fjögur leytið aðfaranótt miðvikudags vegna elds í blaðagám við Samkaup á Selfossi. Lögregla telur víst að kveikt hafi verið í gámnum og eru unglingar grunaðir um verknaðinn. Óvenju mörg sambærileg íkveikjumál hafa komið upp á Selfossi að undanförnu, segir lögregla. (meira…)
Greiða þarf við pöntun farseðla

Á fundi bæjarráðs í síðustu viku var tekið fyrir minnisblað frá Eimskip þar sem lagt er til að gerðar verði breytingar á sölureglum sem gilda vegna fargjalda með Herjólfi. Í minnisblaðinu er gert ráð fyrir að allir sem panta far, kojur og bílapláss greiði við pöntun. Einnig er gert ráð fyrir að miðar séu ekki […]
Blómaáhugakonur fundu stökkbreytt afbrigði af holurt

Glöggar blómaáhugakonur í Eyjum fundu plöntu sem þær könnuðust ekki við að hafa séð áður þegar þær voru á göngu á Nýja hrauninu fyrr í sumar. Þær höfðu samband við Margréti Lilju Magnúsdóttur, líffræðing, sem tók að sér kanna málið og nú hefur komið í ljós að hér var um stökkbreytt afbrigði af holurt að […]
Fjöldi áhugaljósmyndara mikill

Það færist í vöxt að almenningur eigi góðar myndavélar og síðustu ár hefur almenningur eignast stærri og stærri vélar með skiptanlegum linsum. Í dag eru þó nokkrir áhugaljósmyndarar í eyjum og fer þeim fjölgandi. Á netinu er hægt að sjá margar fallegar myndir frá þeim og birtum við hér lista yfir þá ljósmyndara sem eyjar.net […]
Bloggandi sjóarar á hafi úti.

Í dag býðst útgerðum sá möguleiki að koma upp nettengingu um borð í skip sín, nokkur skip í eyjum hafa komið upp þannig búnaði. Með þessu opnast sá möguleiki að áhafnir eða áhafnameðlimir geta leyft vinum og vandamönnum að fylgjast betur með lífinu um borð. www.huginn.is er líklega vinsælasta bloggsíða áhafna í dag enda eru hinir fjórir […]
Heildarkvóti á loðnu ákveðinn 308 þúsund lestir

Sjávarútvegsráðuneytið hefur að tillögu Hafrannsókna- stofnunarinnar ákveðið að heimilt verði að hefja loðnuveiðar 1. nóvember 2007. Bráðbirgðakvóti fyrir komandi vertíð hefur verið ákveðinn 205 þús. lestir og koma þar af rúmar 145 þús. lestir í hlut íslenskra loðnuskipa samkvæmt ákvæðum samninga um nýtingu loðnustofnsins. (meira…)
Gunnar Heiðar lánaður til Vålerenga

eyjar.net náðu tali af Gunnari Heiðari rétt áður en hann steig upp í flugvél á leið til Óslóar í Noregi, þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun og ef allt gengur eftir þá mun hann skrifa undir 10 mánaða lánssamning við úrvalsdeildarliðið Vålerenga. Gunnar Heiðar hefur verið að spila með þýska 1. deildarliðinu Hannover síðan […]
Sérsveitin gerði húsleit í Hveragerði og í �?lfusi

Lögregla á Selfossi naut aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra í dag þegar framkvæmd var húsleit hjá pari á þrítugsaldri í Hveragerði auk þess sem leitað var á vinnustað þeirra í Ölfusi. Þetta kemur fram á visir.is og sagt að lögregla verjist frétta af málinu. Aðspurð hversvegna sérsveitin hafi verið kölluð til segir lögregla að það hafi verið […]
Hlutir sem tengjast Vestmannaeyjum á www.ebay.com

Á uppboðsvefnum www.ebay.com er hægt að finna allt milli himins og jarðar. Auglýstir hafa verið fótboltamenn til sölu eftir að þeir áttu lélegan dag fyrir sitt lið, ferðir til tunglsins, flugmiðar og málverk.Hlutir sem tengjast Vestmannaeyjum eru einnig til sölu á þessum vinsælasta uppboðsvef. Þetta gamla póstkort af Vestmannaeyjum er til sölu á www.ebay.com. Póstkortið […]
�?tivistarreglur breytast 1. september

Lögreglan vill minna foreldra og forráðamenn barna yngri en 16 ára á að nk. laugardag þann 1. september breytast útivistareglur barna og ungmenna þannig að börn 12 ára og yngri, mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 20:00 nema í fylgd með fullorðnum. (meira…)
Helstu verkefni lögreglu frá 20 ágúst til 27. ágúst 2007

Það er helst að frétta hjá lögreglu eftir sl. viku að þessi hrina skemmdarverka sem fór af stað um helgina 18-19. ágúst sl. hélt eitthvað áfram fram eftir viku því tvö önnur eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu í byrjun síðustu viku. Er þarna um að ræða rúðubrot í bifreið sem stóð við verkstæði Bílverks v/Flatir. […]
Leitað nánar á Svínafellsjökli
Í gær fann hópur sem var á ferð neðst í Svínafellsjökli muni sem talið er að tilheyri þýsku ferðamönnunum tveimur sem leitað var að í síðustu viku. Þyrla LHG, TF-Eir, er farin á staðinn með fulltrúa frá Ríkislögreglustjóra auk þess sem fjallamenn úr björgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Höfn eru á staðnum. (meira…)