Starfsemi Ísfélagsins af stað eftir sumarlokun

Starfsemi í frystihúsi Ísfélagsins í Vestmannaeyjum hófst aftur á mánudaginn eftir venjubundna sumarlokun. Fram að síldarvertíð verður keyrt á bolfiskvinnslu í frystihúsinu en á vertíðinni verður að venju fryst síld í húsinu. Í frystihúsinu á Þórshöfn var líka lokað megnið af ágúst en vinnsla á kúffiski hefst þarf aftur í byrjun september og verður unnið […]

Gunnar Heiðar gefur Gunnari Karli landsliðstreyju.

Í dag afhenti ritstjóri www.eyjar.net Kjartan Vídó Gunnari Karli Haraldssyni fótboltaáhugamanni miklum áritaða landsliðstreyju sem Gunnar Heiðar Þorvaldsson gaf.Gunnar Heiðar og Gunnar Karl er miklir félagar og hefur Gunnar Heiðar áður gefið Gunnari Karli treyjur frá þeim liðum sem hann hefur leikið með. Treyjan sem Gunnar Karl fékk í dag var landsliðstreyjan sem Gunnar Heiðar […]

Svar til bæjarstjórans í Vestmannaeyjum.

Af hverju vill Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum ekki ræða kosningar um samgöngumál í Eyjum. Það eru mjög skiptar skoðanir í Vestmannaeyjum um Bakkafjöruhöfn. Fólk úti í  Eyjum ætti að fá að kjósa um tvo valkosti, annars vegar um höfn í Bakkafjöru eða hraðskreiðara og stærra skip sem sigldi til Þorlákshafnar á tveimur tímum.  Það eru skiptar […]

Hjónin að Vesturvegi 28 misstu allt innbú sitt sem var ótryggt

Í brunanum sem varð að Vesturvegi 28 í Eyjum síðasta miðvikudag, skemmdist húsið mjög mikið. Einnig brann mikið af innbúinu eða það skemmdist af sóti og reyk og er flest af því ónýtt. Einar Guðlaugsson og Sólrún Elídóttir bjuggu í húsinu. Sólrún sagði í viðtali við eyjafrettir, að þau hafi ekki verið búin að tryggja […]

Svar til bæjarstjórans í Vestmannaeyjum.

Af hverju vill Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum ekki ræða kosningar um samgöngumál í Eyjum. Það eru mjög skiptar skoðanir í Vestmannaeyjum um Bakkafjöruhöfn. Fólk úti í Eyjum ætti að fá að kjósa um tvo valkosti, annars vegar um höfn í Bakkafjöru eða hraðskreiðara og stærra skip sem sigldi til Þorlákshafnar á tveimur tímum. (meira…)

Hermann og Gunnar Heiðar á sínum stað í landsliðshópnum

Eiður Smári Guðjohnsen er í 22ja manna landsliðshópi í knattspyrnu sem Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari tilkynnti nú í hádeginu fyrir EM-leikina gegn Spáni og Norður-Írlandi sem fara fram 8. og 12. september. Eiður Smári er meiddur og ekki var talið að hann myndi spila leikina. Tveir nýliðar eru í hópnum, FH-ingarnir Ásgeir Gunnar Ásgeirsson og Sverrir […]

�?ttarmót Andersena í Eyjum um helgina

Um helgina halda Andersenar ættarmót í Eyjum, þ.e. afkomendur Danska Péturs, sem svo var nefndur og Jóhönnu Guðjónsdóttur fyrri konu hans og Magneu Jónsdóttur seinni konu hans. En heimili þeirra var að Sólbakka við Hásteinsveg. Ættboginn sem frá þeim er kominn er orðinn mjög stór og verða um 180 manns á ættarmótinu. Stór hluti hans […]

Sósíalismi Sjálfstæðismanna

Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar kynnti í síðustu viku ýmsar mótvægisaðgerðir fyrir atvinnulífið vegna niðurskurðar á þorskkvótanum.  Heilmikið af tillögunum byggðu á þátttöku ríkissins en bærinn ætlar greinilega að leggja fram sitt.   Enda allir vasar fullir af Hitaveitu-peningum. En er sú staðreynd að bærinn og ríkið eigi að draga vagninn í atvinnulífinu ekki soldið sósíalistískt hugsun?  Ég […]

Eiður Smári í landsliðshópnum og tveir nýliðar úr FH

Created by PhotoWatermark Professional

Eiður Smári Guðjohnsen er í 22ja manna landsliðshópi í knattspyrnu sem Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari tilkynnti nú í hádeginu fyrir EM-leikina gegn Spáni og Norður-Írlandi sem fara fram 8. og 12. september. Eiður Smári er meiddur og ekki var talið að hann myndi spila leikina. Tveir nýliðar eru í hópnum, FH-ingarnir Ásgeir Gunnar Ásgeirsson og Sverrir […]

Sumarhús gjörónýtt eftir eldsvoða

Um klukkan níu í morgun var Slökkviliðið á Selfossi kallað að alenda sumarbústað í Norðurkotslandi í Grímsnesi. Þegar reykkafarar réðust til inngöngu í bústaðinn varð eldsprenging en slökkviliðsmennina sakaði ekki. Bústaðurinn var mannlaus en hann er gjörónýtur. (meira…)

Taka á móti Víking �?lafsvík í kvöld

Í kvöld klukkan 18.30 tekur ÍBV á móti Víking frá Ólafsvík á Hásteinsvellinum. Eins og svo margoft hefur komið fram áður eiga Eyjamenn enn möguleika á sæti í úrvalsdeild, þó langsóttur sé, og því mikilvægt að landa þeim stigum sem í boði eru. Í gær sigraði Fjölnir Njarðvík 2:1 og færðist um leið skrefi nær […]

Holland á döfinni

Þá er bara alveg að koma að þessu, tveir tímar þar til ég fer í Herjólf og svo er flogið út til Eindhoven kl. 7 í fyrramálið. Þetta er frekar skrýtin upplifun; ég er búinn að vera ætla að gera þetta í fimm ár, með öllum þeim áhyggjum og efasemdum sem svo langur tími hefur […]

ÍBV – Víkingur Ólafsvík í kvöld á Hásteinsvelli

Created by PhotoWatermark Professional

Í kvöld klukkan 18:30 mætast á Hásteinsvelli lið ÍBV og Víkingur Ólafsvík. Staða ÍBV í deildinni er ekki sú sem menn vonuðust eftir en samt sem áður en er enn möguleiki að komast upp í úrvalsdeild að ári. ÍBV vann sinn útileik gegn Víking Ólafsvík 0-1 með marki frá Yngva Borgþórssyni.www.eyjar.net hvetja eyjamenn að mæta […]

Af litlum neista

Hlutabréf geta aukið verðgildið sitt og þau geta líka hrapað í verðmætum og því er hlutabréfamarkaðurinn nokkuð erfiður yfirferðar. Bankarnir skila milljörðum í hagnað, krónan er ýmist sterk eða veik, loðnan veiðist misvel og allt hefur þetta áhrif á gang mála í efnahagsmálum þjóðarinnar. En hversu mikil virði er bréfaklemma? Og hversu mikið getur ein […]

Sjávarútvegur viðheldur ekki byggð

Sjávarútvegur getur ekki tryggt núverandi byggðamynstur, sem myndaðist við allt aðrar aðstæður en nú eru uppi, á tímum þegar strandsiglingar voru mikilvægari samgönguleið en vegakerfi landsmanna. Þetta kom fram í máli Ásgeirs Jónssonar, forstöðumanns greiningardeildar Kaupþings banka, á málþingi um sjávarútvegsmál og byggðaþróun sem Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál stóð fyrir í Háskóla Íslands í […]

Alþjóðlegt samráðsþing um jarðvegsvernd, samfélög og hnattrænar breytingar

Af tilefni aldarafmælis landgræðslustarfs á Íslandi efnir Landgræðsla ríkisins til alþjóðlegs samráðsþings um jarðvegsvernd, samfélög og hnattrænar breytingar á Selfossi 31. ágúst – 4. september 2007. Samstarfsaðilar eru m.a. Landbúnaðarháskóli Íslands, Háskóli Íslands, Bændasamtök Íslands og Rannís, auk margra alþjóðlegra stofnana, samninga og samtaka, s.s. Háskóla Sameinuðu þjóðanna, Þróunarstofnunar Sþ og Alþjóðlegu Bændasamtakanna. Dagskráin er […]

Friðrik Stefánsson spilaði sinn 104 landsleik fyrir Ísland

Eyjamaðurinn Friðrik Stefánsson körfuknattleiksmaður náði þeim áfanga í gærkvöldi að leika sinn 104 landsleik fyrir Íslands hönd. Friðrik lék sinn fyrsta leik árið 1997 en Friðrik byrjaði sinn feril hjá Tý og var fyrsti unglingalandsmaðurinn í körfuknattleik sem hafði ekki leikið deildarleik með liði áður en hann var kallaður í unglingalandsliðshópinn. Friðrik hefur undanfarin ár […]

Nýr ferða -og menningarvefur um Vestmannaeyjar

VisitWestmanIslands.com er ferða -og menningarvefur um Vestmannaeyjar þar sem ferðalangar ættu að geta fundið upplýsingar um allt það sem þurfa að vita, hvort sem það er gisting, flug, atburðir, saga, myndir og já allt milli himins og jarðar. www.VisitWestmanIslands.com er stílað inn á túristann þannig að lítið er um óþarfa” upplýsingar á síðunni og upplýsingar […]

Söngsysturnar Erla Björg og Rannveig í Akóges á laugardaginn

Næstkomandi laugardag kl. 16.00 ætla systurnar Erla Björg og Rannveig Káradætur að halda söngtónleika í Akóges. Erla Björg hefur verið búsett undanfarin ár í Salzburg í Austurríki þar sem hún stundar söngnám hjá pr. Mörtu Sharp og Dario Vagliengo. Rannveig Káradóttir stundar söngnám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Alinu Dubik og lýkur burtfararprófi þaðan í […]

Hömlur á ferðafrelsi okkar Eyjamanna?

Ég hef verið að hugsa um nýju reglur Eimskips undanfarið og verð að viðurkenna að því meira sem ég hugsa um þetta, því reiðari verð ég bæjaryfirvöldum að hafa samþykkt þessa vitleysu. Það getur margt gerst á tveimur dögum sem geta breytt ferðatilhögun okkar. Eins tel ég að þetta verði til að drepa endanlega niður […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.