Höfuð, herðar, hné og ………..

Gröfustrákarnir voru lygeglad þegar þeir hófu vinnu við nýja frystigeymslu Vinnsló í morgun. Stebbi Jónasar kom þá á hlaupahjólinu sínu, sem hann fékk í skóinn fyrir jólin 2005, og spurði um teikningarnar og framkvæmdaleyfið fyrir þessu en þá sögðu grafararnir að Binni í Vinnsló væri búin að fá þennan draum og það dyggði til þess […]

Vel heppnaðir tónleikar á laugardaginn

Á laugardaginn héldu systurnar Erla Björg og Rannveig Káradætur söngtónleika í Akóges. Vel var mætt og voru yfir 50 áhorfendur á tónleikunum. Sungu þær systur bæði ljóð og aríur eftir Mozart, Grieg, Puccini, R.Strauss, Dvorak, Karl Ó. Runólfsson og svo enduðu þær tónleikana með laginu Heima eftir Oddgeir Kristjánsson. Það var að heyra á Erlu […]

Mikill karakter að koma til baka

Eyjamenn unnu góðan sigur á Víkingi frá Ólafsvík á föstudaginn 3-1. Þeir lentu þó í mesta basli með Ólafsvíkinga sem náðu yfirhöndinni í leiknum og voru yfir í hálfleik 0-1. En strákarnir sýndu frábæran karakter í miklu rigningarveðri og snéru taflinu sér í vil. Fyrir leiktíðina hefði þessi leikur líklega skrifast sem algjör skyldusigur en […]

Banastuð á busaballi

Liðlega fimm hundurð ungmenni skemmtu sér á árlegu busaballi Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurlands í Þingborg í gærkvöldi. Páll Óskar tróð upp og var stemningin á dansgólfinu svakaleg. Skoða myndir. (meira…)

Álsey VE 2 opin almenningi í dag

Í dag milli 14:00 – 16:00 er nýjasta skip eyjaflotans Álsey VE 2 opið almenningi til sýnis og er gestum boðið að þiggja léttar veitingar um borð. Skipið er hið glæsilegasta og er þetta góð viðbót við skipaflota eyjamanna. Samkvæmt upplýsingum frá Ísfélaginu er gert ráð fyrir því að skipið haldi á miðinn á næsti dögum til veiða. […]

�?gmundur Jónasson vill skoða réttindi starfsfólks sjúkrahúsa

Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sagði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að í gær hafi borist á sitt borð samningur íslensks sjúkraliða sem starfi hjá starfsmannaleigu, sem hvorki standist landslög né lágmarkskjör. Hann segir fulla ástæðu til að skoða hvort réttindi íslenskra, jafnt sem erlendra, starfsmanna sjúkrahúsanna séu virt, en málið verður tekið upp í félagsmálanefnd Alþingis á […]

Bókunarreglur Herjólfs

Nýverið sendi framkvæmdastjóri Herjólfs minnisblað inn á fund bæjarráðs vegna fyrirhugaðra breytinga á bókunarreglum Herjólfs. Bæjarráð gerði ákveðnar breytingar á orðalagi en samþykkti fyrir sitt leiti þær reglur sem Herjólfur ætlar að setja farþegum sínum. Ég ætla í þessari sunnudagshugvekju ekki að fjalla um þessar fyrirhuguðu breytingar heldur fjalla um aðstöðu sem ég komst í síðastliðinn […]

Álsey VE 2 komin til heimahafnar í fyrsta sinn

Síðdegis í dag kom nýtt skip Ísfélagsins til heimahafnar í fyrsta sinn eftir siglingu frá Kanaríeyjum, þaðan sem skipið var keypt. Heimsiglingin gekk vel en næstu daga verður unnið að smávægilegum endurbótum áður en skipið heldur til veiða. Skipstjóri á hinu nýja skipi verður Eyjamaðurinn Ólafur Á. Einarsson. (meira…)

Álsey VE 2 komin til heimahafnar

Það var rétt yfir 18:00 í dag sem Álsey VE 2 lagðist að bryggju í Vestmannaeyjum. Álsey er nýtt skip í eigu Ísfélags Vestmannaeyja, skipið er smíðað í Noregi 1987 og er ca 66 metra að lengd og ca 13 að breidd. Skipstjóri á Álsey er Ólafur Á. Einarsson og mun skipið fljótlega halda til veiða. […]

Fjölmenni í Brúarhlaupi Selfoss

Um 450 manns tóku þátt í árlegu Brúarhlaupi Selfoss í dag. Valur Þórsson sigraði í hálfmaraþonhlaupi karla, annar var Birkir Marteinsson og Guðmann Elísson varð þriðji en allir eru þeir í ÍS. (meira…)

Húsnæðisvandi leystur

Árlegt busaball Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurlands verður haldið í Þingborg í kvöld. Það var á hrakhólum eftir að skemmtistaðnum Tony´s County í Ölfusi var lokað á þriðjudag í kjölfar rassíu fíkniefnalögreglu og heilbrigðiseftirlitsins. (meira…)

Mótorhjólamaður slasaðist

Ökumaður bifhjóls var fluttur slasaður á Heilbrigðisstofnun Suðurlands eftir að hann ók aftan á bifreið á Austurvegi á Selfossi í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu stöðvaði bifreiðin skyndilega við gangbraut og við það varð óhappið. (meira…)

Nýtt skip Ísfélagsins væntanlegt síðdegis í dag

Álsey VE 2, uppsjávartogskipið sem Ísfélagið keypti nýlega, er væntanlegt til Vestmannaeyja frá Kanaríeyjum síðdegis í dag, laugardag. Skipið var smíðað árið 1987 í Flekkefjord í Noregi og er vel búið tækjum. Það er 65,65 metra langt og 12,60 metra breitt og burðargeta þess er um 2.000 tonn í 9 tönkum með öflugu kælikerfi. Ólafur […]

�?lvaður piltur velti bifreið

Ölvaður ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Hamarsvegi við Týsvöllinn svokallaða í Vestmannaeyjum um þrjúleytið í nótt. Atvikið varð um fjögurleytið í nótt, en dansleikur á vegum framhaldsskólans í bænum fór fram í gærkvöldi í Týsheimilinu. Enginn meiddist við óhappið. (meira…)

Sveitakeppni öldunga í golfi.

Í dag leikur sveit öldunga Gólfklúbbs Vestmannaeyja um 5-6 sætið í úrslitum í sveitakeppni Öldunga sem fram fer á Grafarholtsvelli Golfklúbbs Reykavíkur. Í sveit Gólfklúbbs Vestmannaeyja eru:   Sigurður Þ. Sveinsson, Bergur Sigmundsson, Atli Aðalsteinsson, Grétar Jónatansson, Sigurður Guðmundsson og Ragnar Guðmundsson. Liðstjóri er Gísli Jónasson. (meira…)

Ökuferð endaði inn á Týsvelli

Það var rétt fyrir fjögur í nótt er bílvelta varð við Týsvöllinn og endaði bílinn það á hvolfi. Mikil mildi var að ekki urðu  slys á fólki en talið er að ökumaður jeppans hafi verið undir áhrifum áfengið. Í Týsheimilinu var hið svo kallaða Busaball nemendafélags framhaldsskólans og af frásögn lögreglunar fór sá dansleikur vel […]

Dala-Rafn eitt útgerðarfélaga í mál

Dala-Rafn er eina útgerðarfélagið sem hefur ákveðið að höfða mál á hendur olíufélögunum Olís, Skeljungi og Keri, áður Olíufélaginu, vegna samráðs olíufélaganna á árunum 1993 til og með meirihluta árs 2001.Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Útgerðarfélagsins Brims, segir málsókn að hálfu fyrirtækisins hafa verið slegna út af borðinu að athuguðu máli. „Lögfræðingar töldu það ekki borga sig […]

Sigur á heimavelli

ÍBV lék í kvöld á Hásteinsvelli á móti Víking frá Ólafsfirði í grenjandi rigningu. ÍBV hefur ekki gengið sem best á heimavelli í sumar og eftir fyrri hálfleikinn þá var útlitið ekki bjart fyrir ÍBV. Víkingur komst fljótt í fyrri hálfleik yfir með marki frá Josip Marosevic. Það var greinilegt að Heimir hafði lesið vel […]

Bíll festist með tvo um borð í Skillandsá

Klukkan 17.30 í dag var Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni kölluð út vegna bifreiðar sem var föst í Skillandsá sem er við bæinn Miðdal í Bláskógarbyggð. Tveir menn voru í bílnum og þegar björgunarsveitin kom á staðinn voru þeir orðnir blautir þar sem flætt hafði inn í bílinn. (meira…)

ÍBV komið upp í fjórða sæti

ÍBV og Fjarðarbyggð höfðu sætaskipti í kvöld þegar fjórir leikir fóru fram í 18. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Eyjamenn unnu Víking Ólafsvík 3:1 eftir að staðan í hálfleik var 0:1 gestunum í vil. Í síðari hálfleik léku Eyjamenn mun betur og uppskáru eins og til var sáð. Annars voru aðstæður allar hinar erfiðustu, […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.