Aðeins 44 kylfingar skráðir til leiks á síðasta stigamótið

Næst síðasta mótið á Kaupþingsmótaröðinni í golfi fer fram um næstu helgi í Vestmannaeyjum og verða leiknar 36 holur, 18 á laugardag og 18 á sunnudag. Það vekur athygli að í dag eru aðeins 33 karlar skráðir til leiks og 11 konur og hafa aldrei verið færri keppendur á stigamótum ársins. Forsvarsmenn Golfklúbbs Vestmannaeyja og […]
Bruggari handtekinn

Lögregla handtók í síðustu viku karlmann á þrítugsaldri fyrir landabrugg. Við húsleit á heimili hans fannst búnaður til bruggunar en einungis tveir lítrar af landa með um 40% vínandastyrkleika, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. (meira…)
Guðjón Hjörleifsson stofnar fasteigna- og skipasölu fyrirtæki

Guðjón Hjörleifsson fv. bæjarstjóri / alþingismaður opnar nk. föstudag fyrirtækið Heimey ehf. þjónustuver. Starfsemin verður til húsa að Bárustíg 1 (áður Bjössabar og Turninn). Guðjón er löggiltur fasteigna- og skipasali. Einnig mun hann vera með umboð fyrir tryggingafélagið Vörður tryggingar, en fulltrúi Varðar tryggingar verður á staðnum á föstudaginn. Eyjar.net verður með viðtal við […]
Körfubolti: Æfingatafla fyrir 2007 – 2008

Æfingar í körfuboltanum eru að byrja og eru allir hvattir til þess að mæta og prófa. Þjálfari körfunnar er sem áður Björn Einarsson en hann skrifaði nýverið undir 2 ára samning við Körfuknattleiksdeild ÍBV. Björn hefur verið að þjálfa í Vestmannaeyjum undanfarinn 2 ár við góðan árangur og er yngri flokka starfið í miklum vexti […]
Eldsupptök rakin til rafmagns

Eldsupptök eru rakin til rafmagns í sumarbústað Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra í Kópavogi, í Norðukotslandi í Grímsnesi síðast liðinn föstudag. Tæknideild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu hefur enn ekki skilað endanlegri niðurstöðu en hallast að rafmagni frekar en öðru. (meira…)
Allir í skólabúning

Skólabúningar hafa verið teknir í notkun við Grunnskóla Vesturbyggðar á Bíldudal og mættu nemendurnir búningunum í morgun. Nemendurnir eru ekki þeir einu sem mæta í búningum í skólann, starfslið hans hefur einnig fengið búninga. Það er foreldrafélag Bíldudalsskóla sem stendur fyrir framkvæmdinni. „Við duttum bara niður á þessa hugmynd í sumar”, segir Sólrún Aradóttir formaður […]
Minnismerki afhjúpað í dag úti á Eiði
Í dag klukkan 16.00 verður afhjúpað úti á Eiði minnisvarði en það er Síminn sem gefur merkið. Öllum þeim sem áhuga hafa á að vera viðstaddir afhjúpun minnisvarðans eru hvattir til að láta sjá sig. (meira…)
Erfitt að manna stöður lögreglumanna um land allt

Síðustu daga hafa fjölmiðlar fjallað um þann vanda sem steðjað hefur að lögregluembættum í landinu að manna sínar stöður. Í eyjum eru tvær stöður lausar og ein losnar til viðbótar í nóvember.www.eyjar.net hafði samband við Jóhannes Ólafsson yfirlögregluþjón í Vestmannaeyjum og spurði hann út í stöðuna í eyjum. Síðustu daga hefur verið fjallað í fjölmiðlum […]
Þykir afar líkur Morten Gamst

Norskir fjölmiðlar hafa fjallað um frumraun Gunnars Heiðars Þorvaldssonar í norska boltanum um helgina. Dagblaðið nefnir hversu mikið hann líkist Morten Gamst Pedersen sem spilar nú með Blackburn. Gunnar Heiðar spilaði fyrstu 63 mínúturnar í 3-2 sigri Vålerenga á Start. „Ég er sáttur við Gunnar Heiðar. Hann byrjaði mjög vel en síðan dró aðeins af […]
Kertaverksmiðjan Heimaey

www.eyjar.net ætlar vikulega að kynna fyrirtæki og þjónustu í eyjum. Að þessu sinni kynnum við Kertaverksmiðjuna Heimaey en það fyrirtæki hefur fært landsmönnum ljós inn í lífið í fjölda ára.Með kynningu á fyrirtæki vikunnar viljum við á www.eyjar.net vekja athygli á þeim fyrirtækjum og þjónustu sem eru starfandi í Vestmannaeyjum. Helsta verkefni verksmiðjunnar er framleiðsla […]
Eitt af því besta sem gert hefur verið í Vestmannaeyjum á síðustu árum var að gerast aðili að Hitaveitu Suðurnesja.

Eyjar.net heldur áfram að heyra í valinkunnum Eyjamönnum varðandi hvaða möguleika þeir sjá í stöðunni með söluhagnaðinn af Hitaveitu Suðurnesja. Að þessu sinni heyrðum við í Sigurði Jónssyni fyrrverandi bæjarfulltrúa í Vestmannaeyjum og núverandi sveitastjóra í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Spurningin er sú sama og áður:Ef þú værir bæjarstjórnin hvað myndirðu leggja til að gert yrði við […]
Reyndi að bora út læsingu um miðjan dag

Um miðjan dag á laugardag var maður handtekinn þegar hann reyndi að komast inn í íbúð í Áshamri með því að bora út læsinguna. Taldi hann sig vera í rétti við athæfi sitt enda ætti sonur hans íbúðina en leigjandi íbúðarinnar hafði ekki greitt leiguna og vildi hann leigjandann út. Þar sem maðurinn fór ekki […]
Ungir ökumenn óábyrgir í umferðinni

Eins og áður hefur komið fram valt bifreið inn á Týsvöllinn að morgni laugardags. Eigandi bifreiðarinnar ók henni samkvæmt vitnum og var hann töluvert undir áhrifum áfengis. Eigandinn var aðeins 17 ára og hafði verið með ökuréttindi í heila tíu daga. Engin slys urðu á fólki en bifreiðin skemmdist töluvert. (meira…)
�?gnaði gestum með hnífi og braut rúðu í vitlausu húsi

Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í nógu að snúast í síðustu viku. Meðal annars var lögreglan kölluð út rétt um miðnótt laugardags en þá hafði maður ógnað fólki með hnífi og brotið rúðu. Gaf maðurinn þá ástæðu að gestir á heimili hans hafi neitað að fara út og hafi það endað með átökum á milli hans […]
Opna skoska 2007 hjá golfklúbbnum

Í gær sunnudag var keppt um The Schofield quake sem að eyjavinurinn Stephan Schofield gaf gólfklúbbnum í tilefni mótsins. Félagar í GV hafa farið í golfferðir til Skotlands í tvo skipti og nú var ákveðið að flytja skosku stemmninguna til eyja. GV fékk sekkjapípuleikarann Edwart Wighton frá Dundee til að koma til eyja og […]
Berglind Ómarsdóttir klæðskeri ársins

Um helgina var haldið í Laugadalshöllinni Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara innan Samtaka iðnaðarins – The Icelandic Skills Competition. Berglind Ómarsdóttir klæðskeri fékk eftirfarandi viðurkenningar: Klæðskeri ársins 2007 Var í tískuteymi ársins 2007 Viðurkenningu úr minningarsjóði Indriða Guðmundssonar klæðskera. Það má segja að Berglind hafi fengið fullt hús að þessu sinni, og er þetta mikil viðurkenning […]
Gunnar Heiðar fær ekki háa einkunn eftir fyrsta leikinn

Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék í fyrsta sinn sem norska liðinu Vålerenga í gær er liðið sigraði Start, 3:2, á heimavelli á Ullevaal í Ósló. Árni Gautur Arason var í marki Vålerenga en Jóhannes Harðarson var í leikmannahópi Start en kom ekki við sögu. Gunnar Heiðar fór af leikvelli á 66. mínútu en hann fær ekki […]
200-300 bíla umferð á dag vegna Bakkafjöruhafnar

Gert er ráð fyrir 200-300 bíla umferð á Bakkafjöruvegi, sem verður ríflega ellefu kílómetra langur frá þjóðvegi eitt að fyrirhugaðri ferjuhöfn í Bakkafjöru. Þar af verða um 5% þungaflutningar. Þetta kemur fram í drögum að tillögu að matsáætlun vegna Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar og grjótnáms á Hamragarðaheiði í Rangárþingi eystra, sem Vegagerðin hefur birt. (meira…)
200-300 bíla umferð á dag vegna Bakkafjöruhafnar

Gert er ráð fyrir 200-300 bíla umferð á Bakkafjöruvegi, sem verður ríflega ellefu kílómetra langur frá þjóðvegi eitt að fyrirhugaðri ferjuhöfn í Bakkafjöru. Þar af verða um 5% þungaflutningar. Þetta kemur fram í drögum að tillögu að matsáætlun vegna Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar og grjótnáms á Hamragarðaheiði í Rangárþingi eystra, sem Vegagerðin hefur birt. Almenningur getur nú […]
Fylgni milli pysjuþyngdar og Kötlu

Gísli hefur í ellefu ár vigtað lundapysjur þegar þær birtast á haustin í Vestmannaeyjum. Hann hefur sett niðurstöður sínar í súlurit og borið saman við upplýsingar frá Veðurstofu Íslands. Hann vinnur út frá tilgátunni um að fylgni sé milli meðalþyngdar pysjanna og óróa í Kötlu í Mýrdalsjökli. „Það virðist vera sem meðalþyngd pysjanna minnki þegar […]