Til hamingju með daginn Færeyingar
Færeyingar vígja nýju glæsilegu neðarsjávargöngin sín, Austureyjar- og Sandeyjagöngin í dag. Í tilefni þess er kannski ástæða til þess að fara nokkrum orðum um munin á okkar og þeirra þjóðfélagi og jafnframt hvernig við höfum í gegnum tíðina getað leitað ráða hjá þessari úrræðagóðu þjóð sem allt virðist leika í höndunum á. Sá hlær best […]
Á að loka framtíðina inni?

Náttúruvernd er samofin þjóðarsálinni. Hún á sér uppsprettu og talsmenn í öllu litrófi stjórnmálanna. Sama má segja um loftslagsmálin. Stærsta framlag okkar til þeirra er orkuframleiðsla með endurnýjanlegum orkugjöfum. Atvinnuvegir og atvinnutækifæri komandi kynslóða munu byggja á þeim möguleikum sem felast í nýtingu orkunnar í landinu; til að skapa hér fjölbreytt og vel launuð störf […]
Vöndum okkur í viðspyrnunni
Bæjarstjórn Vestmannaeyja staðfesti í síðustu viku tillögu bæjarráðs um að setja á laggirnar viðspyrnusjóð fyrir fyrirtæki í Vestmannaeyjum vegna Covid 19. Sjóðurinn nýtur framlaga frá Vestmannaeyjabæ að upphæð allt að 5.000.000 kr. á árinu 2020, og er stofnaður til að bregðast við þeim óvæntu og sérstöku aðstæðum sem skapast hafa vegna heimsfaraldurs Covid-19 veirunnar. Hver rekstraraðili getur að […]
Covid19

Covid19 tröllríður öllum fjölmiðlum alla daga og sumum finnst kannski nóg um, en hér frá mér kemur smá reynslusaga, tillaga og skoðun. Í fyrstu bylgjunni sl. vetur vildi þannig til að mjög nánir ættingjar mínir, eldri borgarar, voru staddir á sólarströnd þegar allt fór á fleygi ferð. Ákveðið var að stytta ferðina og koma heim […]
Kjánahrollur
Líklega er leitun að meira taktleysi í tillöguflutningi í þinginu en finna má í þingsályktunartillögu 18 þingmanna um bjóða konum frá Evrópulöndum að ferðast til Íslands í fóstureyðingar. Framsögumaður málsins er þingmaðurinn Rósa Björk Brynjólfsdóttir en með henni á þingsályktuninni eru allir þingmenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata. Flóttamaður raunveruleikans Rósa Björk Brynjólfsdóttir gat valið sér […]
Minning: Kristinn Guðni Ragnarsson
Æviágrip. Kristinn Guðni Ragnarsson pípulagningameistari fæddist í Vestmannaeyjum 08. desember 1962. Hann lést á heimili sínu 25. október 2020. Foreldrar hans voru Ragnar Guðnason sjómaður frá Steini f. 07. janúar 1942 í Vestmannaeyjum og Ásta Kristinsdóttir f. 08. ágúst 1942 frá Skjaldbreið í Vestmannaeyjum. Kristinn Guðni átti eina systir, Guðrún Bjarný f. 06. október 1959 […]
Ég lifi ekki á þakklætinu einu saman

Ég er verulega hugsi og búin að vera lengi. Ég er hluti af svokallaðri framvarðarsveit, er í framlínustarfi sem leikskólakennari, kenni yngstu nemendunum í skólakerfinu. Ég elska að vera leikskólakennari, hef elskað það frá fyrsta degi og er bara nokkuð góð í því…..þó ég segi sjálf frá. Nú erum við í þriðju bylgju Covid, afar […]
Eigum við gott skilið?

Ég á það til að stinga niður penna og láta hugleiðingar mínar í ljós. Oftast eru það hugleiðingar sem tengjast samgöngumálum okkar í eyjum og snerta veskið mitt, enda starfa ég við ferðaþjónustu. Nýr kafli var skrifaður í samgöngumálum okkar eyjamanna í síðustu viku þegar bæjarstjórn Vestmannaeyja skrifaði undir samning þess efnis að Icelandair hefði […]
Sjósund
Ég sé á fésbókinni hjá mér að hópur Eyjamanna er farinn að stunda sjósund suður í Klauf og ég sé að á minnsta kosti einum stað er minnst á að gott væri að hafa heitann pott á svæðinu. En einmitt þetta er umræða sem ég tók upp á fundi Umhverfis og skipulagsráðs á síðasta kjörtímabili, […]
Sláturtíð
Það er komið haust og sláturtíðin komin á fullan skrið. Mér skilst að hjá Norðlenska á Húsavík slátri þeir um 2000 stykkjum á dag. Sláturhús ISAVIA slátraði þremur störfum í eyjum í vikunni. Sveinbjörn Indriðason heitir framkvæmdastjóri sláturhússins. Hann er með rúmar þrjár milljónir í laun á mánuði. Ekki veitir af, blóðugur upp fyrir haus […]
Allir á uppsagnarfresti

Í dag er staðan þannig á samgönguleiðum milli lands og Eyja að allir starfsmenn sem þar starfa eru á uppsagnarfresti. Öllum starfsmönnum Herjólfs var sagt upp störfum í lok ágúst. Örfáum dögum síðar tilkynnti Flugfélagið Ernir um að félagið myndi hætta flugi milli lands og Eyja. Í gær bárust svo fréttir þess efnis að Isavia hafi […]
Lundasumarið, seinni hluti

Vegna fjölda áskorana kemur hérna seinni hluti. Nú er það þannig að ég hef haldið úti bloggsíðu síðan 2006 og allan þann tíma m.a. fjallað um lundann og merkilegt að fletta upp á yfirlýsingum bæði frá Erp og Ingvari Atla Sigurðssyni og Páli Marvin Jónssyni, lýsingar eins og t.d.: Það er ekkert að marka þó að […]
Hverjum þykir sinn fugl fagur
Í Norður Kóreu situr einræðisherrann Kim Jong Un á sínum feita rassi og hleður í sig góðgætum meðan almúginn sveltur. Kim þessi fékk ríkið í arf frá föður sínum og sá frá föður sínum. Í Norður Kóreu talar fólk ekki um pólitík, því þá er það gert höfðinu styttra. Það talar ekki um veðrið því […]
Óheppilegt!

Það er í besta falli óheppilegt fyrir ráðherra samgöngumála að nánast á sama tíma og niðurgreiðsla á flugfargjöldum tekur gildi sé tilkynnt um að áætlunarflug sé ekki lengur í boði til Vestmannaeyja. Ráðherra kynnti nýju leiðina með pompi og prakt á Egilsstöðum á dögunum. Nú er hvíslað um það í Eyjum hvort komin sé tímasetning á […]
Lundasumarið 2020
Ekkert lundaball í ár og síðustu pysjurnar að mæta í bæinn þessa dagana og því rétt að gera sumarið upp. Það sem kannski kom mér mest á óvart í sumar er það, hversu margir voru undrandi á því að sjá svona mikið af lunda hér í Eyjum í ágúst, en þetta er algjörlega í samræmi […]
Fjölbreytt fæði?
Næringarfræðingar eru gjarnir á að tala um mikilvægi þess að borða fjölbreytt fæði. Landlæknisembættið telur líka mikilvægt að borða fjölbreytt fæði. Á þeim bæ er talað um mikilvægi þess að fá næringu úr öllum fæðuflokkum. Þetta þykir mér áhugavert og reyndar öfugsnúið. Er ekki mikilvægast að fá alla þá næringu sem hver og einn þarf […]
Gerum meira en minna

Afkastamikill þingstubbur var haldinn í síðustu viku og voru þau mál kláruð sem gert hafði verið ráð fyrir á stubbnum og reyndar rúmlega það. Þingstarfið er óhefðbundið í þeim kringumstæðum sem við erum að glíma við sem þjóð og við höfum verið að afgreiða mál í þinginu sem taka mið af breyttum aðstæðum. Þær breytast […]
Byrgjum brunninn

Flug milli Vestmannaeyja og lands var með miklum blóma fyrir Landeyjahöfn. Flestir stigu 89 þúsund farþegar úr flugvél á Vestmannaeyjaflugvelli á einu ári, og árin 2003 til 2009 voru farþegar að meðaltali 74.500. Í fyrra voru þeir 11.690. Flugfélag Íslands sinnti flugi hingað með glæsibrag í áratugi. Flug var vænlegur kostur því það var sanngjarnt. […]
Vestmannaeyjar, hvað er það?
Ég ferðaðist töluvert um landið í sumar. Fór m.a hringinn að undanskildum Vestfjörðum. Hafði ekki farið hringinn síðan ég var unglingur fyrir margt löngu síðan. Mest kom mér á óvart uppbyggingin víða um land. Ég fór í nýja glæsilega náttúrulaug við Urriðavatn. Fór í jarðböð á Mývatni. Skoðaði söfn vítt og breytt um landið og […]
Hvað skal snæða?
Mataræði er sívinsælt umræðuefni. Mjög misjafnar skoðanir eru á meðal fólks um hvað sé hollt og hvað ekki. Margir halda því fram að allt sé gott í hófi eins og ráðleggingar Landlæknisembættis segja til um. Mjög vinsælt er í dag að fylgja einhverskonar lágkolvetna mataræði eins og Ketó eða paleo og upp á síðkastið hefur […]