Stormur á Stórhöfða

Í morgun tók gildi gul viðvörun á sunnanverðu landinu. Klukkan 12 á hádegi tekur svo gildi appelsínugul viðvörun á Suðurlandi og gildir sú viðvörun til klukkan 20.00 í kvöld. Klukkan 11.00 var komið fárviðri á Stórhöfða og mældist stöðugur vindur upp á 35 m/s. Hviður fóru allt upp í 45 m/s. Í Vestmannaeyjabæ mældist á […]
Sterkt samfélag byggir á trausti og samvinnu

Í Vestmannaeyjum er urmull af verslunum, veitingastöðum, hárgreiðslustofum og annarri þjónustu sem sterkt bæjarfélag þarf. Það vakti furðu mína þegar að ég flutti hingað fyrir rúmum 10 árum að sáralítið af einhverskonar keðjum ofan af landi eru hér. Skyndibitinn sem er í boði er ekki vörumerki frá Bandaríkjunum eða Reykjavík, heldur eru þetta lítil fjölskyldufyrirtæki […]
Mikilvægasta skipið

Íbúar í Vestmannaeyjum hafa löngum fylgst með fiskiskipaflotanum, af gangi veiða og vinnslu. Þegar ég var yngri sögðust margir þekkja skipin eftir möstrum sem birtust við sjóndeildarhringinn. Tímarnir hafa breyst í þessum efnum og einfalt að sjá í símanum hvaða skip eru hvar. En stærsta breytingin er í mínum huga að nær allir Eyjamenn fylgjast […]
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág

Fræðsluráð Vestmannaeyja hefur tilnefnt þrjá fulltrúa í faghóp sem mun koma að hönnun nýs leikskóla í Löngulág. Fræðsluráð tilnefndi eftirfarandi fulltrúa í faghópinn: Eyju Bryngeirsdóttur, leikskólastjóra Kirkjugerðis, Helgu Björk Valgerðar Björnsdóttur, leikskólastýru á Sóla og Guðrúnu Þorsteinsdóttur, aðstoðarleikskólastjóra Víkurinnar. Ráðið telur að með þessari skipan sé tryggð góð fagleg breidd og reynsla frá öllum leikskólum […]
Ábending frá Herjólfi

Herjólfur stefnir á að sigla til Þorlákshafnar mánudaginn 6. apríl. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl.10:15 (Áður ferð kl. 10:45). Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Þar segir jafnframt að seinni ferðir 6. apríl falli niður vegna appelsínugulrar viðvörunar. Vegagerðin hefur einnig gefið út að vegir til/frá Þorlákshöfn koma til […]
Appelsínugular viðvaranir gefnar út

Veðurstofan hefur gefið út appelsínugular viðvaranir fyrir Suðurland, Faxaflóa, Suðausturland og Miðhálendið. Áður hafði verið gefin út gul viðvörun vegna veðurs á öllu landinu. Ef horft er á Suðurland þá tekur sú gula gildi klukkan 7 í fyrramálið. Klukkan 12 á hádegi tekur við appelsínugul viðvörun í landshlutanum og gildir hún til kl. 20.00 samdægurs. […]
Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor

Unnið er að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar á sama tíma og höfnin hefur verið lokuð vikum saman vegna ónægs dýpis. Frá þessu er greint á fréttavefnum Vísi. Þar segir enn fremur að danska fyrirtækið DHI vinni nú að tillögum í samstarfi við Vegagerðina sem miða að því að bæta ástand hafnarinnar til framtíðar. Niðurstöður […]
Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir

Mikil þátttaka var í árlegri páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum sem fram fór á Skansinum í dag. Mæting var góð og börn á öllum aldri nutu samveru og útivistar í blíðskaparveðri. Leitin hófst stundvíslega klukkan 15:00, þar sem þátttakendur höfðu safnast saman við virkið á Skansinum og biðu eftir merki um að hefja leitina. Eyþór Harðarson, […]
Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir landið allt. Austan stórhríð á mánudag og tekur viðvörunin gildi kl. 08:00 á annan í páskum og gildir fram á aðfaranótt þriðjudags kl. 04:00. Í viðvörunarorðum segir: Gengur í austan á 18-28 m/s, hvassast syðst, en hægari vindur norðanlands fram eftir degi. Spáð er talsverðri eða mikilli […]
Landeyjahöfn opnar á ný – uppfært

Herjólfur stefnir á að sigla eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipafélaginu. Brottför frá Vestmannaeyjum verður kl. 17:00, en áður hafði verið áætlað að sigla kl. 16:00. Brottför frá Landeyjahöfn verður kl. 20:00, en áður hafði verið áætlað að sigla kl. 19:45. Varðandi siglingar á morgun verður tilkynning […]
Framboðslisti kjósenda í Eyjum

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar liggur nú fyrir. Raðað var í öll efstu sæti listans með prófkjöri en 12 efstu sæti listans eru byggð niðurstöðu gríðarlega vel heppnaðs prófkjörs, þar sem nærri 1200 kjósendur í Eyjum komu að því að stilla frambjóðendum upp á listann með vali sínu í prófkjörinu. 1178 kjósendur skipuðu eiginlega kjörnefnd […]
ÍBV mætir Þrótti í bikarnum

32-liða úrslit Mjólkurbikars karla eru leikin nú um páskana – allir leikirnir nema einn. ÍBV hefur leik í Mjólkurbikarnum í dag þegar liðið tekur á móti Þrótti Reykjavík á Hásteinsvelli. Leikurinn hefst klukkan 12:00 og markar upphaf fyrsta alvöru keppnisleiks Eyjamanna á tímabilinu. Upphitun hefst klukkustund fyrir leik. Undirbúningur liðsins hefur staðið yfir undanfarna mánuði […]
Hörku skákmót hjá TV á skírdag

Sigurjón Þorkelsson varð hraðskákmeistari Vestmannaeyja 2026 þegar Hraðskákmeistaramót Vestmannaeyja fór fram á skírdag í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja (TV). Alls tóku 10 keppendur þátt, tefldar voru níu umferðir og tímamörk voru 5 mínútur á skák auk 3 sekúndna viðbótar fyrir hvern leik. Á árum áður voru 5 mínútur algeng tímamörk í hraðskák, en þá kom oft […]
Bæta á aðgengi og fjölga bílastæðum við Kirkjugerði

Fræðsluráð Vestmannaeyja tekur jákvætt í tillögur um breytingar á umferð við leikskólann Kirkjugerði. Meðal þess sem lagt er til er að opna fyrir einstefnuakstur frá bílastæði leikskólans og út á Hraunveg. Jafnframt eru uppi hugmyndir um að fjölga bílastæðum á svæðinu til að bæta aðgengi. Ráðið telur mikilvægt að ráðast í slíkar úrbætur til að […]
Metár og hagnaður langt yfir áætlun

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja kynnti á síðasta fundi bæjarstjórnar endurskoðaðan ársreikning sveitarfélagsins fyrir árið 2025 sem sýnir eina bestu rekstrarniðurstöðu bæjarins í fimmtán ár. Var þetta seinni umræða. Samkvæmt reikningnum var afkoma samstæðu bæjarins, A og B hluta, jákvæð um 781 milljón króna sem er 345 milljónum króna umfram áætlanir. Engar tölulegar breytingar voru gerðar […]
Páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins

Árleg páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins í Vestmanneyjum fer fram nk. laugardag 4. apríl. Eins og venjulega fer leitin fram á Skansinum og hefst stundvíslega kl. 15:00. Leitinni verður startað formlega á staðnum kl. 15 en allir eiga að bíða við virkið á Skansinum þar til leitinni verður startað af Eyþóri Harðarsyni, oddvita framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 16. […]
Erfitt tíðarfar undanfarið en góður afli hjá Kap VE

Kap VE kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun með um 50 tonna afla, að stærstum hluta stórþorski úr Breiðafirði. Skipið hefur verið við veiðar í Breiðafirði síðustu tvær vikur og landað afla sínum í Grundarfirði á meðan. Kristgeir Arnar Ólafsson, skipstjóri á Kap, segir tíðarfarið hafa verið erfitt en aflann engu að síður góðan. […]
Prúðmannleg pólitík

Fersk sýn Þarf allt að vera neikvætt, illa gert, leiðinlegt og ömurlegt til að teljast fréttnæmt. Þarf fókusinn að vera á hið neikvæða til að teljast til vinsælda. Erum við komin þangað, ein hamingjusamasta þjóð í heimi? Eða er málið að einblína á það sem jákvætt er, það sem vel hefur verið gert og byggja […]
Páskar í Landakirkju

Í páskahelgihaldi Landakirkju núna í ár má finna bæði það sem er kunnuglegt en einnig er bryddað upp á nýjungum. Skírdagur 19:00 – Nýjung páskahelgihaldsins er að finna á skírdagskvöld. Athöfnin er tvískipt og hefst með kvöldverð í safnaðarheimilinu í anda síðustu kvöldmáltíðarinnar. Seinni hluti athafnarinnar er síðan upp í kirkju þar sem gengið verður […]
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta

Sá fáheyrði atburður átti sér stað hjá Íslenskum getraunum um síðustu helgi að sami tippari var með 13 rétta bæði á Enska getraunaseðlinum sem spilaður er á laugardögum og á Evrópuseðlinum sem spilaður er á sunnudögum. Þetta segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá og það tekið fram að þetta sé ekki aprílgabb. Tipparinn, sem er […]