Opinn borgarafundur í Eyjum

Kosningabaráttan fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er farin af stað af fullum krafti og fram undan er líflegt kosningaferðalag á vegum Morgunblaðsins og mbl.is. Að sögn Ásthildar Hannesdóttur, verkefnastjóra í myndskeiðaframleiðslu Morgunblaðsins er markmiðið skýrt: að færa umræðuna nær fólkinu. „Við höfum nú hrundið af stað kosningaferðalagi um landið þar sem aðeins um fimm vikur eru til […]
Bilun í Herjólfi – sérfræðingur kallaður til frá Noregi

Bilun kom upp í vélbúnaði Herjólfs í fyrrakvöld sem hefur áhrif á aðra skrúfu skipsins. Unnið er að því að meta umfang bilunarinnar og finna lausn á vandanum. Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi í gær siglir ferjan nú á takmörkuðu afli. Vegna þess lengist siglingatíminn til Þorlákshafnar og er hann að minnsta kosti þrjár og hálf […]
Landfylling við Eiði: Samið við Þjótanda um fyrstu áfanga

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að ganga til samninga við verktakafyrirtækið Þjótanda vegna landfyllingar við Eiði. Aðeins eitt tilboð barst í verkið, frá Þjótanda, að upphæð 35,7 milljónir króna með virðisaukaskatti. Sá hluti verksins sem snýr að girðingu svæðisins verður hins vegar unninn af starfsmönnum hafnarinnar og var því tekinn út úr tilboðinu. Samkvæmt […]
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári

Á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar hf. þann 10. apríl kom fram að félagið hafi náð sterkum viðsnúningi í rekstri á árinu 2025 þrátt fyrir krefjandi rekstrarskilyrði, takmarkaðan loðnukvóta og aukið álag á íslenskan sjávarútveg. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá VSV sem birt er á heimasíðu fyrirtækisins. Þar segir jafnframt að heildartekjur hafi aukist um 4,8% og […]
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli

ÍBV hefur í dag keppni í Bestu deild karla þegar liðið tekur á móti FH á Hásteinsvelli. Leikurinn hefst klukkan 13:00. Upphitun hefst klukkan 12:00 þar sem stuðningsmenn geta komið sér í gírinn fyrir leikinn. Þá verða grillaðir borgarar til sölu á svæðinu og því tilvalið að mæta snemma, njóta stemningarinnar og styðja við bakið […]
Með fullfermi eftir örstutta túra

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir fullfermi í Þorlákshöfn í gærmorgun. Um mjög stuttar veiðiferðir var að ræða en þær tóku einungis um 30 tíma höfn í höfn. Veitt var á Selvogsbanka, nánar tiltekið vestan við Surt og sunnan við svonefnda Klöpp. Aflinn var langmest þorskur, stór og fallegur vertíðarfiskur. Skipstjórarnir, Ragnar Waage […]
40 ára aldursmunur á vinningshöfum

Glæsilegur 7-faldur pottur var í Lottó um páskana og nam fyrsti vinningur alls 176.505.440 krónum. Tveir heppnir miðaeigendur skiptu með sér pottinum og fá hvor um sig rúmlega 88,2 milljónir króna. Vinningshafarnir keyptu miðana sína í Lottóappinu, en 40 ára aldursmunur er á þeim og viðbrögðin við vinningnum ólík, segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá. […]
Hvert viljum við stefna?

Þessi spurning skiptir okkur öll máli. Hún snýst ekki aðeins um stjórnmál í aðdraganda kosninga, heldur um hvernig framtíð sem við viljum skapa saman. Fyrir fjölskyldurnar okkar, börnin og samfélagið í Vestmannaeyjum í heild. Nú gefst okkur einstakt tækifæri til að staldra við, hlusta hvert á annað og móta sameiginlega sýn. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins bjóða Vestmannaeyingum […]
Margrét Rós: „Ég er hvorki í fýlu né lít á mig sem tapara“

Margrét Rós Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, tjáir sig um stöðu sína eftir nýafstaðið prófkjör í færslu á Facebook í dag. Þar segir hún meðal annars að hún hafi orðið fyrir neikvæðum ummælum í kjölfar prófkjörsins en sé sátt við eigin ákvörðun og stöðu. Í færslunni segir Margrét að hún hafi meðal annars verið kölluð […]
Slá ekki slöku við

Leikmenn karlaliðs ÍBV í handbolta slá ekki slöku við þó að liðið sé komið í snemmbúið sumarfrí. Halldór Ben. Halldórsson leit inn á æfingu hjá þeim í gær. Myndbandið má sjá hér að neðan en þar ræðir Halldór við Dag Arnarsson. (meira…)
Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum óskuðu eftir því við Írisi Róbertsdóttur að hún verði bæjarstjóraefni flokksins fyrir komandi sveitastjórnarkosningar þann 16. maí. Íris samþykkti beiðnina, en hún hefur gegnt starfi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum undanfarin átta ár. Þetta segir í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum. Íris segir á facebook-síðu sinni að hún hafi ákveðið að verða við […]
Engin lognmolla í nýju starfi

Kári Hrafn Hrafnkelsson hefur tekið við sem verkstjóri í löndun og frystigeymslu hjá Vinnslustöðinni á sama tíma og vertíð stendur sem hæst. Í viðtali við fréttasíðu Vinnslustöðvarinnar segir hann fyrstu vikurnar hafa gengið vel. Hann er fæddur og uppalinn á Egilsstöðum en hefur undanfarna áratugi búið í Vestmannaeyjum. Kári kemur til starfans með góða reynslu […]
Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?

Samgöngur við Vestmannaeyjar hafa um áratugaskeið verið eitt stærsta hagsmunamál Eyjamanna. Þær snerta ekki aðeins daglegt líf íbúa heldur einnig atvinnulíf, öryggi og byggðaþróun. Þrátt fyrir umbætur á undanförnum árum er ljóst að núverandi lausnir eru langt frá því að vera fullnægjandi – sérstaklega þegar veður hamlar samgöngum með þeim hætti sem við höfum séð […]
World Class mun rísa samhliða búningsklefunum

Samkvæmt útboðsskilmálum fyrir líkamsræktarstöðina eiga framkvæmdir Lauga ehf., sem reka World Class, að vera lokið í mars 2028 og á rekstur hefjast í maí sama ár. Áætlað er að framkvæmdum á búningsklefum, sem bærinn kynnti nýlega bæjarbúum ljúki 1. maí 2028. Ekki liggur fyrir hvernig hús World Class lítur út né hvernig það verður tengt […]
Stelpurnar æfa af krafti fyrir úrslitakeppnina

Þann 15. apríl hefst úrslitakeppnin hjá kvennaliði ÍBV. Þar mæta þær liði Hauka. Liðið slær ekki slöku við þó að rúm vika sé í leik. Halldór B. Halldórsson leit við á æfingu hjá þeim í gær og ræddi við nokkra leikmenn um rimmuna við Hauka. (meira…)
Vestmannaeyjar – staður þar sem fjölskyldan blómstrar

Vestmannaeyjar eru á margan hátt einstakt samfélag. Öryggið, nálægðin og samheldnin gerir bæinn okkar að einum besta staðnum á landinu til að ala upp börn. Við megum þó ekki sofna á verðinum. Til þess að halda áfram að vera eftirsóknarverður kostur fyrir ungt fólk og fjölskyldur, þurfum við að þora að gera enn betur. Sem […]
Borgarlína eða lífæð? Við erum að velja vitlaust

Það er eitthvað skrýtið í gangi. Við erum tilbúin að setja tugi milljarða í að stytta ferðatíma innan Reykjavíkur en á sama tíma er verið að skera niður og fresta framkvæmdum sem halda uppi útflutningssvæðum landsins. Þetta er ekki flókið. Þetta snýst einfaldlega um forgangsröðun. Vestmannaeyjar eru oft settar í flokk sem lítið sveitarfélag en […]
Tæplega hundrað nýta gjaldfrjálsa leikskólatíma

Alls nýta 94 börn í leikskólum Vestmannaeyja sér 30 tíma gjaldfrjálsa vistun á viku, samkvæmt upplýsingum sem lagðar voru fram á fundi fræðsluráðs nýverið. Í heild eru 289 börn í leikskólum bæjarins. Fræðsluráð fagnar þessari þróun og telur að hún endurspegli aukið val foreldra og mismunandi þarfir fjölskyldna. Ráðið hyggst áfram fylgjast með áhrifum breytinganna […]
Rafmagnslaust: Stór truflun í kerfinu – uppfært

Rafmagn fór af í Vestmannaeyjum og víðar klukkan 20.00. Fram kemur á í tilkynningu frá stjórnstöð Landsnets að stór truflun hafi orðið í kerfinu, niðurkeyrsla á stóriðju og fl. Þá segir að landskerfið hafi splittatst í tvær eyjur og að tíðnin hafi farið í 53.5hz. Fram kemur að frekari upplýsingar komi síðar. Hluti bæjarins fékk […]
Annríki hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í fárviðri

Töluvert annríki var hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í dag, þegar fárviðri gekk yfir Vestmannaeyjar með hvössum vindhviðum og krefjandi aðstæðum. Raunar stendur stormurinn enn en aðeins hefur lægt ef skoðuð er nýjasta veðurathugunin á Stórhöfða. Björgunarfélagið var fyrst kallað út um hádegi og hafði sinnt níu verkefnum þegar þetta var skrifað um kl. 18. Verkefnin tengdust […]