Vel heppnaður fundur

Hressilegur og fjölsóttur var fundurinn sem Morgunblaðið stóð fyrir í Höllinni í Vestmannaeyjum í gær. Fundinum var stýrt af blaðamönnum Morgunblaðsins, Andrési Magnússyni og Stefáni Einari Stefánssyni, sem stóðu sig með miklum ágætum. Á palli voru Arndís María Kjartansdóttir, oddviti og bæjarstjóraefni Eyjalistans, Sæunn Magnúsdóttir, bæjarstjóraefni Miðflokksins, og Eyþór Harðarson. Arndís og Sæunn koma nýjar […]

Viðbragð við svari Eyþórs

ithrottam

Eyþór Harðarson var spurður út í kærumál vegna heilsuræktar í pontu á borgarafundi í Höllinni 15. apríl sl. Hann talar með oflæti um þá einstaklinga sem telja að hið opinbera hafi að sér vegið og fer að auki með rangfærslur í þessu tiltekna máli. Hann segir tilboðið hafi verið sniðið þannig að minnst tveir aðilar […]

Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð

Hvað er það sem við viljum fá út úr grunnskólum okkar hér í Vestmannaeyjum? Viljum við framúrskarandi árangur og hvað felst í honum? Eru það eingöngu háar einkunnir, eða er það að ala upp sjálfstæða, hamingjusama og virka þjóðfélagsþegna sem eru tilbúnir út í lífið? Fjárfesting í framtíðinni Grunnskóli Vestmannaeyja er stærsti vinnustaður bæjarins. Þar […]

Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans

Jakob Frímann Magnússon mun koma fram í Alþýðuhúsinu laugardaginn 25. apríl nk. Hann mun þar ásamt sérvöldum leynigestum sem ástunda Reykingar, Taka til við að tvista , Horfa í roða fortíðar, nútíðar og framtíðar, hitta fyrir Jack Magnet, Hveitibjörn, Frímann flugkappa, Jobba Maggadon og fleiri kúnstuga karaktera ásamt því að trúa okkur fyrir áður óheyrðum skandalasögum […]

Boltinn farinn að rúlla – og kosningabaráttan líka

Nýjasta tölublað Eyjafrétta endurspeglar vel það sem brennur helst á Vestmannaeyingum um þessar mundir: pólitík í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, samgöngur og innviðir, sterkt mannlíf og öflugt íþrótta- og menningarlíf. Blaðið er fjölbreytt að vanda, en þó er ljóst að kosningarnar setja sterkan svip á efnistökin. Strax í upphafi er dregin upp alvarleg mynd af samgöngustöðunni. Fjallað […]

Fólkið okkar og framtíðin

Það var ánægjulegt að sjá ársreikning Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025. Bærinn okkar stendur sterkt og reksturinn var jákvæður um 781 milljón króna. Þessi góða staða er traustur grunnur sem við getum byggt ofan á, en hún krefst þess líka að við spyrjum okkur að því hvað ætlum við að gera við þennan árangur?  Fyrir Eyjalistanum […]

Óþolandi óvissa með samgöngur til Vestmannaeyja

Óvissa um samgöngur til Vestmannaeyja hefur verið „alger og óþolandi“ undanfarna mánuði, að sögn Karls Gauta Hjaltasonar sem ræddi málið undir liðnum Störf þingsins á Alþingi í dag. Hann benti á að farþegaferjan Herjólfur hafi lengst af þurft að sigla til Þorlákshafnar þar sem dýpi í Landeyjahöfn sé ekki nægilegt. Ekki siglt heilan dag síðan […]

Baldur leysir Herjólf af

Baldur OPF 20250911 151359

Herjólfur verður frá áætlun næstkomandi mánudag og þriðjudag vegna bilunar í rafmótor. Unnið er að viðgerð og hefur verið gripið til bráðabirgðaráðstafana til að tryggja samgöngur milli lands og Eyja. Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. segir: Að undangenginni skoðun sérfræðings á rafmótor skipsins liggi fyrir að senda þurfi mótorinn erlendis til viðgerðar. Af þeim sökum […]

Eyjafréttir standa við „samsuðuna“

Ráðhús_nær_IMG_5046

Vestmannaeyjabær birti nýlega ársreikning bæjarins fyrir árið 2025 og birti blaðið fréttatilkynningu bæjarins af því tilefni. Áður hafði Eyjafréttir fjallað um drög að ársreikningi og fór sú umfjöllun illa í Pál Magnússon sem gagnrýndi fréttamiðilinn með eftirfarandi orðum: Um „fréttaskýringuna“ sjálfa er það að segja að hún er sérkennileg samsuða af misvísandi upplýsingum, samanburði á ósambærilegum tölum og einkennist af vanþekkingu höfundarins á reikningsskilavenjum og mislestri á ársreikningi. Efnislega verður þessum […]

Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag

Alfsnes 06 24 IMG 5443 2

Aðstæður við Landeyjahöfn eru enn krefjandi en útlit er fyrir að þær fari batnandi á næstu dögum. Samkvæmt upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, er aldan nú um 4 metrar en spár gera ráð fyrir að hún gangi niður þegar líður á daginn. Hagstæðari skilyrði framundan Horfur frá fimmtudegi og fram á laugardag eru […]

Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina

Lokakeppni Raddarinnar fór fram í Vík í Mýrdal í gær í einstaklega góðu veðri. Grunnskóli Vestmannaeyja átti þrjá fulltrúa í keppninni sem stóðu sig afar vel, að því er segir í frétt á vefsíðu Grunnskólans í Vestmannaeyjum. Það var þó Caritas Rós Tinnudóttir, nemandi við GRV, sem bar sigur úr býtum með frábærri frammistöðu. Í […]

Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs

default

Mikil uppbygging hefur verið í fiskeldi hér á landi á undanförnum árum og framleiðsla og verðmætasköpun aukist hratt. Með því hefur fiskeldi orðið sífellt mikilvægari stoð undir gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins og stuðlað að aukinni fjölbreytni í útflutningi. Ekkert lát virðist á þessari þróun samkvæmt nýlegum tölum frá Hagstofunni. Þetta kemur fram í Radarnum – fréttabréfi SFS. […]

„Gengið eins og í sögu”

eyjarn

Ísfisktogarar Bergs – Hugins í Vestmannaeyjum, Bergey VE og Vestmannaey VE, hafa þrisvar sinnum landað fullfermi á innan við viku. Fyrst lönduðu þeir í Þorlákshöfn, síðan í Grindavík og í gær og fyrradag var landað í heimahöfn í Vestmannaeyjum. Heimasíða Síldarvinnslunnar greinir frá. Þá voru skipstjóranir spurðir hvort menn væru ekki sáttir við aflabrögðin. Ragnar […]

Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik

Spennan magnast í handboltanum þar sem undanúrslit Olísdeildar kvenna hefjast í dag þegar ÍBV tekur á móti Haukum. Leikurinn fer fram í Íþróttamiðstöðinni og hefst klukkan 18:00, en húsið opnar klukkan 17:00. Um er að ræða fyrsta leik í einvígi þar sem vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í úrslitum mótsins. Undirbúningur […]

Gleðilegt sumar

Lundinn að setjast upp og þar með komið sumar hjá mér að venju. Ég bjóst reyndar ekki við því að hann myndi setjast upp í kvöld, enda svolítill vindur en það er líka hlýtt og það hentar lundanum vel. Þetta er reyndar aðeins fyrr en síðustu árin, en samt á því tímabili sem ég hef […]

Lundinn sestur upp

Lundar_opf_DSC_7709

Fyrstu lundarnir settust upp í Vestmannaeyjum í dag. Sást til lunda í og við Kaplagjótu við Dalfjall í kvöld. Lundinn er á sínu vanalega róli, því ef skoðuð eru síðustu ár má sjá að hann sest upp á bilinu 13. til 19. apríl. Í Vestmannaeyjum er ekki síður talað um lundann sem vorboðann ljúfa en […]

Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn

Innviðaráðuneytið hefur veitt samþykki fyrir framlengingu á ríkisstyrktu áætlunarflugi til Vestmannaeyja fram til næstu mánaðamóta. Ákvörðunin er tekin í ljósi stöðunnar í Landeyjahöfn sem hefur haft veruleg áhrif á samgöngur milli lands og Eyja. Samkvæmt tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar mun ráðuneytið í framhaldinu hafa samband við flugfélagið Nordlandair um áframhaldandi fyrirkomulag flugsins. Viðbragð við truflunum […]

Álfsnesið þurfti frá að hverfa

Dýpkunarskipið Álfsnesið hefur tímabundið þurft að hætta störfum við Landeyjahöfn vegna veðurs. Þetta kemur fram í nýjum upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar. „Álfsnesið þurfti frá að hverfa vegna veðurs en mun hefja dýpkun að nýju á fimmtudag, svo framarlega sem veðurspár ganga eftir,“ segir Pétur. Óstöðugar aðstæður á svæðinu hafa áfram áhrif á […]

Hoppað á vagninn

Þegar ég var ungur fór ég að vinna hjá bróður tengdaföður míns, Sigurjóni í Letri. Letur var þekkt sem undergrpund bókaútgáfa og fjöldi þekktra rithöfunda hófu ferilinn þar. Letur var líka offset fjölritunarstofa og þar voru bækurnar unnar. Starfsmenn voru nokkrir, þar á meðal öðlingurinn hann Leifur. Leifur var ekkill og hafði aldrei gifst eftir […]

Dýpið minnkaði um meter í síðustu brælu

User comments

Kröftug suðaustan-alda sem gekk yfir dagana 6.–8. apríl hefur haft veruleg áhrif á aðstæður í Landeyjahöfn. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, hefur dýpi við höfnina minnkað um heilan metra og sandur safnast upp framan við garðana. „Eftir þessa öldu minnkaði dýpið úr um -3,0 metrum niður í -2,0 metra og mikill sandur safnaðist […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.