Norska tæknifyrirtækið LiceDefence, sem Ísfélagið á um 30% hlut í, hefur þróað nýstárlega vörn gegn laxalús. Kerfið notar ljósagildrur sem settar eru upp í kringum sjókvíarnar til að eyða laxalúsarlirfum áður en þær ná að festa sig á laxinum.
Ný rannsókn Dýralæknastofnunar Noregs (Veterinærinstituttet) sýnir að gildrurnar geta minnkað lúsasmit um allt að 44% án þess að hafa neikvæð áhrif á fiskinn í kvíunum. Niðurstöðurnar hafa vakið talsverða athygli í norskum fjölmiðlum.
Uppfinningamaðurinn á bak við tæknina er Norðmaðurinn Vidar Saue. Hann hóf samstarf við Ísfélagið árið 2020. „Samstarfið hefur verið sérstaklega gott. Þeir trúðu á lausnina þó ég hefði ekki mikið til sýnis í upphafi og sýndu mikla þolinmæði á þróunartímanum ásamt því að koma með virkum hætti að verkefninu“ segir Saue.
Í samtali við Eyjafréttir segir Örvar Guðni Arnarson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Ísfélaginu, að unnið hafi verið að verkefninu í nokkur ár, að mestu við að fullkomna búnaðinn sem þarf að þola ágang sjávar og seltu yfir lengri tíma og þá hafi verið unnið að framleiðslulínu til að búa til kerfið sem var notað við tilraunirnar. Núna er lögð áhersla á að koma upp öflugri framleiðslulínu til að bregðast við miklum áhuga á kerfinu.
„Ég tel að við getum náð miklum árangri með kerfið og 44% árangurinn er bara vísir að því hversu öflugt kerfið er við að draga úr lúsasýkingu í laxeldi“
Vidar Saue bendir á að norska Dýralæknastofnunin hafi hannað rannsóknina og metið niðurstöðurnar, en framkvæmdin hafi verið í höndum GIFAS og BioVivo. „Þannig að óháðir aðilar framkvæmdu alla tilraunina.“
„Okkur er sagt að þær lausnir sem menn hafa í dag, fyrir utan þær lausnir sem meðhöndla sjálfan fiskinn, séu ekki að skila neinum mælanlegum árangri, þannig að 44% minnkun laxasýkingar er mjög mikið og við höfum ýmis ráð til að ná enn betri árangri.“ segir Vidar einnig.
Tor Haldorsen, stjórnarformaður LiceDefence, er ánægður með niðurstöðurnar og að fá óháða staðfestingu á virkni tækninnar. „Laxalúsin er risastórt vandamál í Noregi og framleiðendur hafa prófað ýmsar aðferðir til að stemma stigu við henni.“
Hann segir að LiceDefence eigi í góðu samstarfi við Salmon Group, samtök um fjörutíu laxaframleiðenda í Noregi. Kerfið sé þegar í notkun hjá einum aðila sem sé ánægður. Nú sé stefnt að hefja fjöldaframleiðslu til að mæta eftirspurn.
„Áherslan núna er að koma upp framleiðslulínu í Björgvin til að geta brugðist við miklum áhuga. Að auki munum við halda áfram að þróa kerfið, þar sem við sjáum tækifæri til að gera það enn betra og ná meiri árangri“ segir Tor Haldorsen.
