Erill helst að frétta

Nokkur erill var hjá lögreglu í liðinni viku enda Goslokahátíð haldin um helgina. Fór hátíðin fram með ágætum og engin alvarleg mál sem upp komu. Eitthvað var þó um pústra en engar kærur liggja fyrir. Nokkuð var um það að lögreglan þurfti að aðstoða fólk til síns heima sökum ölvunarástands þess. Eitt fíkniefnamál kom upp […]
Afar fjölbreytt menningarhelgi

Goslokahelgin er samfelld menningarhátíð og svo hefur verið undanfarin ár. Í samantekt Eyjafrétta um viðburði þessa helgi sést glöggt hversu fjölbreytt dagskráin var og með ólíkindum hvað margir höfðu sitthvað fram að færa. Haldnar voru 5 myndlistarsýningar og það fóru fram 16 tónleikar eða tónlistarviðburðir, 2 íþróttaviðburðir, barnaskemmtun, leiksýning, tískusýning, ljósmyndasýning, söguskoðun, fjallaferðir og náttúruskoðun, […]
40 ára afmæli héraðsfréttablaðs Vestmannaeyja

Héraðsfréttablaðið Fréttir, sem síðar varð Eyjafréttir, fagnar í ár 40 ára afmæli sínu. Af því tilefni var sett upp sýning í Einarsstofu Safnahúss við Ráðhúströð en annars vegar eru þar til sýnir nokkrar af fjölmörgum myndum úr myndasafni blaðsins og hins vegar sýningin Vorið í Vestmannaeyjum 2014, þar sem gefur að líta nokkrar myndir frá […]
Vel heppnuð goslokahelgi

Dagskrá goslokahátíðarinnar var afar fjölbreytt og vel heppnuð. Í bland við goslokahátíðina hélt Sparisjóðurinn sinn árlega Sparisjóðsdag, en veður á laugardaginn gerði minni úr honum en til stóð. �?rátt fyrir það var þar fjöldi fólks. Halldór Benedikt myndaði var að venju með vídeóvélina og myndaði það sem hér birtist. (meira…)
Fjölmenni á dagskrá gosloka í gærkvöldi

Mikið fjölmenni var á dagskrá goslokahátíðar í gærkvöldi. Veðrið gekk niður þegar leið á daginn og var ekki til ama. Tónlist ómaði í hverjum skúr á Skipasandi og uppí Pippkró í Skvísusundi, þar sem fjöldi tónlistarfólks skemmti sér og öðrum gestum á goslokahátíðinni. Komið var framundir morgun þegar síðustu tónar á Skipasandi dóu út. Egill […]
Níðstöng í tilefni skrifa

Bræðrafèlagið Vinir Ketils Bònda reistu smàmenninu Inga Frey Vilhjàlmsyni, frèttastjòra DV, níðstöng í tilefni af skítlegum skrifum hans ì garð Vestmanneyinga og annara �?slendinga. Aumur ertu Ingi Freyr… �?ttann sjàlfur. Lifi frjàlsar Vestmannaeyjar. Vinir Ketils Bònda (meira…)
Allt klárt fyrir kvöldið

Vegna vinds varð að taka niður stóra partýtjaldið sem búið var að reisa á Skipasandi. En goslokanefnd og hennar fólk dó ekki ráðalaust. Nú er búið að koma fyrir stórum trailer frá Eimskipum á Skipasandi, sem hýsa mun hljómsveitir kvöldsins og auk þess skýla gestum, ef einhver blástur verður í kvöld. �??Að hætti Eyjamanna, allt […]
Barnadagskrá færð inn í íþróttamiðstöðina

Goslokanefnd hefur ákveðið að færa dagskrá barnaskemmtunar Goslokahátíðarinnar inn í sal 2 í Íþróttamiðstöðinni. Tímasetningar og dagskrárliðir halda sér annars að öllu leyti, aðeins staðsetningunni hefur verið breytt. Eins og áður hefur komið fram hefur veðrið verið heldur leiðinlegt í Eyjum, mikill vindur sem fór mest í 33 metra á sekúndu á Stórhöfða. Hátíðartjaldið á […]
Guðjón með þrennu

KFS vann Augnablik í dag 4:0 á Hásteinsvelli. Leikurinn fór fram við frekar erfiðar aðstæður en talsverður vindur hefur verið í Eyjum í dag. Engu að síður sáust á köflum ágætis tilþrif en þó fyrst og fremst hjá bláklæddum Eyjamönnum. Guðjón �?lafsson gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum en Gauti �?orvarðarson skoraði […]
Litlar skemmdir í Eyjum í rokinu

Nokkuð hvassviðri hefur gengið yfir Eyjarnar í dag en meðalvindhraði nú, klukkan 14:00 var 23 m/sekúndu á Stórhöfða en fór upp í 33 metra í mestu hviðunum. Eitthvað hefur verið um að lausir munir hafi fokið, m.a. trampólín og annað slíkt. �?á lét stórt veislutjald á Skipasandi undan í rokinu en brugðist var með því […]
KFS mætir Augnabliki á Hásteinsvelli í dag

KFS tekur á móti Augnabliki í dag í toppleik B-riðils 4. deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli í þetta sinn, klukkan 14:00 en yfirleitt leikur KFS leiki sína á Helgafellsvelli. KFS hefur spilað einstaklega vel í sumar, hefur unnið 5 af 6 leikjunum í Íslandsmótinu og gert 1 jafntefli. Markatala liðsins er […]
Vestmannaeyjar eru menningarlegt núll

Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri DV fer mikinn í grein sem hann ritar í dag. Sérstaklega er honum uppsigað við Elliða Vignisson, bæjarstjóra. Um hann segir Ingi Freyr: �??Elliði Vignisson er langt frá því að vera heimskur en hann talar stundum eins og hann sé vanviti. Íslensk örþjóð má alls ekki við því að eiga svona […]
Eldheitur �??Stónsari�?? prýðir garðinn sinn

Einn af heitari aðdáendum Rolling Stones hér í Eyjum heitir Friðbjörn �?lafur Valtýsson, reyndar er hann eldheitur aðdáandi. �?að voru einmitt Logarnir sem fluttu mikið af tónlist þeirra og munu sjálfsagt gera í kvöld. Friðbjörn á margar góðar minningar af báðum þessum hljómsveitum og hefur skreytt garðinn sinn með þessu minnismerki Stones og á facebooksíðu […]
Sækir innblástur frá náttúrunni í Eyjum

Í dag föstudag kl. 18 verður Berglind �?marsdóttir fatahönnuður með tískusýningu á föstudeginum í nýja safninu okkar Eyjamanna, Eldheimum. Blaðamaður Eyjafrétta Sóley Guðbjörnsdóttir fékk að skyggnast aðeins á bakvið tjöldin og tók Berglindi á tal. Berglind er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum en fluttist til Lúxemborgar í september árið 2008 og býr þar enn með […]
�?órarinn Ingi snýr aftur

�?órarinn Ingi Valdimarsson mun snúa aftur til ÍBV í félagsskiptaglugganum og spila með ÍBV í seinni hluta Pepsídeildarinnar. �?etta staðfestir �?órarinn Ingi í samtali við vefinn 433.is en �?órarinn Ingi hefur verið á láni hjá norska úrvalsdeildarliðinu Sarpsborg í eitt og hálft ár. �??�?g vildi sjálfur í raun koma heim og hjálpa ÍBV,�?? sagði �?órarinn […]
Goslokalagið 2014

Í gær voru liðin 41 ár frá því Heimeyjargosinu lauk formlega. Mikil dagskrá er í gangi af því tilefni, sem hófst í gær, fimmtudag og stendur fram á sunnudagskvöld. M.a. eru Logar með tónleika og sögustund í gömlu Höllinni í kvöld. �?angað stefna margir því miðar eru að klárast. Í tilefni af goslokafmælisins er hér […]
Búkollusteinn skal hann heita

Ráðhúströðin var áður opin frá Kirkjuvegi að Skólavegi. Nú hefur henni verið lokað við Alþýðuhúsið með steinum. Á facebooksíðunni �??Okkar Heimaey�?? er skemmtileg söguskýring og þar var uppákoma á fyrsta degi í goslokum: �??Steinninn við Ráðhúströð hefur vakið nokkra undrun en hann hefur hlotið nafnið Búkollusteinn. �?annig er í pottinn búið að fyrir ári síðan […]
�?urfum ekki að biðjast afsökunar á að búa á landsbyggðinni

Hvað er með þessa Vestmannaeyinga, alltaf rífandi kjaft, hvað haldið þið eiginlega að þið séuð? �?annig hófst einn netpósturinn sem barst á ritstjórnina. Kannski ekki nema von. Vinnslustöðin er með kæru í gangi varðandi sérstaka veiðigjaldið. Saman kærði Ísfélagið og Vinnslustöðin úthlutun á makríl sínum tíma. Vestmannaeyjabær fór í mál vegna sölunnar á Berg-Huginn. Allt […]
Fiskbúð á ný í Eyjum

Jónas �?lafsson og Sæunn Erna Sævarsdóttir opnuðu í vikunni Fiskbarinn að Bárustíg 1 þar sem áður var FabLab. �?au bjóða upp á ferskan fisk, fisrétti tilbúna í ofninn, djúpsteiktan fisk og franskar og sjávarréttasúpur sem hægt að taka með heim eða borða á staðnum. Fiskibarinn er mjög snyrtilegur og þar er hægt að tylla sér […]
Eyjakvöld Blítt og létt hópsins í Höllinni í kvöld

Blítt og létt hópurinn, sem slegið hefur rækilega í gegn á Kaffi Kró undanfarna vetur og spilað í Hörpu og í ráðherraveislu í ár við góðan orðstír, mun troða upp í Höllinni í kvöld. �?etta er að sjálfsögðu frábær upphitun fyrir goslokahelgina og �?jóðhátíðina. Hópurinn stóð fyrir sams konar upphitun í fyrra og þá var […]