�?jóðhátíðin 2014 er að baki en hátíðin var sem fyrr í flesta staði afar vel heppnuð. Aðsókn hefur sjaldan verið meiri en talið er að í brekkunni í gærkvöld hafi um 15 þúsund manns tekið undir með Ingó Veðurguði sem stýrði brekkusöngnum í annað sinn. Á undan honum voru Fjallabræður og Lúðrasveit Vestmannaeyja með vel heppnaða tónleika þar sem kallaðir voru fram þrír söngarar, Sverrir Bergmann, Jónas Sig og Helgi Björns. �?að gustaði hins vegar hressilega í Herjólfsdal í gærkvöld, þannig að um miðnætti var ákveðið að opna Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja þannig að tjaldbúar gætu leitað skjóls þar enda voru tjöld farin að fjúka í Dalnum. Fjölmargir nýttu sér það og lögðu sig í íþróttasölunum. Tíu fíkniefnamál komu upp í nótt, allt neysluskammtar en lög- og öryggisgæsla var mjög öflug alla helgina. Engin líkamsárás hefur verið kærð eftir gærkvöldið þótt eitthvað hafi verið um smápústra.
�?jóðhátíðargestir flykkjast nú niður á bryggju þar sem Herjólfur og Víkingur flytja flesta gestina til Landeyjahafnar. Flugfélagið Ernir flytur einnig hundruði gesta til Reykjavíkur og heldur uppi loftbrú milli lands og Eyja þessa stundina. Hreinsunarstarf í Herjólfsdal hófst strax í morgunsárið og Eyjamenn eru flestir búnir að taka niður hvítu tjöldin. Eins og alltaf er talsvert rusl eftir þjóðhátíðina en alltaf hefur gengið bæði vel og hratt fyrir sig að hreinsa Dalinn.
�?egar upp er staðið er �?jóðhátíð 2014 með þeim betri sem haldnar hafa verið. �?etta er reyndar hægt að segja ár eftir ár, enda er hátíðin einfaldlega sú lang besta. Ástæðan er einföld, 140 ára reynsla að baki og �?jóðhátíð verður bara betri með árunum.
Fréttinni fylgir stutt myndband frá Tuborg TV.