Eyjamenn teknir í bakaríið
KR-ingar niðurlægðu Eyjamenn í undanúrslitum bikarsins í kvöld en liðin áttust við á Hásteinsvelli. 1303 áhorfendur, langflestir á bandi ÍBV, fylgdust agndofa með KR-ingum komast í 1:5 áður en Eyjamenn minnkuðu muninn í lokin. �?ví er ekki hægt að neita að KR er einfaldlega með betra lið en ÍBV en miðað við gang mála í fyrri hálfleik, þá var það virkilega ósanngjarnt að gestirnir væru 0:2 yfir þegar gengið var til leikhlés. Eyjamenn minnkuðu reyndar muninn í 1:2 strax í upphafi síðari hálfleiks en þá settu KR-ingar einfaldlega í gír og völtuðu yfir ÍBV.
ÍBV fékk fjölda færi í fyrri hálfleik og í raun ótrúlegt að Eyjamenn skildu ekki komast yfir. �?annig fékk Jonathan Glenn tvö úrvalsfæri en skallaði yfir strax á 7. mínútu og svo varði markvörður KR vel frá honum á 29. mínútu. �?vert á gang leiksins komst KR svo yfir tveimur mínútum síðar og þeir bættu svo við öðru marki í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Algjör óþarfi að fá þetta mark á sig og sumir leikmenn eflaust komnir hálfa leið inn í búningsklefa í huganum.
En það lifnaði heldur betur yfir áhorfendum strax í byrjun síðari hálfleik þegar Jonathan Glenn skoraði og minnkaði muninn í 1:2. Flestir héldu að nú myndi Eyjamenn gera harða hríð að marki KR-inga en annað kom á daginn. Vissulega reyndu Eyjamenn að sækja en fyrir vikið opnaðist vörn ÍBV upp á gátt og það nýttu KR-ingar sér. �?eir bættu við þremur mörkum og flestir á vellinum orðnir hálf þunglyndir, aðeins degi fyrir þjóðhátíð. Andri �?lafsson minnkaði svo muninn í lokin en það var auðvitað orðið allt of seint.
�?ar með er Evrópudraumur Eyjamanna úr sögunni. Liðið á enga möguleika á að ná Evrópusæti í deildinni, enda ættu leikmenn og þjálfarar að einbeita sér að því fyrst og fremst að tryggja sætið í deildinni. �?að væri í raun og veru ákveðinn sigur miðað við gengi liðsins í byrjun sumars en Evrópudraumurinn og bikarævintýrið bíður betri tíma.

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.