Eyjamenn í átta liða úrslit

Eyjamenn eru komnir í átta liða úrslit Borgunarbikarsins eftir glæsilegan 3:0 sigur á Val í kvöld. Leikurinn var ágætis skemmtun þar sem bæði lið fengu sín færi en að lokum voru það Eyjamenn sem nýttu sín og uppskáru verðskuldaðan sigur. Framherjinn Jonathan Glenn, sem var talsvert gagnrýndur í upphafi móts, hefur fundið markaskóna því hann […]

Komum fram af fullum heilindum gagnvart Kára

Á vefmiðlinum visi. is er viðtal við Kára Kristján Kristjánsson handknattleiksmann og fyrrum leikmann með ÍBV Íþróttafélagi. Í viðtalinu kemur fram hörð gagnrýni á handknattleiksdeildina og er ÍBV m.a. sakað af Kára að stinga hann í bakið og standa ekki við gerða samninga. Fram kemur hjá Kára að viðræður hafi hafist í byrjun maí og […]

Konur minnast kvenréttindadagsins í Sagnheimum

Konur ætla að minnast kvenréttindagsins 19. júní í Sagnheimum. �?ar verður boðið uppá súpu kl. 12 á hádegi. Gunnhildur Hrólfsdóttir rithöfundur og sagnfræðingur ætlar að kynna óútkomna bók sína �??�?ær þráðinn spunnu�?? en hún fjallar um konur í Eyjum 1835-1980. Í fyrirlestrinum fjallar hún um nokkrar þeirra kvenna sem með fórnfýsi, hugrekki og glaðværð áttu […]

Aðeins fjórum leikjum frá bikarmeistaratitli

Hún er ekki góð staðan hjá körlunum í ÍBV, fjögur stig í deildinni eftir átta leiki og liðið í neðsta sætinu. Ljósi punkturinn er að Eyjamenn eru taplausir síðustu fjóra leiki og komust í 16 liða úrslitin í bikarnum þar sem þeir mæta Val á Hásteinsvelli klukkan 18.00 í kvöld. Fyrir rúmri viku lauk viðureign […]

Frústi á klósettinu

Í tilefni af útkomu bókarinnar �??Fimm maurar, orðaleikur í máli og myndum�?? sem heimilislæknirinn Ágúst �?skar Gústafsson skrifaði og gaf út, hélt hann útgáfuteiti í Eymundsson, síðastliðinn mánudag. �?ar áritaði höfundurinn bókina fyrir þá sem þess óskuðu. – Sönghópurinn Stuðlar mætti á staðinn og skemmtu í útgáfuteitinu og hér má sjá myndband úr teitinu. Ágúst, […]

Kári Kristján sár út í ÍBV

Eyjamaðurinn hrausti, Kári Kristján Kristjánsson sem hefur leikið sem atvinnumaður síðustu ár í handbolta, segist svekktur út í ÍBV. Kári segir í viðtali á Vísi.is að félagið hafi komið illa fram við sig en samningaviðræður um að Kári myndi ganga í raðir ÍBV höfðu verið í gangi síðustu vikur. �??Viðræðurnar við ÍBV voru komnar á […]

Dagskrá 17. júní í Eyjum

Kl. 09.00 Fánar dregnir að húni í bænum. Kl. 10.30 Hraunbúðir Fjallkonan �?? Sóley Guðmundsdóttir flytur hátíðarljóð. Tónlistaratriði �?? Guðmundur Davíðsson. Kl. 15.00 Lúðrasveit Vestmannaeyja leikur fyrir vistmenn og hátíðargesti. Kl. 13.20 Bæjarbúar og aðrir gestir safnast saman við íþróttamiðstöðina fyrir skrúðgöngu. Gengið verður frá íþróttamiðstöðinni niður Illugagötu og Hásteinsveg að Stakkó í lögreglufylgd. Félagar […]

Barn læstist inni í bifreið

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið enda fjöldi fólks í bænum í tilefni af Pæjumótinu. M.a. þurfti lögreglan í tvígang að opna bifreiðar þar sem lyklar höfðu verið læstir inni í þeim. Í öðru tilvikinu var barn læst inni í bifreið en allt leystist þetta farsællega og engum varð meint af. […]

Logar fagna 50 ára afmæli í ár

Hljómsveitin Logar verður 50 ára í ár, var stofnuð árið 1964. Upphaflegir hljómsveitarmeðlimir voru Grétar Skaptason, Helgi Hermannsson, Henry A. Erlendsson, Hörður Sigmundsson og �?orgeir Guðmundsson. Árið 1967 gekk Hermann Ingi Hermannsson til liðs við sveitina. Sveitin náði strax miklum vinsældum í Vestmannaeyjum og spilaði um hverja helgi í Samkomuhúsinu, þar sem nú er Hvítasunnukirkjan. […]

Glæsilegu pæjumóti lokið

Pæjumótinu lauk síðastliðinn laugardag og tókst mjög vel Um 800 stelpur tóku þátt mótinu auk þess fylgdu liðunum nokkur hundruð manns, foreldrar og aðstandendur. Glöggt mátti sjá á bæjarbragnum hve gestir mótsins settu sterkan svip á hann meðan á mótinu stóð. Halldór Bendikt brá sér að vettvang knattlistarinnar á laugardaginn, þegar úrslitaleikirnir fóru fram og […]

Jafnteflisliðin skildu jöfn

ÍBV gerði fjórða jafnteflið í Pepsídeildinni þegar liðið sótti Breiðablik heim. �?essi tvö lið eru því enn án sigurs en ekki án jafntefla því ÍBV hefur gert fjögur jafntefli það sem af er Íslandsmótsins og Breiðablik sex. Heimamenn í Breiðabliki komust yfir strax á 8. mínútu en Blikar voru sterkari aðilinn lengst af í leiknum. […]

Fyrsti sigurinn í dag?

�?að eru meiri líkur en minni að ÍBV eða Breiðablik vinni sinn fyrsta sigur í dag. Bæði lið eru án sigurs eftir sjö leiki í Pepsídeild karla og því mikið undir í dag. ÍBV hefur til þessa gert þrjú jafntefli en tapað fjórum leikjum en á sama tíma hefur Breiðablik gert fimm jafntefli en tapað […]

Auðvelt hjá KFS í dag

KFS vann auðveldan sigur á Mídas í dag en liðin áttust við á Helgafellsvelli. Lokatölur urðu 6:0 eftir að staðan í hálfleik var 2:0 en markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir KFS og er nú orðin markahæstur með sex mörk í fjórum leikjum. �?nnur mörk gerðu þeir Guðjón �?lafsson, Pétur Geir Svavarsson, Valur Smári […]

Af biðlistum og Herjólfi

Á facebooksíðu sinni skrifar Sigurður Oddur Friðriksson um reynslu sína af löngum biðlista fyrir bíla um borð í Herjólfi. Hann skrifar: �??Er þetta fullbókaður Herjólfur. Vorum að koma með 13-ferðinni á mánudag 09.06 og hringdum til að athuga með far fyrir tjaldvagn en var tjáð af miðasölunni að skipið væri fullbókað og biðlistinn væri það […]

Kvennahlaupið í dag

Kvennahlaup ÍSÍ er haldið í dag, laugardaginn 14. júní. �?etta er í 25. sinn sem Kvennahlaupið er haldið en hlaupið fer fram á 85 stöðum hérlendis og 20 stöðum erlendis. Kvennahlaupið hefur verið haldið í Vestmannaeyjum í mörg ár en hlaupið verður frá Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja klukkan 12:00 en vegalengdirnar sem eru í boði eru 2,2 […]

Umgengni lýsir innri manni

Nú er í gangi átak við að merkja og hreinsa upp númerslausar bifreiðar af lóðum og götum sveitarfélagsins. Í hreinsunarvinnunni felst að skrifleg áminning verður límd á númerslausar bifreiðar, þar sem viðkomandi eigendum er gefinn viku frestur til að fjarlægja þær. Að þeim tíma liðnum mun Vaka ehf, fjarlægja viðkomandi bifreiðar á kostnað eigenda sinna […]

Kona slasaðist í Dalfjalli

Um klukkan sjö í gærkvöldi var lögregla og sjúkrabíll kölluð út vegna slasaðrar konu í Dalfjalli. Hún hafði verið við göngu á fjölfarinni gönguleið á Dalfjalli þegar hún hrasaði og hlaut við það opið ökklabrot. Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað til aðstoðar við að koma konunni niður af fjallinu og í sjúkrabíl. Konan var flutt á […]

Kormákur og Skjöldur

Bolakálfarnir Kormákur og Skjöldur hafa dafnað vel í vetrardvöl sinni á Breiðabakka. Ekki ennað að sjá en að þeim líki vistin vel. Hróður þeirra hefur flogið víða og í síðustu viku komu stórbændur úr Landeyjum í heimsókn til Eyja. Skoðuðu þeir Eyjarnar undir vaskri stjórn Hermanns Einarssonar. �?eir áttu sér eina ósk, að fá að […]

Pæjumótið hófst í morgun

Pæjumót ÍBV og TM hófst í morgun en keppendur voru að týnast til Vestmannaeyja í gær, miðvikudag. Dagskrá mótsins er með hefðbundu sniði, fyrstu leikirnir byrjuðu upp úr átta í morgun og verður leikið fram á kvöld í dag og á morgun. Mótinu lýkur svo með úrslitaleikjum um miðjan dag á laugardag en keppendur og […]

Goslokalagið heitir �?skuslóð

Hér má hlýða á Goslokalagið 2014. Lagið ber nafnið �?skuslóð og er eftir Helga Tórshamar og Gísla Stefánsson en textann semja þau Inga Guðgeirsdóttir og Sævar Helgi Geirsson. �?að er hljómsveitin Afrek sem flytur lagið. Sævar Helgi syngur, Helgi spilar á kassagítar og raddar, Gísli spilar á gítar, �??slide�??gítar og raddar. Aðrir hljóðfæraleikarar eru Kristinn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.