Bæjarstjóri og söngvari áttu fund um �?jóðhátíð
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, átti fund í Reykjavík í gær með Unnsteini Manúel Stefánssyni söngvara í Retro Stefson um �?jóðhátíð og viðbúnað gegn kynferðisbrotum á hátíðinni. Retro Stefson er ein af sjö hljómsveitum sem hafa lýst því yfir að þær komi ekki fram á �?jóðhátíð nema stefnubreyting verði á upplýsingagjöf lögreglu um kynferðisbrotamál á hátíðinni. Elliði vildi lítið ræða um efni fundarins og taldi sig ekki hafa heimild til að ræða hvað fram hefði komið í þeirra samtali.
Elliði segir að Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, sem er í Reykjavík í sumarleyfi, hafi einnig komið á fundinn. Elliði leggur áherslu á að bæjaryfirvöld hafi ekki aðkomu að �?jóðhátíð að öðru leyti en að leggja til aðstöðu. Hann telji að mæta þurfi því sem þessar hljómsveitir benda á en það sé milli þjóðhátíðarnefndar og listamannanna. �?á verði lögreglan aldrei þvinguð í eitt né neitt og hún myndi aldrei taka ákvarðanir sem kunni að gagnast einungis hagsmunum þjóðhátíðar. Elliði segir að þeir Unnsteinn Manúel ætli að tala saman aftur seinna í dag. Elliði segir að það sé sameiginlegt hagsmunamál þeirra Unnsteins hvernig draga megi úr kynferðisbrotum og líkum á því að brotið sé á fólki. Elliði segir að það sé ekki markmið hans að tryggja að hljómsveitirnar komi fram þótt hann vonist til þess að þær geri það. Listamennirnir hafi fullt frelsi til að velja hvar þeir spila. Hægt verði að leysa þetta mál eins og hver önnur. Málið hófst með yfirlýsingu sem hljómsveitirnar og listamennirnir Retro Stefson, �?lfur �?lfur, Agent Fresco, Emmsjé Gauti og Sturla Atlas sendu frá sér í gær. Hljómsveitin Dikta og rapparinn GKR bættust í hópinn síðar um daginn og hljómsveitin Quarashi lýsti stuðningi við ákvörðun listamannanna.
Ruv.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.