Bara ekki KR
Daninn Rasmus Christiansen sem spilað með ÍBV fyrir nokkrum árum mun spila með KR næsta sumar. Rasmus lék lykilhlutverk í vörn ÍBV á sínum tíma og var af honum mikill missir þegar hann yfirgaf liðið. Vísir.is segir frá því að hann hafi skrifaði undir samning við KR í nóvember en þó með þeim formerkjum að hann gæti farið til annars félags í janúarglugganum. Af því varð ekki og Rasmus er því samningsbundinn KR næstu tvö árin.
Rasmus er í viðtali við danska miðilinn bold.dk og þar greinir hann frá því að hans gamla félag, ÍBV, hafi ekki verið spennt fyrir því að hann færi í KR.
�??KR er félag sem fólk elskar eða hatar. �?eir höfðu áhuga á mér áður en ég fór til Noregs. �?á vildi ÍBV að ég færi frekar í FH eða Stjörnuna. Bara eitthvað annað félag en KR,” sagði Rasmus.
Hann er að jafna sig eftir krossbandsslit og verður væntanlega kominn á fullt áður en Pepsi-deildin hefst. Hann er að koma til KR frá norska félaginu Ull/Kisa en þangað fór hann frá ÍBV.

Nýjustu fréttir

„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.