Bílhræ fjarlægð á kostnað eigenda
Á næstunni mun Vestmannaeyjabær, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og lögreglan í Vestmannaeyjum hefja sameiginlegt átak sem miðast að því að fækka bílhræjum á götum bæjarins. Byrjað verður á því að merkja og hreinsa upp númerslausar bifreiðar af lóðum og götum bæjarins. Byrjað verður á skriflegri áminningu, sem límd verður á númerslausar bifreiðar og viðkomandi eigendum gefinn viku frestur til að fjarlægja þær. Að þeim tíma liðnum mun Vaka ehf fjarlægja viðkomandi bifreiðar á kostnað eigenda sinna og draga þær í Vökuportið í Reykjavík. Vaka sendir bifreiðaeigendunum bréf þar sem þeir verða áminntir um gjaldfallinn kostnað og hvattir til að ganga frá sínum málum, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu. Sé bifreið leyst út af eiganda greiðir sá hinn sami fyrir kostnað sem á bifreiðina hefur fallið. Kostnaður við að fjarlægja eina bifreið felst í flutningi hennar til Reykjavíkur ásamt geymslugjaldi pr. dag í Vökuportinu og innskriftargjaldi.
�??Sveitarfélagið hvetur alla til að sameinast í átakinu. Tökum höndum saman og göngum vel um. �??Umgengni lýsir innri manni.�??

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.