Bjartey opnar sýningu í Einarsstofu á morgun
SONY DSC
SONY DSC
Bjartey Gylfadóttir opnar málverkasýningu í Einarsstofu á morgun, þann 17. júní. Er þetta fimmta sýning Bjarteyjar og kallar hún hana Heimaslóð enda leitar hún ekki langt yfir skammt í leit að mótívum, þau eru Vestmannaeyjar séðar frá mismunandi sjónarhorni.
Auk þessara fimm sýninga hefur Bjartey tekið þátt í allnokkrum samsýningum. Að þessu sinni er sýningin einungis tengd Vestmannaeyjum og ber heiti hennar þess merki. Bjartey er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og starfar sem myndlistakennari í Grunnskóla Vestmannaeyja en er í fæðingarorlofi núna.
Hún er með kennarapróf frá Háskólanum á Akureyri með myndlist sem sérgrein. Einnig hefur hún sótt mörg myndlistarnámskeið. Bjartey var útnefnd bæjarlistamaður Vestmannaeyja árið 2013.
Sýningin verður opnuð klukkan 14.30 og þar sýnir Bjartey 30 verk, allt olíumálverk af öllum stærðum. �??�?etta eru myndir sem ég hef verið að mála frá 2013 og til dagsins í dag. �?rjár myndir hef ég sýnt áður á þemasýningum hjá Myndlistafélagi Vestmannaeyja, annars vegar þema út frá textum Ása í Bæ og hins vegar þemað þjóðsögur. �?essar myndir tengjast eyja þemanu mínu mjög vel. Annars eru þetta mest landslagsmyndir og í sumum þeirra nota ég plastfilmu til að ná fram ákveðnum áhrifum í myndunum. Sýningin mun standa að tvær vikur,�?? sagði Bjartey.
Hér fylgja með nokkrar myndir sem verða á sýningunni.

Nýjustu fréttir

Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.