Breytum þessu
Guðbrandur Einarsson
Guðbrandur Einarss IMG 3169
Guðbrandur Einarsson

Fyrir gamlan hund í pólitík hefur þessi kosningabarátta verið alveg einstök. Þar spilar margt inn í. Við í Viðreisn finnum sterkt fyrir því að þjóðin þráir breytingar. Við höfum um árabil verið pikkföst í hjólfari og látið telja okkur trú um að allt sé svo frábært og gott og að hagsmunum okkar sé best borgið með því að standa ein og gera helst ekki neitt, svolítið eins og Bjartur í Sumarhúsum sem sumir telja til átrúnaðargoða sinna en mörg okkar höfum lítið álit á. Um leið og við þurfum sífellt að takast á við verkefni dagsins er algjörlega nauðsynlegt að horfa til framtíðar, ekki bara fyrir okkur heldur fyrir börnin okkar.

Frjálslynd og framtíðarmiðuð

Viðreisn hefur nálgast þessa kosningabaráttu með mikilli virðingu fyrir þeim verkefnum sem þarf að takast á við. Þar er auðvitað efst á blaði staða heimilanna sem mörg hver standa höllum fæti vegna hárra vaxta og sífellt hækkandi matarverðs. Andleg líðan ungmenna er ekki síður forgangsmál og á því verður að taka með öllum ráðum, útrýma biðlistum og koma börnum í þá meðferð sem þau þurfa á að halda. Börn eiga ekki að vera á biðlista.

Að standa með fólki þar á auðvitað vera sjálfsagt mál. Þar hefur Viðreisn markað sér skýra stefnu á öllum sviðum, að fólk fái að vera það sjálft og þess vegna líður mér svo vel að skilgreina Viðreisn sem frjálslyndan og framtíðarmiðaðan flokk.

Nú er tækifærið

Skoðanakannanir undanfarinna vikna staðfesta rækilega að þjóðin er til í þær breytingar sem Viðreisn boðar. Breytingar sem fela í sér að ráðist verði gegn viðvarandi hallarekstri ríkisjóðs sem mun skila sér í minni verðbólgu og lægri vöxtum. Lækkandi vöxtum bæði fyrir ríkissjóð og heimilin í landinu. Að skynja þennan vilja til breytinga út um allt samfélag vekur upp vonir um hér verði hægt að stíga ákveðin skref fram á við. Fyrir okkur öll.

Þjóðin á það skilið. Breytum þessu og breytum þessu saman.

 

Guðbrandur Einarsson
Oddviti Viðreisnar i Suðurkjördæmi.

Nýjustu fréttir

Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.