Brotist inn í Rauðagerði
Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar gekk með ágætum og fá útköll á öldurhús bæjarins. Að vanda var eitthvað um kvartanir vegna hávaða frá heimahúsum en það leystist allt farsællega og án eftirmála.
Að morgni 4. maí sl. var lögreglu tilkynnt að farið hafi verið inn í frístundaverið Rauðagerði v/Boðaslóð og þaðan stolið skiptimynt úr sjoppu frístundaversins. Talið er að stolið hafi verið um kt. 7.000 – 10.000,-. Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki en talið er að þjófnaðurinn hafi átt sér stað að kvöldi 3. maí sl. �?eir sem einhverjar upplýsingar hafa um þá sem þarna voru á ferð eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Um miðjan dag þann 1. maí sl. var lögreglu tilkynnt um að ekið hafi verið utan í bifreið sem stóð á bifreiðastæðinu við Íþróttamiðstöðina og sá sem tjóninu olli hafi farið í burtu án þess að láta vita af óhappinu. �?eir sem upplýsingar hafa um atvikið eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Tvær kærur liggja fyrir eftir vikuna vegna brota á umferðarlögum, í öðru tilvikinu var um ólöglega lagningu ökutækis að ræða en í hinum var ökumaður staðinn að því að tala í farsíma í akstri án þess að nota handfrjálsan búnað.

Nýjustu fréttir

Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjakonur vilja styrkja stöðu sína í þriðja sæti
Eyjamenn leika síðasta heimaleik tímabilsins í dag
Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.