Vel heppnuð goslokavika er nú að baki og er dagurinn í dag sá síðasti hátíðarinnar. Sunnudagsdagskrána má sjá hér að neðan.
10:00/11:30/13:00 Friðarhöfn: Skoðunarferðir um seiðaeldisstöð og skipulagðar rútuferðir á landeldissvæði ILFS í Viðlagafjöru. Skráning fer fram á netfanginu goslok@vestmannaeyjar.is eða í síma 488 2066.
10:00-17:00 Einarsstofa, Safnahúsi: GZERO, Gerður Guðríður Sigurðardóttir.
10:00-17:00 Stafkirkjan: „Metafor” Rósanna Ingólfsdóttir Welding.
10:00-18:00 Akóges: „Gluggi vonarinnar” Vilhjálmur Vilhjálmsson frá Bustarfelli.
11:00 Landakirkja: Göngumessa frá Landakirkju, súpa og brauð í lok göngunnar.
11:00-17:00 Eldheimar: Hulda, Jón og Heiða.
12:00-18:00 Svölukot, Strandvegi 95: „Undir listregni” Stapafjölskyldan.
13:00-15:00 Bárustígur: Kristey.is með opinn bás.
13:00-17:00 Hrútakofinn: „Hitt og þetta” Hólmfríður Ólafsdóttir.
13:00-17:00 Viðey, Vestmannabraut 32: „Listin í leikföngunum” Berglind Sigmarsdóttir.
13:00-18:00 Básar: „Það sem dvelur í þögninni” Aldís Gló Gunnarsdóttir.
13:00-18:00 Miðskúrinn í Sandprýði, Skipasandi: Bjartey Gylfadóttir.
14:00 Sagnheimar: Japanstogararnir. Siglt heim í skugga eldgoss.
14:00-17:00 Þekkingarsetur Vestmannaeyja: Erlendur Bogason og Örn Hilmisson sýna lifandi myndir og ljósmyndir. Erlendur verður með stutt erindi kl. 15:00. Gleðigjafarnir selja vöfflur.
14:00-17:00 Skúrinn við Vestmannabraut 38: Fjölbreytt sýning sex listamanna.
14:00-17:00 Flakkarinn – Listrými, Skólavegi 15a: Jóna Heiða Sigurlásdóttir.
14:00-18:00 Stakkó: „Undir bláhimni” Félagar úr Lista- og menningarfélagi Vestmannaeyja.
14:00-18:00 GELP-króin, Strandvegi 69: „Þetta er fínt svona” Viðar Breiðfjörð.
14:00-18:00 Strandvegur 50: Handverksmarkaður, opnar vinnustofur og sýningar.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.