Dramatískur sigur Vals á ÍBV
Valur tók á móti ÍBV í 8. umferð Pepsi deildar kvenna í dag þar sem Valur skoraði sigur markið í uppbótatíma og hafði betur 3-2.
Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði fyrsta mark leiksins á tólftu mínútu leiksins, mikið fjör var í fyrri hálfleik og Valsstúlkur jöfnuðu þegar Katia Maanane skoraði. Shaneka Gordon kom svo ÍBV yfir í uppbótatíma í fyrri hálfleik og ÍBV leiddi því í hálfleik.
Berglind Rósa Ágústsdóttir jafnaði metin fyrir Val á 70. mínútu og var allt í járnum þangað til þrjár mínútur voru liðnar af uppbótatíma þegar Vesna Elísa Smiljkovic, fyrrverandi leikmaður ÍBV skoraði sigur mark Vals.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.