Aðstæður hafa skánað í Landeyjahöfn og er Herjólfur því á leiðinni þangað núna, sagði í tilkynningu frá Herjólfi ohf. klukkan 15.15 í dag.
Þar segir jafnframt að brottför sé frá Landeyjahöfn er kl. 18:15 og er það síðasta ferð kvöldsins. Hvað varðar siglingar fyrir morgundaginn verður gefin út tilkynning fyrir kl. 08:30 í fyrramálið.
Uppfært kl. 16.25.
Herjólfur stefnir á að sigla til Landeyjahafnar sunnudaginn 27.október skv. áætlun.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 09:30, 12:00, 14:30, 17:00, 19:30, 22:00.
Brottför frá Landeyjahöfn kl. 10:45, 13:15, 15:45, 18:16, 20:45, 23:15.
Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst