Einar Sverrisson áfram hjá ÍBV
Einar Sverrisson, leikmaður ÍBV, hefur framlengt samning sinn við félagið til eins árs. Einar sem kom frá Selfyssingum fyrir síðustu leiktíð átti fínasta tímabil með ÍBV.
ÍBV varð bikarmeistari en datt úr keppni í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Fyrr í dag skrifaði Kári Kristján Kristjánsson undir leikmannasamning við ÍBV og er ljóst að Eyjaliðið ætlar sér stóra hluti á næstu leiktíð.
Undirskriftin fór fram á Tanganum, sem er nýr og skemmtilegur veitingastaður hér í bæ.
Fréttatilkynningu ÍBV má sjá hér að neðan.
“Handknattleiksráð ÍBV hefur framlengt samning til eins árs við Einar Sverrisson.
Einar er 23 ára gamall, fæddur, uppalinn og akademíugenginn á Selfossi. Hann gekk til liðs við ÍBV fyrir síðasta tímabil og stóð sig afar vel þar sem hápunktinum var náð bikarhelgina góðu í febrúar er titlinum var siglt heim til Eyja með Herjólfi.
Einar hefur alla burði til að ná í fremstu röð og er það handknattleiksdeild mikið ánægjuefni að hafa hann hjá okkur í a.m.k eitt ár en.
Handknattleiksdeild ÍBV vill þakka handknattleiksdeild Selfoss fyrir lánið á góðum dreng. Selfyssingar eiga mikið hrós skilið fyrir frábært uppbyggingastarf á undanförnum árum sem aðrir njóta góðs af í dag sbr. Íslandsmeistarar Hauka, deildarmeistarar Vals og bikarmeistarar ÍBV. ÍBV lofar að fara vel með drenginn og skila honum í toppstandi og tilbúinn í titlasöfnum fyrir sitt heimafélag.
ÍBV hlakkar til annars tímabils með Einari og Lenu á Eyjunni fögru og vonandi verður það jafn ánægjulegt og það sem nú liðið er.
ÁFRAM ÍBV, alltaf og alls staðar.”

Nýjustu fréttir

SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.