Eitt tilboð barst í endurbætur á Fiskiðjuni
Framkvæmdar- og hafnarráð fundaði í gær þar sem nokkur mál voru á dagskrá þar á meðal upplýsingar um útboð annars vegar í Fiskiðjuna og hins vegar í Barnaskólann.
�?ann 15.júní sl. voru opnuð tilboð í endurbætur á Fiskiðjunni. Eitt tilboð barst. 2�? ehf. kr. 158.765.585
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr. 167.787.000 Samþykkt að fela framkvæmdastjóra að ganga til samninga við bjóðanda á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs. Meirihlutinn samþykkti þá bókiun en Georg Eiður Arnarsson var með sér bókun sem hljóðar svona; �?ar sem ekki liggur fyrir hvernig eigi að nýta þetta húsnæði í framtíðinni, tel ég rétt að fresta fyrirhuguðum úrbótum og legg ég til að þetta fjármagn sem eyrnamerkt er þessu verkefni, verði frekar nýtt til þess að hefja stækkun á Hraunbúðum, enda þörfin þar gríðarleg og að mínu mati er það verkefni miklu brýnna en þessar endurbætur á húsi Fiskiðjunnar.
Einnig var tekið fyrir útboð sem snéri að Barnaskólanum og hljóðar bókun ráðsins á þessa leið.
Ekkert tilboð barst í utanhússviðgerðir á Barnaskólanum en til stóð að hefja 1. áfanga í sumar.
Ráðið felur framkvæmdastjóra að leita leiða til að ráðist verði í nauðsynlegar framkvæmdir utanhúss.

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.