Ekkert siglt í dag
Baldur á leið frá Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Enn er ófært til lands og er búið að fella niður seinni ferð dagsins einnig.  Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. segir að seinni ferð dagsins falli einnig niður vegna veðurs og sjólags. Þeir farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína. Ákvörðun sem þessi er alltaf tekin með hagsmuni farþega og áhafnar í huga, vonum við að farþegar sýni því skilning.

Baldur siglir til Þorlákshafnar fyrri ferð á morgun. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45. Hvað varðar siglingar fyrir morgundaginn verður gefin út tilkynning kl. 14.30. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni.

Nýjustu fréttir

Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Þóra Guðný og Sveinn flutt í nýja húsið
ÍBV mætir KR á Meistaravöllum í kvöld
Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.