Ekki til neins að halda samstarfinu áfram
Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi.

„Ég get ekki sagt það. Ályktun frá Landsfundi VG um stjórnarsamstarfið við Sjálfstæðisflokkinn og óvarlegar yfirlýsingar nýkjörins formanns VG um samstarfið voru vendipunktur. Þegar stjórnarsamstarfið var endurnýjað eftir brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur var sameinast um mikilvæg mál eins og efnahagsmál, orkumál og útlendingamál. Það kom síðan í ljós að VG ætlaði sér ekki að standa við þetta samkomulag,“ segir Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Suðurkjördæmi þegar hann var spurður hvort tíðindin á sunnudag hafi komið  á óvart.

 Þegar sú staða var komin upp var ekki til neins að halda samstarfinu áfram. Það var heldur ekki rétt gagnvart þjóðinni. Í grunninn var þetta þannig að VG, með nýjum formanni, voru ekki tilbúnir að standa við samkomulag um verkefni ríkisstjórnarinnar sem þeir höfðu samþykkt nokkrum mánuðum áður. Þessu samstarfi var því sjálfhætt og ég tel að formaður flokksins hafi tekið rétta ákvörðun með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi,“ segir Birgir.

Hluti úr viðtali sem birtist í Víkurfréttum.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns
Toppliðin takast á í lokaleik Olísdeildarinnar
Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.