Eldheimar keppa um Eyrarrósina
Menn­ing­ar- og fræðslu­setrið Eld­heim­ar í Vest­manna­eyj­um, alþjóðlega lista­hátíðin Fersk­ir vind­ar, sem fram fer í Garði, og Verk­smiðjan á Hjalteyri, listamiðstöð með sýn­ing­ar­sali og gesta­vinnu­stof­ur í gam­alli síld­ar­verk­smiðju Kveld­úlfs við Eyja­fjörð keppa um Eyr­ar­rós­ina í ár.
Í árs­byrj­un var til­kynnt hvaða tíu verk­efni prýða Eyr­ar­rós­arlist­ann í ár. �?að varð svo niðurstaða val­nefnd­ar Eyr­ar­rós­ar­inn­ar 2016 að að verk­efn­in þrjú komi til greina.
Hvert verk­efn­anna þriggja hlýt­ur pen­inga­verðlaun og flug­miða frá Flug­fé­lagi Íslands. �?að kem­ur svo í ljós 18. fe­brú­ar næst­kom­andi hvert þeirra hlýt­ur Eyr­ar­rós­ina 2016. �?á af­hend­ir Dorrit Moussai­eff, for­setafrú og vernd­ari Eyr­ar­rós­ar­inn­ar, verðlauna­haf­an­um 1.650.000 krón­ur, við hátíðlega at­höfn í Frysti­klef­an­um á Rifi.
Eyr­ar­rós­in er viður­kenn­ing sem veitt er framúrsk­ar­andi menn­ing­ar­verk­efni á starfs­svæði Byggðastofn­un­ar. Viður­kenn­ing­in hef­ur verið veitt ár­lega frá 2005 og er henni ætlað að beina sjón­um að og hvetja til menn­ing­ar­legr­ar fjöl­breytni, ný­sköp­un­ar og upp­bygg­ing­ar á sviði menn­ing­ar. Að henni standa Lista­hátíð í Reykja­vík, Flug­fé­lag Íslands og Byggðastofn­un.

Nýjustu fréttir

ÍBV í úrslit eftir sigur gegn Haukum
Erfið staða í Land­eyja­höfn
Tvær flugferðir á dag á meðan beðið er opnunar Landeyjahafnar
Hinkrum við, vöndum okkur betur
ÍBV mætir Tindastól í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins
Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.