EM í sjónmáli hjá konunum

„Það er mikilvægt að fá þessa aukaviku saman til undirbúnings þótt ekki séum við allar og þær vanti sem leika erlendis. Það er alltaf gaman með landsliðinu og við njótum þess að vinna saman og bæta okkar leik,“ sagði hin þrautreynda landsliðskona og leikmaður ÍBV, Sunna Jónsdóttir í samtali við handbolta.is fyrir eina af æfingum landsliðsins í vikunni.

Íslenska landsliðið hefur nýtt páskana til æfinga og framundan eru tveir leikir í undankepni Evrópumótsins, í Lúxemborg 3. apríl og á Ásvöllum 7. apríl gegn færeyska landsliðinu. Með sigri í leikjunum tryggir liðið sér farmiða á EM í fyrsta sinn í 12 ár.

„Við ætlum að láta drauminn rætast og tryggja okkur farseðil inn á stórmót, loksins. Nú er komið að því. Við erum í góðri stöðu og erum vel einbeittar á verkefnið sem eru þessir tveir leikir,“ sagði Sunna við handbolta.is.

Eyjamaðurinn Arnar Pétursson er þjálfari landsliðsins og sem hefur verið á uppleið frá því hann tók við liðinu.

Sunna fagnar bikarmeistaratitli með ÍBV á síðasta ári.

Mynd Sigfús Gunnar.

Nýjustu fréttir

Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.