Enn óljóst með kaup ríkis á Baldri
Ekki liggur fyrir hvort ríkið muni kaupa Baldur. Viðræður á milli Vegagerðarinnar, fyrir hönd innanríkisráðuneytisins, við Sæferðir ehf um kaup á Baldri hafa verið í gangi síðustu vikur að því að fram kemur í Morgunblaðinu í dag. �?ar segir jafnframt að ekki liggi fyrir hvort næg hagkvæmni fylgi kaupunum en Baldur er hugsaður sem varaskip, m.a. fyrir Herjólf.
�??�?að er fyrst og fremst verið að skoða það hvort Sæferðir geti fengið heimild til að skrá skipið ti að sigla á svokölluðu B-svæði yfir vetrartímann. �?að þarf að gera ákveðnar breytingar á skipinu svo þessi undanþága frá Samgöngustofu fáist. Meðan það liggur ekki fyrir hvort þessi heimild fæst mun ríkið ekki semja um þessi kaup,�?? segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri í Morgunblaðinu.
Í umfjöllun Morgunblaðsins segir jafnframt að stuttur tími sé til stefnu. Kaupendur á Grænhöfðaeyjum eru enn áhugasamir um að kaupa Baldur og hafa lokið við fjármögnun kaupanna en ekki verður hægt að sigla skipinu þangað eftir þrjár viku.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.