Erfiður leikur framundan hjá ÍBV
Erfitt verkefni bíður karlaliðs ÍBV í knattspyrnu en liðið sækir FH heim í Kaplakrikann klukkan 17:00 í dag. Eyjamenn hafa ekki farið vel af stað í Íslandsmótinu, byrjuðu á því að gera jafntefli gegn Fram á útivelli en í kjölfarið fylgdu tveir tapleikir á heimavelli. Síðasti leikur liðsins, gegn Fylki á Hásteinsvellinum fer því miður í sögubækurnar sem einn allra lélegasti leikur ÍBV í áraraðir. ÍBV er í 10. sæti, búnir að fá á sig sex mörk í þremur leikjum en ekkert lið í deildinni hefur fengið fleiri mörk á sig í upphafi móts. Á sama tíma hafa FH-ingar unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli og eru í þriðja sæti deildarinnar. �?að gefur því auga leið að eitt og annað þarf að breytast í leik Eyjaliðsins frá því í síðasta leik ef ekki á illa að fara.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.