Erill hjá lögreglunni
Töluverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í síðustu viku og þá í kringum skemmtanahald helgarinnar. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af nokkrum aðilum vegna ölvunarástands. Tilkynnt var um slagsmál í tveim tilvikum og í öðru þeirra var um minniháttar áverkar að ræða. Í báðum þessum málum voru þau leyst á staðnum án kæru. Aðfaranótt sunnudagsins gisti aðili fangageymslu þar sem hann var ölvaður og til vandræða á skemmtistað í bænum.
�?á þurfti lögreglan að hafa tal af íbúum sem voru með samkvæmi í heimahúsum þannig að nágrannar áttu erfitt með svefn. Aðfaranótt sunnudagsins þurfti lögreglan að aðstoða aðila sem var illa haldinn af sveppaáti. Honum var komið á sjúkrahús en ekki er annað vitað að hann hafi náð sér af þessu ofáti.
Í vikunni var tilkynnt um þjófnað úr fyrirtæki í bænum en um ítrekað brot var um að ræða hjá 13 ára gömlum dreng. Málið fer til meðferðar hjá félagsmálayfirvöldum Vestmannaeyjabæjar.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglunnar í vikunni en þar var um að ræða árekstur á gatnamótum Dalavegar og Fellavegar. Ekki var um slys á fólki að ræða.

Nýjustu fréttir

Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni
Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.