Ert þú á biðlista?
nýr herjólfur
Ágæti Eyjamaður hefur þú gert þér grein fyrir?
Verði úr smíði á þeirri ferju sem hönnunarhópur á vegum Vegagerðarinnar (Innanríkisráðuneytisins) vinnur að til siglinga milli lands og Eyja verður þú á biðlista í mörgum tilfellum stóran hluta ársins næstu 20-25 árin.
�?að skip (nýsmíði) sem kynnt hefur verið uppfyllir ekki þá flutningsþörf sem reiknað er með í skýrslu Vegagerðarinnar, um þarfir fyrir flutninga á næstu árum. Skiptir þá engu hvort siglt yrði 8 ferðir á dag á álagstímum. (Tilv. Umferðarspá milli lands og Eyja eftir Friðleif Inga Brynjarsson dags.16.10. 2o12. Spá um farþegaflutninga með ferju milli lands og Eyja til ársins 2032)
�?ví miður geta ekki allir haft langan fyrirvara á pöntun ferða, verða af ýmsum ástæðum að ferðast með stuttum fyrirvara, þá er svarið oft því miður þú ert á biðlista. Stórir hópar ferðamanna hætta við að koma til Eyja vegna endalausra biðlista og óöryggis.

Eyjamenn við látum ekki bjóða okkur þessa framtíðarsýn í samgöngumálum.
Nú stendur til boða stór og öflug ferja sem að flestra áliti mun henta vel til siglinga til Landeyjarhafnar og einnig með getu til siglinga til �?orlákshafnar ef á þarf að halda.�?að má ekki sleppa tækifærinu að reyna þennan möguleika.
Við höfnum því að verða á biðlista um ókomin ár
Ein aðal forsenda góðrar búsetu hér í Eyjum eru góðar samgöngur.
Horfum til framtíðar.
Kristján G. Eggertsson, áhugamaður um samgöngumál Vestmannaeyja

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.