Ert þú tilbúin í magnaða matarupplifun?
Renata Zalles er með alþjóðlega reynslu og er hugsjónamaðurinn á bak við veitingastaðinn STUFFED í Kaupmannahöfn

Það gleður okkur að tilkynna að hin ótrúlega hæfileikaríka matreiðslukona Renata Zalles mun ganga til liðs við okkur í ár á Matey á veitingastaðnum Einsa kalda!  Renata sem kemur upprunalega frá Bólivíu er með alþjóðlega reynslu og er hugsjónamaðurinn á bak við veitingastaðinn STUFFED í Kaupmannahöfn sem opnar  í október á þessu ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar.

Reynsla Renötu er bæði fjölbreytt og áhugaverð en hún hefur starfað með matreiðslugoðsögnum eins og Wolfgang Puck, José Andrés, Gaggan Anand, Garima Arora og Kamillu Seidler. Starf hennar á virtum veitingastöðum eins og Gustu (sem er í hópi 50 bestu veitingastaða  í Suður-Ameríku), Gaa (2 Michelin stjörnu veitingastaðar) og Lola (sem  Michelin hefur  mælt með í  4 ár í röð) segir sitt um elju hennar og færni.

Á Matey – sjávarréttahátíðinni mun Renata koma með sína einstöku blöndu af alþjóðlegum brögðum og búa til rétti sem bera virðingu fyrir menningunni sem hún er svo ástríðufullur fulltrúi. 

Ef þú ert tilbúin í magnaða matarupplifun með fjölbreyttum brögðum, persónuleika og dass af hinu óvænta, þá er Einsi kaldi staðurinn til að vera á 5.-7. september.

Ekki missa af tækifærinu til að njóta sköpunar Renötu í hrífandi umhverfi Vestmannaeyja. Fylgist með og verið tilbúin fyrir einstakt matarferðalag!

Hér má bóka borð.

Meira um Matey: Sameinar hefðir Mexíkó og nýsköpunar – Eyjafréttir (eyjafrettir.is)

Nýjustu fréttir

Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.