Eyja appið í loftið
Nýtt snjallforrit, Eyja appið, hefur verið sett í loftið. Í Eyja appinu er hægt að finna upplýsingar um afþreyingu, verslanir, veitingar, þjónustu, gistingu, áhugaverða staði, tilboð o.fl. í Vestmannaeyjum.
Snjallforritið hentar einstaklega vel þeim sem heimsækja Vestmannaeyjar sem og heimamönnum sjálfum. Snjallforritið sýnir hvaða þjónusta og verslun er í boði í Eyjum, hvað sé um að vera í Eyjum hverju sinni, sem og hvað unnt er að hafa fyrir stafni þar. Snjallforritið er líka tilvalið fyrir gesti íþróttamóta, Goslokahátíðar, �?jóðhátíðar og annarra viðburða en þar er hægt að finna dagskrá viðburða sem og ýmsar aðrar áhugaverðar upplýsingar.
Snjallforritið var opinberlega sett í loftið 1. júní 2015 en þegar hafa fjölmargir halað því niður í símana sína. Forritið er einkaframtak tveggja Eyjapeyja, þeirra Ragnars Ragnarssonar og Zindra Freys Ragnarssonar en einnig kemur Eyjaaðdáandinn, Laila Sæunn Pétursdóttir, að appinu.
Appið er núþegar fáanlegt í Apple Store og Google Play. Facebook síða snjallforritsins er: https://www.facebook.com/eyjaappid og er hægt að hala því einnig niður með því að nota QR kóðann sem fylgir hér með.
Aðstandendur Appsins vilja líka benda skipuleggjundum atburða sem eiga sér stað í Vestmannaeyjum að hafa samband í gegnum Facebook síðuna https://www.facebook.com/eyjaappid eða á eyjaappid@eyjaappid.is og þá er hægt að setja atburðinn inn á snjallforritið
Allar nánari upplýsingar veita:
Laila Sæunn Pétursdóttir, s. 693 0175 – eyjaappid@eyjaappid.is
Zindri Freyr Ragnarsson, s. 863 1285 – eyjaappid@eyjaappid.is
Ragnar Ragnarsson, s. 849-1159 – eyjaappid@eyjaappid.is

Nýjustu fréttir

Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara
Síðasta Aglow samvera vetrarins
Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
Herjólfur III í prufusiglingu á miðvikudag
Gengur vel í kolmunnanum hjá Vinnslustöðinni
Námsstyrkir sem skila sér heim
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.