Eyjamenn í átta liða úrslit
Eyjamenn eru komnir í átta liða úrslit Borgunarbikarsins eftir glæsilegan 3:0 sigur á Val í kvöld. Leikurinn var ágætis skemmtun þar sem bæði lið fengu sín færi en að lokum voru það Eyjamenn sem nýttu sín og uppskáru verðskuldaðan sigur. Framherjinn Jonathan Glenn, sem var talsvert gagnrýndur í upphafi móts, hefur fundið markaskóna því hann skoraði tvö mörk í kvöld og átti stóran þátt í því þriðja þegar skot hans var varið en boltinn fór af markverðinum, í varnarmann Vals og í netið. Markið verður líklega skráð sem sjálfsmark enda var boltinn á leið frá marki Valsmanna þegar hann fór í varnarmanninn og inn.
Allt annað yfirbragð var á Eyjaliðinu í kvöld en oft áður. Leikmenn virtust vera tilbúnir að berjast um hvern einasta bolta og þeir Atli Fannar Jónsson og Glenn virtust ná ágætlega saman í sókninni. Báðir áttu þeir mjög góðan leik fyrir ÍBV eins margir aðrir í liði ÍBV. Nú þarf bara að byggja á þessu enda stutt í næsta leik því ÍBV tekur á móti KR á sunnudaginn á Hásteinsvelli í 9. umferð Pepsídeildarinnar.

Nýjustu fréttir

Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.