�?etta segi ég ekki bara af því að ég er nú að skrifa í Eyjablað, heldur af því að um margt er það ögrandi og erfitt verkefni að vera fulltrúi Eyjamanna í pólitíkinni. Staða Eyjanna er strembin og það er áleitið og krefjandi verkefni fyrir stjórnmálamann að berjast fyrir hagsmunum þessarar glæstu verstöðvar við suðurströndina.
Af kynnum á liðnum vetri er ég þess líka fullviss að það er samhljómur í þeirri pólitík sem ég trúi á og hagsmunum Eyjamanna. Reyndar fleiri en þeirra, yfirleitt í hagsmunum allra landsbyggðarmanna.
Fáum hættir kannski jafn illa við að glepjast eins og nýríkum Íslendingum og telja því að framtíðin sé í hinu stóra. Stórum sveitarfélögum, stórum borgum, stórum einingum. �?etta er náskylt minnimáttarkenndinni gagnvart sveitamennskunni, saltfiskinum og sjálfum okkur yfirleitt. En þetta er blekking.
Framtíð okkar liggur í því sama og ríkidæmi okkar til þessa dags. Trú okkar á sjálfa okkur, mátt okkar og megin. Við getum fengið blinda hagfræðinga til að reikna það út að það borgi sig illa að halda úti sjávarplássum eins og Vestmannaeyjum og Grindavík. Að það skuli fráleitt leyfa slíku fólki að hafa eigin hreppsnefnd og hvað þá annað.
Með sömu rökum megum við reikna okkur til þess að hagkvæmast væri að flytja alla Íslendinga á höfuðborgarsvæðið. Sama reikniformúla dygði líka til að reikna það út að Íslendingar ættu að vera fátækastir allra þjóða í hinum vestræna heimi með sitt hreggbarða grjót, fámenni og víðlendi. Og ef við gefum þeim og hinu faglega valdi lausan tauminn er eins víst að við verðum allra þjóða fátækastir. Ríkidæmi okkar kemur úr hinum dreifðu byggðum og byggir á að við leggjum hér eftir sem hingað til rækt við þær.
�?að getur vel verið að plássin okkar í okkar kjördæmi séu ekki eins �?skys og næs�? og Smáralindin. Ekki öll í sjónvarpinu á hverju kvöldi fyrir glæsileika. En í þeim býr framtíð þessarar þjóðar, hið hvunndagslega og stundum ögn hallærislega líf. Fiskur hennar og moldir.
Í ferð í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í vetur sagði ég ungmennum héraðsins frá því að á mínum eigin menntaskólaárum hefði ég trúað að Framsóknarflokkurinn væri það hallærislegasta í heimi hér. Og bætti því við í hreinskilni að ég hefi ekkert lagast af þessu. Mér er það jafn ljóst enn að flokkur þessi er um margt hallærislegur. En mér hefði snemma skilist að það skynsama í þessum heimi er oft giska hallærislegt. �?að getur verið sumu fólki töff að hlaupa eftir róttækni Vinstri grænna eða uppaskóm sjálfstæðisdrengja. Nú, eða voma yfir Evrópudraumum krata. En allt er það samt ekki einu sinni skemmtilegt og mjög langt því frá að vera skynsamlegt.
�?ær leiðir sem verða ofan á í argaþrasi stjórnmálanna eru sem betur fer framsóknarleiðir. �?ess vegna er gott að búa á Íslandi og þess vegna eru það við framsóknarmenn en ekki öfgaöflin sem eru í vinningsliðinu.
�?ú getur verið valið að vera með okkur. Í vinningsliðinu. �?að val fer fram 12. maí næstkomandi.
Bjarni Harðarson
Höfundur skipar annað sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi.
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst