Eyjapeyjar með verkefni til Microsoft
Eyjapeyjarnir Sigurjón Lýðsson og Jóhann Sigurður �?órarinsson, ásamt Skagfirðingnum Guðmundi Jóni Halldórssyni, hafa undanfarin misseri unnið að hönnun tækis, Insulync sem er ætlað að halda upplýsingum um lyfjagjöf sykursjúkra, sem verður haldið saman á miðlægu safni, Cloudlync. Fyrirtæki þeirra, Medilync fékk á dögunum næst hæsta styrk sem Samtök Sunnlenskra sveitarfélaga veitti en rósin í hnappagatið kom á dögunum þegar tölvurisinn Microsoft bauð þeim að koma til þeirra til að vinna að Insulync og Cloudlync.
Sigurjón segir í samtali við Eyja­fréttir að þetta sé mikil og góð viðurkenning fyrir verkefnið. �??�?g veit ekki til þess að nokkurt annað
íslenskt fyrirtæki hafi fengið svona boð áður, hvað þá fyrirtæki úr Eyjum. Tækið er í smíðum og svo verður ferðin notuð til að tryggja ákveðin gæði þegar kemur að hugbúnaðarhlutanum. Tækið er fyrir sykursjúka, þannig að það mælir blóðsykur og gefur insúlín. Tækið geymir svo upplýsingar um inngjöf insulíns og blóðsykurmælingar sem síðan eru sendar í miðlæga gagnageymslu í skýinu (e. Cloud storage). Notandinn getur svo nálgast sín gögn í gegnum vafra eða þar til gert app. Einnig getur notandinn gefið öðrum aðgang að sínum gögnum s.s aðstandanda eða lækni.�??
Hugmyndin kviknaði fyrir þremur árum en faðir Sigurjóns, Lýður �?gisson er sykursjúkur. Auk þess var hann í krabbameinsmeðferð og átti í erfiðleikum með að fylgjast með insúlín notkuninni í meðferðinni. Í kjölfarið fór Sigurjón að leita að hentugu tæki sem gæti hentað föður hans en hann fann ekkert. Sigurjón ákvað því að búa til svona tæki sjálfur. Síðan eru liðin þrjú ár og árangurinn í raun ótrúlegur. �??Mestur tími hefur farið í rannsóknarvinnu en þetta er fyrsta árið núna sem við vinnum markvisst að tæknilegri útfærslu, þannig að í lok árs 2015 verðum við komnir langt með virka frumgerð af tæki og hugbúnaði.�??
>> Nánar í blaði Eyjafrétta

Nýjustu fréttir

Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.