„Feginn að fá loksins svona veður”
jon_valgeirs_opf
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Vestmannaeyjaskipin Bergur VE og Vestmannaey VE hafa verið að fiska vel að undanförnu. Vestmannaey landaði fullfermi í Eyjum á sunnudag og Bergur landaði fullfermi á laugardag og aftur í dag.

Að sögn Jóns Valgeirssonar, skipstjóra á Bergi hafa þeir verið að undanförnu á Ingólfshöfðanum og þar hefur verið fantaveiði. „Í fyrri túrnum upplifðum við loksins gott veður. Við vorum í reyndinni að veiða í himneskri blíðu og það var kominn tími til eftir langa brælutíð. Í seinni túrnum var farið beint á Höfðann og veiðin byrjaði heldur rólega fyrst en svo brast á með mokveiði. Þarna var fiskurinn í loðnu. Við vorum einungis í tvo sólarhringa á miðunum þannig að skipið var fyllt á stuttum tíma. Þetta var þokkalegasta blanda sem þarna fékkst; ýsa, þorskur, ufsi og koli. Allan tímann var alger blíða og flottheit og mikið er maður feginn að fá loksins svona veður,” sagði Jón í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Nýjustu fréttir

Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.