Féll strax fyrir þjóðhátíð
Jónas: Það er líka gaman þegar allt gengur upp, það gefur manni mikið. Mynd Óskar Pétur.

Kom fyrst á þjóðhátíð 19 ára – Nú í forystu í undirbúningi og framkvæmd

Hvað fannst þér um þjóðhátíð þegar þú mættir í fyrsta skipti í Dalinn? „Mér fannst hún æðisleg. Þess vegna kom ég aftur og aftur og upplifunin, bara VÁ! Maður gat ekki hugsað sér að fara eitthvað annað þó fleiri útihátíðir væru boði,“ segir Jónas Guðbjörn Jónsson formaður þjóðhátíðarnefndar ÍBV sem þarna er að lýsa hinum dæmigerða gesti, ungu fólk sem mætir í Herjólfsdal ár eftir ár.

„Það er rétt, fólk kemur aftur og aftur. Ég þekki fullorðinn mann ofan af landi sem mætir með sitt tjald á hverju ári en hann vann með pabba í gamla daga. Orðinn sjötugur og lætur sig ekki vanta. Það er líka gaman að sjá ungt fólk sem er að koma á þjóðhátíð í fyrsta skipti. Spennan hjá þeim er svo mikil og þau vilja spjalla við mann og spyrja um dagskrána, hefðirnar, hátíðarsvæðið og allt þar á milli. Það gefur manni mikið að hitta fólkið í Dalnum og gaman að tala við þau. Ég gef mér alltaf tíma í það því maður sér hverjir eru nýir og þau er alltaf mjög jákvæð.“

Nánar í nýjasta blaði Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

ÍBV með bakið upp við vegg eftir tap gegn Val
Eyjarnar landa í Grindavík
Sterk uppbygging og skýr framtíðarsýn
Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara
Síðasta Aglow samvera vetrarins
Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.