Gunnar Karl fer Reykja­vík­ur­m­araþonið í hjóla­stól
Eyjamaður­inn Gunn­ar Karl Har­alds­son ætl­ar að rúlla sér 10 kíló­metra á hjóla­stóln­um sín­um í Reykja­vík­ur­m­araþon­inu í ág­úst. Gunn­ar er 22 ára en þegar hann var 18 þurfti að fjar­lægja vinstri fót hans. Frá barnæsku hafði hann glímt við erfiðan tauga­sjúk­dóm en hann hef­ur not­ast við hjóla­stól síðan fót­ur­inn var tek­inn af við hné. Gunn­ar safn­ar styrkj­um fyr­ir Reykja­dal, sum­ar­búðir fyr­ir fatlaða. �??�?að er í raun­inni bara ekki hægt að lýsa því,�?? seg­ir Gunn­ar, spurður hvaða þýðingu Reykja­dal­ur hef­ur fyr­ir hann. �?etta er fyrsta sum­arið síðan 2004 sem Gunn­ar er ekki að fara í Reykja­dal og vill hann því gefa til baka til að þakka fyr­ir sig. �?etta er í fyrsta sinn sem hann tek­ur þátt í keppni sem þess­ari á hjóla­stóln­um og hef­ur hann aldrei áður farið þessa vega­lengd í ein­um rykk á stóln­um. �??�?g er ekki með nein hand­föng á hjóla­stóln­um eða neitt þannig að ein­hver geti ýtt mér,�?? seg­ir Gunn­ar sem fer 10 kíló­metr­ana á handafl­inu einu. �??�?g er byrjaður að æfa núna, ég fór 5 km í gær á hálf­tíma, þetta er að koma,�?? seg­ir Gunn­ar en hann æfir sig gjarn­an inni í Herjólfs­dal þar sem hann ýtir sér hring­inn.
Í ág­úst flyt­ur Gunn­ar til Reykja­vík­ur þar sem hann hef­ur nám í tóm­stunda- og fé­lags­mála­fræði við Há­skóla Íslands. �??�?g hef bara sjald­an verið betri,�?? seg­ir Gunn­ar sem er vel stemmd­ur fyr­ir Reykja­vík­ur­m­araþon­inu en hann stefn­ir á að safna 300.000 krón­um fyr­ir Reykja­dal og kveðst nokkuð bjart­sýnn á að ná mark­miðinu.
Reykja­vík­ur­m­araþon Íslands­banka fer fram 20. ág­úst næst­kom­andi. Hægt er að heita á Gunn­ar Karl í gegn­um heimasíðu Hlaupa­styrks.
mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Byggjum þetta bara
ÍBV getur tryggt sæti í úrslitum með sigri í dag
Stelpurnar sækja Fram heim
Vonbrigði með dýpkun
Framtíðarsýn og faglegt samstarf við uppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar
Líf og fjör á barnamenningarháíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Halla Hrund óskar eftir opnum fundi um stöðu samgangna til Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.