Ferjusamgöngur
15. mars, 2022
Hannes Kristinn Sigurðsson

Eins góð samgöngubót og Landeyjarhöfn ásamt nýjum Herjólfi er þá þufum við öflugt grafskip og varanlega lausn í dýpkunarmálum, það gengur ekki að vera alltaf í þessari óvissu ár eftir ár, það má heldur ekki gleyma því að við eigum heima í Vestmannaeyjum og hér gerir arfa vitlaust veður og eru Vestmannaeyjar þekktar sem slíkar.

Það á því ekki að koma okkur á óvart að siglingar hér á milli séu háðar veðri og vindum!

Svo er það hin spurningin, á reksturinn heima hjá okkur ?

Þó svo að undirritaður hafi verið á móti því að Vestmanneyjabær tæki yfir ferjusiglingar þá er það gott fyrir samfélagið að rekstur sé í höndum okkar, það er okkar skilda að skila þar góðu búi fyrir okkur heimafólk, gesti og starfsfólk.

Það er ekki okkur samfélaginu til heilla að reka þau erfiðu mál sem nú ríkja í fjölmiðlum, við þurfum að standa vörð um reksturinn, við þurfum að gera það betur hvort sem um reksturin sjálfan eða Landeyjarhöfn.

Þetta félag er í eigu okkar Vestmanneyjinga og sómi fyrir bæjarfélagið að standa okkur vel í öllum málfenum Herjólfs.

Þetta snertir okkur öll og er á okkar ábyrgð.

Hannes Kristinn Sigurðsson
Undirritaður bíður sig fram í 4-5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í komandi prófkjöri.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.