Fjármagn vantar fyrir ríkisstyrktu flugi
Flugvel Tms
Vestmannaeyjaflugvöllur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í liðinni viku var einu sinni sem oftar umræða um samgöngumál.

Fram kemur í fundargerðinni að á fundi með Vegagerðinni í lok ágúst hafi komið fram að búið væri að bjóða út ríkisstyrkt flug til Vestmannaeyja. Ekki er búið að ganga frá samningi því ríkið hefur ekki tryggt að fullu það fjármagn sem þarf svo hægt sé að ganga frá samningi.

Í afgreiðslu bæjarráðs hvetur ráðið þá ráðherra sem koma að málinu að tryggja það fjármagn sem uppá vantar svo hægt sé að ganga frá samningi um ríkisstyrkt flug yfir vetrartímann eins og lofað hefur verið.

Nýjustu fréttir

Klara Káradóttir framlengir við ÍBV
Breyta hlutverki æskulýðs- og tómstundafulltrúa
Æfðu hífingar milli björgunarbáts og þyrlu
Eyjakonur áfram á sigurbraut – Unnu Val á Hásteinsvelli
Tyrkjaránsganga Sögusetursins 1627
Einn túr eftir fyrir sumarstopp
NovaFest á Vöruhúsinu á Þjóðhátíð
ÍBV tekur á móti Val í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.