Annað jafntefli gegn Akureyri

Eyjamenn og Akureyri gerðu annað jafnteflið á stuttum tíma í kvöld þegar liðin skoruðu 25 mörk hvort á Akureyri. ÍBV komst aldrei yfir í leiknum og jafnaði metin þegar einungis ein sekúnda var eftir af leiknum. Eyjamenn voru að elta allan leikinn og virtust oft vera búnir að missa Akureyri of langt frá sér. Kolbeinn […]

Tónlist og jólasveinar á morgun í Landsbankanum

Landsbankinn hefur opnað útibú sitt í Vestmannaeyjum eftir gagngerar endurbætur á húsnæðinu. Af þessu tilefni er Vestmannaeyingum boðið að fagna með starfsfólki í útibúinu að Bárustíg 15, föstudaginn 18. desember. Dagskrá 18. desember �?� Tríó �?óris �?lafssonar spilar frá kl. 13.00 til 16.00. �?� Karlakór Vestmannaeyja syngur kl. 15.00. �?� Sproti og jólasveinn kíkja við […]

Georg Eiður – Eyjamenn fylgist með í orku- og umhverfismálum

Georg Eiður Arnarson, fulltrúi Eyjalistans lagði fram athyglisverða tillögu á síðasta fundi framkvæmda- og hafnarráðs sem gera má ráð fyrir að verði rædd í bæjarstjórn í dag. Vill hann láta kanna möguleika Eyjamanna á vistvænni orkuframleiðslu í framtíðinni. Ekki hlaut tillagan náð fyrir augum meirihluta sjálfstæðismanna í ráðinu. �?annig hljóðaði tillagan: -Sett verði saman nefnd […]

Sækja Akureyri heim í dag

Í dag klukkan 18:00 mætast ÍBV og Akureyri fyrir norðan. Leikurinn er næst síðasti leikur ÍBV fyrir landsleikja hlé í Olís deildinni. Aðeins einu stigi munar á liðunum sem eru í fjórða og sjötta sæti deildarinnar en ÍBV er með sautján stig en Akureyri sextán. (meira…)

�?rír frá ÍBV í u-20

Sigursteinn Arndal og �?lafur Stefánsson þjálfarar U-20 ára landsliðs Íslands í handbolta hafa valið hóp til æfinga 29.desember �?? 7.janúar n.k. �?jálfararnir völdu þrjá leikmenn frá ÍBV, Hákon Daða Styrmisson, Nökkva Dan Elliðason og Dag Arnarsson. ibvsport.is greindi frá. (meira…)

Jólatónleikar Kórs Landakirkju í kvöld

Árlegir jólatónleikar Kórs Landakirkju verða miðvikudaginn 16. desember og hefjast klukkan 20.00. Einsöngvari er Einar Clausen, tenór. Stjórnandi kórsins er Kitty Kovács og einleikari Balázs Stankowsky, fiðluleikari. Guðlaugur �?lafsson er ein af stoðum kórsins auk þess að stýra Herjólfi. Hann lofar skemmtilegum tónleikum og vekur athygli á því að þetta eru einu jólatónleikarnir í Eyjum […]

Nægt dýpi í Landeyjahöfn – �?ráðið með siglingar þangað

Samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar var í gær nægt dýpi til siglinga í Landeyjahöfn. Dísa hefur verið að dæla þar undanfarna daga í góðu veðri og virðist það hafa skilað árangri. Samkvæmt kortinu sem sýnir nýjustu mælingu er dýpi í innsiglingunni allt að sjö metrar og minnst sex. metra dýpi í innsiglingunni. Er miðað við dýpi á […]

Erla Rós og Díana Dögg í u-20

Einar Jónsson hefur valið 21 leikmann til æfinga milli jóla og áramóta. Einar valdi tvær stúlkur frá ÍBV, þær Erlu Rós Sigmarsdóttur og Díönu Dögg Magnúsdóttur. Fyrsta æfingin verður 26. desember og verður æft til og með 30. desember. ibvsport.is greindi frá. (meira…)

Tjónið hleypur á tugum milljóna

Tilkynningar sem borist hafa stóru tryggingafélögunum þremur, VÍS, Sjóvá og Tryggingamiðstöðinni, vegna óveðursins á mánudagskvöld í síðustu viku eru farnar að nálgast 300. Flestar tilkynningarnar bárust VÍS. Allir búast við að talan eigi enn eftir að hækka. Björn Friðrik Brynjólfsson, upplýsingafulltrúi VÍS, segir að tilkynningar til þeirra séu farnar að nálgast 200. Um 170 tilkynningar […]

Bæjarráð í dag – Álagning tekjustofna og gjaldskrá ársins 2016.

Álagning fasteignaskatts, holræsagjalda, sorpeyðingar- og sorphreinsunargjalda árið 2016: 1. Fasteignaskattur af húsnæði verði eftirfarandi hlutfall af fasteignamati þeirra samkvæmt II. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, með síðari breytingum, og reglugerð um fasteignaskatt nr. 1160/2005. a). Íbúðir og íbúðarhús, útihús og mannvirki á bújörðum, sem tengd eru landbúnaði og sumarbústaðir: 0,35 %. b). Allar […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.