Flugumferð gekk vel yfir �?jóðhátíð
Flugumferð til og frá Vestmannaeyjaflugvelli um liðna Verslunarmannahelgi gekk vel fyrir sig. Í heildina voru um 430 flughreyfingar um helgina sem er dálítið minni umferð en síðastliðin ár. Nokkur umferð var seinnipart föstudags og á sunnudagskvöldið, langmest flugumferð var þó, líkt og fyrri ár, á mánudeginum.
Heilt yfir gekk flugumferðin vel fyrir sig. Með nýju fyrirkomulagi um úthlutun þjónustutíma var tryggt að umferð í loftrýminu yfir Vestmannaeyjum væri hæfileg á hverjum tíma með flugöryggi að leiðarljósi. Yfir 95% af þeim sem óskuðu eftir þjónustutíma á flugvellinum fengu tíma í samræmi við upphaflega ósk. Tæplega 5% þurftu að hnika til flugáætlunum sínum en þó ekki meira en sem nam hálfri til einni klukkustund. Alls var nýttur helmingur þeirra þjónustutíma sem í boði var. Isavia mun nú skoða vel hvernig þetta nýja fyrirkomulag gekk og hvort gera þurfi breytingar á því fyrir næstu �?jóðhátíð í Vestmannaeyjum.
�?ll umferð flugvéla og farþega á flughlaði gekk greiðlega fyrir sig um Verslunarmannahelgina og vilja starfsmenn Isavia á Vestmannaeyjaflugvelli þakka þeim sem heimsóttu flugvöllinn fyrir góða samvinnu.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.